6.2.2013 | 21:27
Kynleiðrétting
Það eru ekki bara við mannfólkið sem tökum upp á því að fara í kynleiðréttingu Hún litla sæta Lottu Skottið mittbúin að vera hjá mér í tvær vikur núna og ég var að komast að því að hún er hann hahaha... á ekki til orð....einsog maður hafi ekki átt kött áður..en Lóa mín heitin, það leyndi sér nú ekkert hvað hún var mikil Ladygirl ....öhhhhh... svona þangað til hún breyttist í lítið ljón elsku kéllingin...
en það hefur semsagt komið í ljós að hún Lotta litla "STELPAN" mín er með pungsa og báðar "systur" hennar líka hahaha...Jiminn eini ...ætlar að ganga illa að eignast stelpu á mínum bæ ..svo aftur er ég umvafin strákum af öllum stærðum og gerðum.. en kelirófan sem hann og gleðigjafi ....
Hélt ég yrði ekki eldri þegar fékk símtalið í dag með þessari tilkynningu hahaha.... , en þá varð nú að nefna gaurinn uppá nýtt og mörg nöfn sem spruttu upp í hugann...Fyrst af öllu datt mér bara í hug "Spotti" útaf sprellanum sem er þarna einvherstaðar inní pungsanum,"Keli" af því hann er svo mikil kelirófa, "Pungur eða Þorri" vegna Þorrans sem er nú í gangi, "Strákur" af gefnu tilefni, .... svo datt mér í hug nafnið "Spói" af því hin kisan mín hét Lóa ....og það var samþykkt af nafnanefndinni...svo nú er hann Spói minn hæstánægður með nafnið,lífið og leiðréttinguna And so am I ...þarf þá ekki að hafa áhyggjur af að verði kettlingafullur hehe.....
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Við erum greinilega hálfgerðir "sálufélagar" ... allavega er þetta ansi mikið í stíl við suma dagana mína...
http://www.tiska.is/heilsa/dagbok-eddu-bjorgvins/nanar/5231/edda-bjorgvins-er-konan-ad-grinast?fb_action_ids=10200422456543993,10200421755366464&fb_action_types=og.likes&fb_source=other_multiline&action_object_map={%2210200422456543993%22:10150922151412862,%2210200421755366464%22:203422899802828}&action_type_map={%2210200422456543993%22:%22og.likes%22,%2210200421755366464%22:%22og.likes%22}&action_ref_map=[]
(endilega coperið slóðina og lesið...þá fattiði af hverju ég er ða segj afrá atriðum úr mínu lífi)
Ég hef mætt í sitthvorri tegund af skóm í vinnuna á næturvakt..fattaði það um morguninn þegar ég var á leiðinni heim(þeir voru samt báðir hvítir !)...hef látið bíl stoppa fyrir mér og troðið mér uppí og fattaði ekki fyrr en sá svipinn á aumingjans bílstjóranum að þetta var ekki billinn sem ég ætlaði að fara uppí... hef farið með svartan ruslapoka fullan af gerfigrenilengjum í stað sængur í sumarbústaðaferð með saumaklúbbnum... gramsað í sælgætisrekkanum að leita að "SVÖRTUM GÓAKÚLUM" í sjoppu sem vann einu sinni í og endaði með að ég slengdi "venjulegum" GÓAKÚLUM á afgreiðsluborðið og sagði " Því miður, við eigum bara svona" !!! Aumingjans maðurinn sagðist nú bara hafa beðið um SKÓÁBURÐ...SVARTANN!! ÓMÆ... var með elsta syninum þegar hann var unglingur og var að kaupa sér buxur í herrafataverslun og mig var farið að lengja eftir að hann kæmi úr mátunarklefanum til að leyfa mér að sjá, svo ég þreif í tjaldið og sagði "Má ég sjá elskan" ..þá var þetta allt annar maður á brókinni þar inni ... nýkomin með bílpróf...bakkaði á 2svar sama daginn...Vissi ekki af því í fyrra skiptið, en sást nú til mín og lögreglu gert viðvart...hún hafði uppi á mér heima hjá ma&pa og spurði hvort geti verið að ég hafi bakkað á bíl um þrjúleytið?..."NEI,NEI" svaraði ég ..."það var ekki fyrr en klukkan FIMM"!!! jesús minn...þetta er bara SMÁ sýnishorn af mínum góðu dögum.... og Helga syst. JÁ , það er alveg HÆGT að vera ég hahaha......
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
22.1.2013 | 18:49
ég elska að elska
No hay nada más hermoso que ojos marrones y una sonrisa encantadora en sus labios besando mi amor
Mikið er þetta stórmerkilegt fyrirbæri sem kallast ást hvað gerist þegar maður er búinn að reisa vegg úr gleri og "leyfir sér" að sleppa takinu á hinu vonlausa sem frekar dró úr manni kraft heldur en styrkja þó maður hafi haldið það á tímabili og hélt dauðahaldi í...ég þorði ekki að sleppa.. ætlaði sko EKKI að leyfa mér að njóta þess sem er það dásamlegasta í heimi... (svona utan við dásemdir sem börnin manns veita manni á ótal vegu )......en fékk hjálp frá hinum enda stálþráðarins að taka loks meðvitaða marghugsaða ákvörðun um að sleppa erfiðu taki á honum, sem var samt svo gott á sinn sérstaka hátt en Ljónið í veginum var of stórt á þessum óslítandi þræði og ég réði ekki við það, sem ég held að hafi opnað fyrir dásemd sem er engu lík eftir að ég sleppti takinu. Á einhvern ótrúlegan hátt tókst Amor að lauma sér innfyrir glervegginn sem áður hafði verið mölbrotinn og opna hann að innanverðu án þess svo mikið sem rispa glerið.... það gerist ekki nema vera stillt á réttri bylgjulengd + dáleiðandi brún augu og fyrir þá sem skilja ekkert í þessu og botna ekki í einu eða neinu þá er ég sjálf enn að reyna skilja þetta en ætla ekki að gera neitt til að breyta því ....því ástin er svo merkileg og beautyful ...sérstaklega þegar hún kemur svona óvænt
Bloggar | Breytt s.d. kl. 21:13 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
21.1.2013 | 14:28
Ég var "næstum því hrösuð"
Já góðan dag! Það munar ekki um svellin og hálkuna hér í bæ þó líklega finnst hún víðar
En ég verð bara að segja frá því að það var eingöngu vegna minna óútskýranlegu fimleikahæfileika og "lipurðar" sem mér tókst að enda á fótunum í stað að lenda á hvolfi eftir ótrúlega flottan loftfimleikasnúning áðan á leiðinni heim úr skólanum ( Helga, Guðný og Maren mínar .....ég var "NÆSTUM ÞVÍ HRÖSUÐ"híhíhí En er að spá í að fara nota skíðahjálminn bara í spásseríutúrunum mínum þar til í vor...sýnist að svellbunkarnir séu ekkert að fara fyrr en með sumrinu ...sem er by the way alveg að koma Get varla beðið... hlakka til sumarsins einsog börnin hlakka til jólanna... Sumrin eru sko minn tími, hef smá fyrirframáhyggjur af að geti ekki gert nærri allt sem ég ætla frekar en í fyrrasumar , en mikið sem það verður samt skemmtilegt Þá finnst mér ég frjáls einsog fuglinn fljúgandi og á eftir að "svífa" í mínum skógartrimmum og leiðöngrum sem fara bráðum að skella á aftur Love it ..... Frelsið felst í svo mörgu Elska svo mörg lög með Palla og finnst EKKERT að því ...því ÉG er bara eins og ÉG er my own special creation ......
mörgu ...
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
15.1.2013 | 21:52
Örsaga úr lífi Dollu
Hverju skyldi ég hafa lent í áðan meðan ég beið eftir að Inga vinkona myndi sækja mig ?
jerimíjas, hún var svona á síðustu stundu svo ég sagði henni að ég myndi bara labba á móti henni .... og þá byrjar sagan :
Ég fer út og allt í lagi með það...fékk símtal frá Helgu vinkonu og við erum bara að spjalla
..langt síðan heyrði í henni ég segi henni að ég sé gangandi í Skógarlundinn í svelli og kolsvarta myrkri...ekki uppá gangstétt,var bara í kantinum svo Inga mín sæi mig nú örugglega þegar hún kæmi á móti mér... ég í svartri úlpu og buxum í myrkrinu ÁN nokkurs endurskyns nema kannski á íþróttaskónum sem ég var með í fanginu..... Vorum nefninlega á leið í BOTTOMLIFT ...ætlum sko að tæta utanaf okkar flottu bossum á næstu vikunum
jæja... ég er ekki búin að tala lengi við Helgu mína þegar ég sé Ingu koma og gef henni merki, en hún keyrði bara framhjá
.....ég segi þá í símann að það sé ljótt!, ég sjáist bara ekki í myrkrinu
hún bara keyrði framhjá mér..en ég stoppaði og leit á eftir henni...og sá þá að hún stoppaði nú fyrir mér svo ég hljóp til hennar í bílinn og alltaf í símanum á meðan..Helga var með þetta allt í beinni..
..........hehehe.....
híhí...nú fæ ég kast aftur sko... bara af að hugsa um þetta.... ómæ ...
bíllinn stopp og ég komin að honum og opna hurðina og skvera mér inn...og er að fara loka hurðinni þegar ég sé að "Inga" er ekkert Inga!!!
Undir stýri situr brosandi maður og vissi ekki alveg hvaðan á sig stóð veðrið... og ég enn í símanum.. lít á manninn og segi..."JIMINN...ÉG er í kolvitlausum bíl"!
hahaha
og sprakk úr hlátri..en maðurinn hélt ég væri að stppa sig þegar ég gaf Ingu" merkið ...
hehehe...
Næsti bíll sem kom var svo hún Inga og sá þegar ég staulaðist út úr hinum bílnum...og skildi ekkert hvaðan ég var að koma og það líka grenjandi úr hlátri hehe.....skrönglaðist þannig,enn í símanum, upp í bíl til hennar... og ætlaði aldrei að geta byrjað að segja henni frá þessu uppátæki.... en Helgu fannst nú gaman að þessu svona í beinni híhíhí....
Þetta var nú svona örsaga úr lífi Dollu ...pínu típískt ég...
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
28.12.2012 | 17:25
I love Loverboy
þó kannski séu það ekki allir...þá vinn ég nú oftast bara um helgar... nóg að gera hina dagana í skóla...nema núna í fríinu jóla... I'll be working um áramót... ekkert farin að spá í að bráðum kemur Þorrablót...þá næstum komið að verklega marsmánuðinum...þá komnir eru páskar...test seeson again og svo sumarið og það "hleypur" frá manni í orðsins fyllstu og líður alltof hratt ...svo back to school again ... og hvað svo... jú ...komin á byrjunarreit og ég aftur í jólafrí frá skóla ...... Þetta er með ólíkindum alveg hvað tíminn flýgur og maður varla byrjaður á einu..hvað þá fleiru sem maður ætlaði að gera.... Þannig að: ÞAÐ Á AÐ NJÓTA EVERY SINGLE SECOND OF THE LIFE live alife & í NÚINU...
Stopp looking back...
það er gömul history.... Goodbye my past ...Hello my future.. Tíminn er NÚNA hlusta á Loverboy dot, dot, dot góða helgi !
Bloggar | Breytt s.d. kl. 17:37 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
27.12.2012 | 13:32
hún er fundin :)
Þá hefst eins og venjulega nýtt átak , ný markmið, nýjar leiðir, nýtt upphaf
...þarf bara AÐEINS að byrja í ræktinni..... svo AAAAÐEINS meira en það að fara í fimleika .... alltaf ætlað að mála með pensil á trönur...en body painting sýnist mér vera miklu skemmtilegra þarf ekkert að æfa fyrir það....dansinn virðis koma af sjálfu sér svona þegar fimleikarnir eru komnir í gang .... og restin af The Body Language gerir sig líka sjálf....Hef leitað að svona mótherja...veit hann er til ...þarf bara tékka á hvort hann þurfi með mér á fimleikanámskeiðið
Sýnist bónusinn við þetta alltsaman ansi hreins skemmtilegur og spennandi og efast ekki um hvað hann er góður.. hún er semsagt FUNDIN aðferðin sem ég þarf að nota til að komast í formið...seint sem ég flokkast í normið, enda stefni ég ekkert á það.... iiiJÍha!
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
23.12.2012 | 03:32
Gleðileg jól allir saman...það er komin jólastund <3
Vegna þess hvað ég hef haft um margt að hugsa annað en skrifa á jólakort...þá var ég að fatta að ég gleymdi að skrifa þau og hvað þá að senda..þannig að elsku vinir mínir nær og fjær sem fáið ekki kort frá mér núna... þið fáið kveðju þá bara beint í æð í staðinn Og það getur greinilega gerst allt í beinni í heimatöku á videoi eins og í beinni í fréttatímanum...að maður missir út úr sér e-ð sem á ekki alveg við... og þessvegna var gerð taka tvö læt mislukkuna samt bara fylgja með til gamans... í rauninni er hún miklu meira ég hehe... en það vitið þið líka vel sem mig þekkið
En nú óska ég mér að þið eigið öll dásamleg jól framundan og bið þau almætti sem einhverju ráða að gefa okkur öllum frábært nýtt ár... veit að hjá mér mun það verða doubble better than last year a.m.k. og vona þannig verði það líka hjá ykkur , þó alltof margir sem ég þekki hafi misst og þurft að kveðja að fullu nána fjölskyldumeðlimi sína...foreldra(sumir misstu bæði móður sína og föður), börn og systkyni .... Sendi ykkur aftur mínar dýpstu samúðarkveðjur ...knúsa ykkur vel þegar hitti ykkur á nýju ári elskurnar Ég er mjög spennt yfir mörgu nýju og skemmtilegu sem bíður mín... væntanlega mun ég blogga frá einhvejru af því þegar að því kemur ..ef tími gefst til... sé fram á að mér muni ekki koma til með að leiðast í nánustu framtíð
hér er fyrsta útgáfa jólakveðjunnar minnar...úbbbssss.... maður þarf að passa hvað maður segir svona í "beinni" ;)
...og þá var bara taka tvö ...og ég ítreka það sem ég segi ...þið eruð stórskemmtileg og þvílík litablanda af karakterum og persónum sem ég þekki hér og á facebook og spjallstundirnar við ykkur mörg eru ógleymanlegar og algerlega til að lífga upp á tilveruna, spanna allan skalann ... að ógleymdum þrælskemmtilegum kommentum, hvatningum, og stuðning við mig sama hvað á hefur gengið ... Þið eruð yndi
og svo í boði Ragnheiðar Gröndal eitt sem er búið að vera í mörg ár mitt uppáhaldsjólalag
Bloggar | Breytt s.d. kl. 03:48 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
18.12.2012 | 13:45
ÞABARALLTÍLÆSKO
Þessi bloggfærsla varð til þegar ég las status hjá skemmtilegri frænku minni núna áðan...já og frænkum sem eru í sömu sporum og ég... ekki alveg búið að vera hægt að hugsa um e-ð jóla síðustu vikurnar og svo bara allt í einu...búmmsakkabúmm..jólin bara að koma en semsagt hún var að segja frá martröð sem hana dreymdi vegna þessa alls og ég skrifaði henni þá þetta hér: hahaha...dásamlegt... ég hef ALDREI verið eins sein... EKKI búin að kaupa allar gjafir, EKKI farin að skrifa á kortin...EKKI búin að kaupa jólamatinn...EKKI búin að setja seríuna á svalirnar...EKKI búin að kaupa jólatréð, hvað þá skreyta það einsog sumir meina..hvenær átti maður að hafa tíma í þetta alltsaman, þegar lífið manns var á öðrum stað sem kemur jólunum ekkert við ...fattaði allt í einu um helgina, loks þegar ég náði andanum eftir síðustu vikur...að fara ekki yfirum yfir þessu...við getum alveg treyst því að jólin bara koma... sama hvað..og ég ætla ekki að taka stressið á þetta...bara kósý time og ÞABARALLTÍLÆAÐSÉKKALLTBÚIÐ! Meina... þegar eg var stelpa á fallegu Húsavík...þá gerðist ekkert fyrr en á Þorláksmessu og jólin voru alltaf yndisleg ja...líklega var elskulegu múttan og pabbi samt búin að versla gjafirnar og matinn
Gleðileg jól allir saman ....bráðum kemur jólastund
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
12.12.2012 | 15:24
fátt er svo með öllu illt að ekki boði e-ð gott
Nei..var nú ekki ða vinna í Lottóinu I wish... en nú er bara JUST ONE MORE TEST TO GO og það eru góðu fréttinar... en hinsvegar að ef einhver trúir því að það geti komið fyrri hjá mér að talvan hafi farið í annað hjartastopp á sinni stuttu ævi ... já, þá má hinn sami bara trúa því... Fór með hana á bráðamóttökuna áðan ...sagði þeim í móttökunni að ef ég væri ekki svona fúl með þetta þa´væri ég örugglega grenjandi ...og hún er að bíða eftir að fara í hjartaþræðingu.... Ég fæ bara viðhald á meðan...og finnst svona smá einsog ég sé að halda framhjá... en ég er nú orðin svo klár eftir önnina í allskyns greiningum og vildi að Mr. Teits hefði verið hjá mér í gær þegar ég var að sjúkddómsgreina hana...og svo aftru þegar ég fékk símtal frá "dokksanum" hvað væri að ...ég semsagt greindi þetta tilfelli rétt...en brást ekki alveg nógu hratt við..einsog sumir gera með alverleg einkenni..bíða bara aðeins og gá hvort lagist ekki... þetta semsagt var mjög brátt tilfelli ..byrjaði að finna einkenni í fyrradag...svo versnuðu þau í gær og í morgun var flatt línurit...og dugði ekki að gefa hnoð eða blása.... en það er semsagt verið að panta nýtt hjarta í hana blessaða...svo hún getur andað eðlilega von bráðar..því þetta hjarta sér um öndunina... eiginlega frekar lungað í henni...svo það er bara gOTT að Teitsson var ekki hér núna ...MJÖG,mjög SLÆMT að rugla saman hjarta og lunga sko ... En þetta er EKKI það sem maður óskar sér í prófatíð , þegar ALLT námsefnið manns er meira og minna þarna inni... en ég á svo elskulegar bekkjarsystur sem allt vilja nú fyrir mig gera og eru ...þannig að nú get ég byrjað að lesa undir næsta próf sem er það S'IÐASTA á þessu ári sama hvernig útkoman verður... VONA svo innilega ða þurfi ekki að byrja nýtt ár með upptöku, en geri það sem gera þarf..það er bara þannig
en fyrst eitt frábært sem kemur mér í lag og tölvunni vonandi sem fyrst
Bloggar | Breytt s.d. kl. 15:32 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)