Bloggfærslur mánaðarins, apríl 2013

Sumargjöfin mín

Fyrsti dagur þessa sumars 2013 rennur í hlað með skínandi hvítum flygsum sem svífa mjúklega í loftinu og njóta þess að falla létt til jarðar Cool Verð að viðurkenna að mikið er ég farin að ÞRÁ GULU himnanöfnu mína....Við erum sko góðar vinkonur nöfnurnar.

Eftir þvílíkar draumfarir næturinnar fannst mér ég ekki geta leyft mér lengur að slæpast og sofa (var nú búin að stilla klukkuna á 10 samt) Shocking En ég fór nú fram og var búin að hlakka til síðan ég sofnaði að vakna og fá mér þann mesta dýryndis morgunsafa sem ég veit... Hann gæti sko heitið Himnesk sæla og öll þau lýsingarorð sem á eftir gætu komið og ekkert þeirra væri ofaukið  Tounge

Jájá..JÁ! Hvað þá? ... Ég skvetti ananas/kókos safa í könnuna, GÓÐRI lúku af spínat út í, frostnir ananasbitar fengu flugferð ofaní, vænn biti engiferfór ásamt hálfu epli fóru undir hnífinn i aðeins minni parta og fengu svo skutl sömu leið og annað sem upp er talið....Whistling Mmmmmmmmm... fæ vatn í munninn af tilhugsuninn hvað ég hlakkaði mikið til ða fá mér fyrsta sopann...þetta er nefninlega drykkur sem maður nýtur að smjatta á og sleikir útum Smile....

Semsagt...Þessi dásemdar sumardrykkur (sem ég er nú oft búin að fá mér og var aðalbústið mitt allan marsmánuðinn) breyttist nú aðeins í meðhöndlun.... Allt saman  komið í blandarann, sem þeir sem muna eftir að hafa lesið um hér í fyrravetur ætti LÖÖÖNGU að vera úrbræddur og ónýtur eftir boost-ið ákveðinn morgun..óóómæ W00t og það gerðist ekki bara einu sinni , heldur hefur gerst aftur...

Því varð ég ekkert endilega mög undrandi þegar ekkert gerðist þegar ég  setti blandarann í gang...Brrrr... ??? Ekkkert hljóð og enginn titringur Blush.. BbRrrrr..... ? Ekkert hljóð og engin titringur...ég tékkaði hvort örugglega rétta snúran væri nú tengd og auðvitað var hún það...meina, hver myndi trúa því að ég setti vitlausa snúru í samband og héldi svo að blandarinn væri ónýtur ?.. allavega ég sjálf hehe Grin

Semsagt... óvirkur blandari fullur af spínati,ananas, epli og engifer svamlandi í ananas/kókos baði... Þessu varð nú bara að hella yfir í stóra skál... safinn drukkinn úr glasi og hitt borðað með litlum gafli, safalegið og gott...Mmmmmm... bara ljómandi ágætt, sleikjandi safann af spínatblöðunum áður en þau voru étin ... Wink

Þetta þýðir ...að ég fer á morgun og kaupi sumargjöf ársins frá mér til mín... það verður nýr BLENDER ..Bon apetit!

Sumargjöfin mín  til ykkar er hinsvegar þetta magnaða lag með Pink Floyd Heart

Gleðilegt sumarInLove

 


Góður svæfingarlæknir

Ég myndi nú flokka þetta undir svæfingarlækni af bestu gerð (sem hann reyndar pottþétt er...hefur svæft mig nokkrum sinnum) Tounge... Þannig er að ég var að hlusta á fyrirlestur um svæfingar og svæfingarlyf. Var orðin smá þreytt af að sitja svo ég tók nú tölvuna með mér inn í rúm og ætlaði að hlusta þar. Woundering  Er ég þá varla búin að koma mér fyrir og kveikja á fyrirlestrinum, sem er reyndar mög góður og fróðlegur...en svo bara man ég ekki söguna meir.... er að velta fyrir mér hvort áhrifin af Flunitrazepan (valda glelymsku í nokkrar klst.) hafi komist beint í gegnum tölvuna ...Var að hlusta /lesa um það núna áðan Smile En allavega kláraðist fyrirlesturinn þó ég muni nú ekki orð, því talvan mín var orðin straumlaus þegar ég vaknaði Tounge.... en ég svaf einsog bangsi og vaknaði eins og vekjaraklukka ...fór FRAM með tölvuna, skellti henni í samband og var að klára hlusta núna og man ekki eftir að hafa heyrt þetta áður, sem er þá búið að kenna mér að það þýðir lítið að hlusta á námsefnið sitt sofandi Sleeping

 
index.jpg

Well...næsti fyrirlestur í gang... best að halda sér vakandi... er allavega ekki um svefnlyf 

 Whistling


Biblíulestur

 

 Þessi rafbók er orðin Biblían mín Cool takk fyrir pent. 

Helgi Jónas Guðfinnsson höfundur þessarar rafbókar tekst að segja mér það sem ég VISSI - en ég hlustaði ekki..tekst að fá mig til að gera það sem ég VISSI að ég þyrfti að gera - en gerði samt EKKI..tekst að fá mig til að fara í SJÁLFSSKOÐUN- sem ég hef alltaf hummað fram af mér þar til SEINNA..honum tekst að fá mig til að gera SKRIFLEG MARKMIÐ- hingað til hef ég bara haft þau í huganum, og þá er svo auðvelt að FRESTA þeim eða BREYTA þeim.... 

Þetta er hægt að nota á öllum sviðum, ekki bara mataræði og hreyfingu Whistling

Honum tekst með þessari bók að fá mig á hverri bls. til að vilja lesa næstu bls.  og gera það sem á henni stendur Smile 

Þassvegna get ég ekki annað en leyft fleirum að fá tækifæri til ða lesa þetta og kannski verður þetta orðin biblía hjá fleirum eftir lesturinn Tounge I have just found ...what I've been looking for Halo

http://www.metabolic.is/skrar/Rafb%C3%B3k_FBgj%C3%B6f.pdf

 

besti málshátturinn...

Besti málshátturinn sem ég heyrði í gær kom af vörum yngsta sonarins Wink ....en við vorum að ræða um ferminguna og fermingargjöfina sem kemur í ljós eftir daginn í dag hvort geti orðið að veruleika Whistling en hann sagði: "ég ætla búast við hinu versta...en vona það besta" Grin Snillingur...ég vona líka það besta..annars er þetta allt gott sko Cool

En efst á óskalistanum hjá drengnum er hér: 

http://www.sport.is/handbolti/2013/03/05/kynning-handboltaskoli-i-kiel-i-thyskalandi/

og er hann efstur á biðlista...örugglega alger snilld og ég vona einsog hann, þ.e. það besta Smile


Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband