Örsaga úr lífi Dollu

 Hverju skyldi  ég hafa lent í áðan meðan ég  beið eftir að Inga  vinkona myndi sækja mig ?

jerimíjas, hún var svona á síðustu stundu svo ég sagði henni að ég myndi bara labba á móti henni .... og þá byrjar sagan :

 

Ég fer út og allt í lagi með það...fékk símtal frá Helgu vinkonu og við erum bara að spjalla Smile

..langt síðan heyrði í henni ég segi henni að ég sé gangandi í Skógarlundinn í svelli og kolsvarta myrkri...ekki uppá gangstétt,var bara í kantinum svo Inga mín sæi mig nú örugglega þegar hún kæmi á móti mér... ég í svartri úlpu og buxum í myrkrinu ÁN nokkurs endurskyns nema kannski á íþróttaskónum sem ég var með í fanginu..... Vorum nefninlega á leið í BOTTOMLIFT ...ætlum sko að tæta utanaf okkar flottu bossum á næstu vikunum Cool

 

jæja... ég er ekki búin að tala lengi við Helgu mína þegar ég sé Ingu koma og gef henni merki, en hún keyrði bara framhjá

.....ég segi þá í símann að  það sé ljótt!,  ég sjáist bara ekki í myrkrinu  Blush

hún bara keyrði framhjá mér..en ég stoppaði og leit á eftir henni...og sá þá að hún stoppaði nú fyrir mér svo ég hljóp til hennar í bílinn og alltaf í símanum á meðan..Helga var með þetta allt í beinni..

..........hehehe.....

híhí...nú fæ ég  kast aftur sko... bara af að hugsa um þetta....Grin ómæ ...

bíllinn stopp og ég komin að honum og opna hurðina og skvera mér inn...og er að fara loka hurðinni þegar  ég  sé að "Inga" er ekkert Inga!!!

Undir stýri situr brosandi maður og vissi ekki alveg hvaðan á sig stóð veðrið... og ég enn í símanum.. lít á manninn og segi..."JIMINN...ÉG er í kolvitlausum bíl"!

hahaha  Tounge

og sprakk úr hlátri..en maðurinn hélt ég væri að stppa sig þegar ég gaf „Ingu" merkið ...

hehehe...

Næsti bíll sem kom var svo hún Inga og sá þegar ég staulaðist út úr hinum bílnum...og skildi ekkert hvaðan ég var að koma og það líka grenjandi úr hlátri hehe.....skrönglaðist þannig,enn í símanum, upp í bíl til hennar... og ætlaði aldrei að geta byrjað að segja henni frá þessu uppátæki.... en Helgu fannst nú gaman að þessu svona í beinni híhíhí....LoL

 

Þetta var nú svona örsaga úr lífi Dollu ...pínu típískt ég...


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ásdís Sigurðardóttir

Skemmtileg ertu að vanda  :)  sé þetta alveg fyrir mér 

Ásdís Sigurðardóttir, 16.1.2013 kl. 12:29

2 identicon

hahaha Dolla þú ert ekkert venjuleg :D

Inga Maren (IP-tala skráð) 16.1.2013 kl. 14:26

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband