Bloggfærslur mánaðarins, desember 2011

inn..út..inn........

Þá eru Gogga Jennarnir mínir komnir upp ...Það fer sem betur fer alltaf eitthvað upp á meðan annað fer niður...og svo upp og svo niður...ship...og hoy... Þetta er bara eins og inn...út...inn...inn..út..hahaha...

allt í einu mundi ég eftir reiðhjólalás sem ég átti þegar ég var stelpa (yngri).. hann var svona..maður ýmist ýtti á einhverja takka eða dró þá út ..og minn var einmitt með þessari  röð ...  ÞETTA get ég munað ..eða allavega framkallað án þess að hugsa um það ! Mætti vera þannig með fleira!

Skelfileg niðurstaða staðreynd í 2 fögum..reyndar  átti ég smá von á því...en ekki að hún yrði svona svakaleg...af 102 féllu 56 o g 46 sem náðu...mig vantaði 0,25 til að ná ...arrrrgggg! Devil en spá samt í að vera með fall og  vera yfir meðaleinkunn ( meðaleinkunnin er 4.43)

..Kannski segir hversu erfitt þetta var ... ...jafnvel enn verra í hinu faginu þar sem 79 féllu og 59 náðu! ( voru fleiri í því prófi eða 138 ) þar af flestir með 5!! og ég líka með fall  og samt YFIR meðaleinkunn ( meðaleinkunnin 4.42...en mér líður bara ekkert betur með það því  ef ég hefði frekar sleppt að svara þeim spurningum sem ég vissi ekki í staðinn fyrir að giska sem ég gerði í þessum báðum fögum hefði ég náð...vegna þess að það er dregið niður fyrir röng svör grrrrrrr..... 

Jæja...það er þá líklega best að finna sér e-ð plan B eftir áramót..ætla ekki að leyfa mér að láta þetta trufla mig meira fram yfir jól...gekk ágætlega í hinum fögunum ...en líklega er það ekki nóg úr þessu... hell klásusinn... en það er samt enn (pínu ) smuga... kemur ekki í ljós fyrr en milli jóla og nýárs samt  ! 

 

Jæja, ég get aldrei þagað ..varð að ulla þessu út úr mér  ...en líður nú ekkert betur samt ... eða jú, kannski smá... ég er allavega ekki THE BIGGEST LÚSER Cool  (reyndar var það nú jákvætt í þáttunum ;)

 

Næst blogga ég um eitthvað skemmtilegt  :)


STIMAMJÚKUR og VIÐKUNNANLEGUR við nánari kynni

Rauðnefjaður og veðurbarinn...Innblásinn heilagleika belgískra bruggmunka...en stimamjúkur og viðkunnanlegur við nánari kynni Wink

Hverjum er svona skemmtilega lýst ...væri alveg til í að kynnast honum aðeins nánarTounge en læt stutt kynni mín af honum duga...allavega í kvöld en  þau voru bara góð...Aldrei að vita nema ég bjóði honum til mín aftur ............ En mér dugar einn í einu svo ég  fæ mér ekki annan strax allavega.......honum tókst m.a.s. að hita mig aðeins upp en ég vildi ekki hleypa honum lengra en það ..ekki svona  við fyrstu kynniWhistling

a.m.k.  snerti ég ekki á honum stútinn með vörunum... heldur sá til þess að hans innihald kæmist í mig í á annan hátt og ég naut þess að  finna af honum lyktina á meðan ég lék mér að því að láta renna úr henni ..þeirri sem umlykur hann ....yfir í gott glas.....Joyful

Þetta er reyndar lýsing á honum Stekkjastaur  sem kominn er í bjórflöskur og þegar tappinn er tekinn af kemur andi hans úr flöskunni W00t....og stoppaði hjá mér góða stund...meðan ég leyfði honum að renna úr flöskunni  í glas....sagði hann mér ýmsar sögur úr fjöllunum og sveitunum... og eina ef ekki tvær héðan úr bænum.....líklega flestar  lognar en góðar samt svona við eldhúsborðið Cool

já ELDHÚSBORÐIÐ mitt sem ég er búin að vera í næstum allt kvöld að laga til á..án djóks.....þar var kominn heill heimur útaf fyrir sig .....eeen

ég settist svo við borðið FÍNA sem  kom bara býsna vel undan önninni en ég var að sjá það í fyrsta skipti eiginlega síðan í lok ágúst þar sem það hefur verið þakið bókum, möppum, blöðum og tölvu... Það er enginn lygi sem ég var búin að halda fram að það yrði "næstum "því nóg að ganga frá öllu skóladótinu og þá væri jólahreingerningin afstaðin!  En allavega er kominn jólalöber á borðið..búin að kveikja á kerti án þess að  eiga á hættu að bækurnar fuðri upp  og ég þarf ekki einu sinni að horfa á þær  aftur  á næstunni... wúppwúpp = hjúkk....Og nú verður bara gaman að leggja á borð fyrir mig og mína syni  á matartímum..ekki bara skverað frá einu horni og við troðum okkur á auða blettinn sem myndast FootinMouth

Ótrúlega ánægð með mig samt  að komast sæmilega heil á geði frá þessum lestri öllum saman ...og nú er bara að bíða...og bíða... eftir að fá að vita...eina sem ég veit samt er að ég ætla njóta næstu daga í að dúllast með BH mínum og búa til jól hér heima....................................................................

Adios amigos = gúdbæ my friends 

Hasta La Vista...... 


Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband