JÓLAHVAÐ!

Vá hvað heilinn í manni er merkilegur og klikkaður stundum... já bara STUNDUM- alveg satt... en hvað er að þegar maður er í miðjum próflestri... og fer að hugsa um jólin í FYRRA  Woundering t.d. datt ég niður á aðfangadag sem var  þann 24.desember ( jú einmitt Wink) 2011 kl. 15! Þá kom "jólasveinn" í heimsókn og sagði mér dálítið áður en hann fór aftur...mér brá dálítið  og enn í dag það ekki skil hvað hann sagði þá..reyndar hélt ég á tímabili  ég væri farin að skilja það en kannksi bara einsog  svo margt annað ... manni er ekki ætlað að skilja alla hluti... hvað þá það sem maður heldur að sé e-ð dáltið mikilvægt Sideways

Þessi truflun á lestrinum er over now... þvílíkar disturbiur sem komast að í manns haus stundum ... en áfram með lestur núna Cool  JÓLAHVAÐ? Við önsumussiggi W00t Jólajóla......

p.s.  ég er ekki hjá vodafone samt Tounge


Það kom að því eftir 14 ár

Það kom að því já...

Fór til augnlæknis fyrir 14 árum af því mér fannst ég vera farin að sjá e-ð skrítið ef ég var mikið að rýna Shocking ekki voru það námsbækurnar þá samt...en prjónadót, saumadúll og fleira föndur svona..en  doktornum fannst ég með svona líka fín augu og ekkert athugavert við sjónina, en sagði samt...komdu aftur eftir 10 ár og þá skal ég LOFA þér að fá gleraugu! Bara eins og það væri óskadraumurinn og efst á gjafalistanum Tounge..en nú eru komin 14 ár og komið að því að ég verð að viðurkenna þetta ..ekki það að ég hefði alveg verið til í að geyma það lengur...en þetta er svosem allt í lagi Cool nema er STRAX farin að vera með ekta einkenni... Stóð upp núna áðan t.d. og náði mér í kaffi og fór á pisserí í leiðinni...tók af mér gelraugun því ég fæ svima að hafa þau ef ég er að ganga...semsagt eingöngu lesgleraugu svo við höfum það nú á hreinu Wink... þegar ég kom aftur ætlaði ég að setja þau á mig...nei, úbbss...hvar lagði ég þau frá mér?   Ekki á eldhúsborðið, nei! ...ekki á eldhúsbekkinn hjá kaffikönnunni eða vaskinum, nei! ..ekki inni á baði, nei! ... leit samt aðeins í spegilinn á leiðinni þegar var þar...og hvað sá ég ? Júbbsss.. var með þau á hausnum Whistling hvað hefur maðru oft heyrt um fólk sem leitar að þeim um allt og er jafnvel með þau á nefinu hahaha...

En jæja...þá er þessi pása búin  og áfram með lesturinn  .. Njótið þess að vera til... sama hvað...það er alltaf, já! ALLTAF hægt að sjá  björtu hliðarnar á málunum  InLove ég er sko alltaf að komast að því á hverjum einasta degi  Grin

 


Styrkur mælist ekki bara í vöðvakrafti!

OMG!  Er að gera heljarverkefni...en ég bara sit og græt Crying meðan ég les sjúkrasögu ákveðinnar manneskju sem mér finnst hetja og dái fyrir að vera ekki komin inn á geðdeild miðað við áratuga hrylling á margan hátt. Ég væri örugglega búin að gefast upp í sömu sporum.. Þó maður viti hvernig staðan er, þá er skrýtið hve það verður raunverulegra við að lesa um það Errm 

Ég er semsagt að skrá nákvæma upplýsingasöfnun sem ég þarf svo að gera greiningar og meðferðir við...Það verður e-ð !  En segi það aftur og stend við að sumir eru meiri hetjur en aðrir og hafa sko heldur betur bitið á jaxlana alla saman InLove En..nú er ég hætt að gráta yfir þessu öllu saman (í bili..) og  get haldið áfram ... en ég er jafnvel komin með hugmynd að lokaverkefninu eftir 2 ár ef mér tekst klambrast gegnum þetta ár og næsta Whistling

ég Heart þig STERKA kona sem þú ert!


Hlýt að verða 100 ára því ég er komin í súkkulaðibindindi og hitt....

....það er allavega í algeru lágmarki Shocking

En þar sem ég er að gera rannsóknarritgerð um blóðgjafir samkynhneigðra .. hef ég rekist á og  lesið ýmislegt forvitnilegt og fordómafullt...en einmitt rakst á þessar upplýsingar í  tenglsum við heimildaleit..þó þetta nýtist mér ekki í henni(ritgerðinni) langaði mig endilega að deila þessari skemmtilegu grein með ykkur...( Hefði kannksi átt að láta rannsóknarspurninguna vera :"Hvort er hættulegra kynlíf eða súkkulaði?" )

Þetta er dæmi um SKEMMTILEGA FRÆÐSLU ! Svona á að gera hana Smile

"Öruggara kynlíf
 
Kynlíf er yndislegt en það getur líka verið stórhættulegt og jafnvel banvænt... dálítið eins og súkkulaði! Munurinn á þessu tvennu er þó sá að maður þarf að vera asskoti duglegur við að borða súkkulaði og gera það ansi oft til þess að það dragi mann til dauða (fylgikvillar offitu eru margir hverjir banvænir) en einn einasti dráttur getur drepið mann.

 

Kynlífstengdir smitsjúkdómar eru þó ekki allir banvænir en þeir sem drepa ekki geta haft leiðinlegar afleiðingar eins og ófrjósemi. Þetta er nú samt ekki svo voðalegt og við skulum ekki grenja mikið því rétt eins og það má hlaupa af sér súkkulaðið má verjast kynlífstengdum smitsjúkdómum með nokkuð einföldum aðferðum.

 

Öruggara
Umræðan um öguggt kynlíf komst á flug í kjölfar uppgötvunar HIV veirunnar og smitleiða hennar. Í dag er ekki lengur talað um öruggt kynlíf því talið er að kynlíf tveggja eða fleiri einstaklinga geti aldrei talist 100% öruggt. Hins vegar er hægt að minnka líkur á smiti stórlega með því að stunda það sem kallast núna ÖRUGGARA kynlíf.

 

Að vísu er til ein tegund kynlífs sem má telja algjörlega örugga, en það er gamla góða sjálfsfróunin. Svoleiðis kynlíf er algjörlega öruggt með tilliti til sjúkdóma og meira að segja líka þungunar (í það minnsta eru um tvö þúsund ár síðan að eingetinn einstaklingur fæddist hér á jörðu).

 

Þeir sem kjósa að stunda kynlíf með öðrum en sjálfum sér eiga semsagt allir á hættu að smitast af sjúkdómum. Gildir þá einu hvort um kynlíf einstaklinga af sitt hvoru kyninu er að ræða eða kynlíf samkynhneigðra. Það er ekki rétt að lesbíur séu stikkfrí því þær geta alveg eins smitað hvor aðra í sínu kynlífi."

 Skemmtileg hún Ragnheiður Eiríksdóttir... svona á að skrifa til að ná að halda athyglinni ... Wink

........................ Svo er  heillangur listi í öryggismálum líka ... sem fylgdi þessari skemmtilegu grein sem ég sá á heimasíðu Heilbrigðisstofnun Þingeyinga Grin  Alltaf sagt að við erum með húmor þarna sem komum úr Þingeyjarsýslunni hehe..............................................

hér er þetta í heild sinni :

http://www.heilhus.is/default.asp?sid_id=5415&tre_rod=&tid=7&vef_id=90&GRS_ID=974


Ég þori alveg að viðurkenna að ég get nú skipt stundum um skoðun

Jájá...maður hefur  farið með litlu krúttlegu  eggjakörfuna með litlu sætu eggjabökkunum í Höllina ..og Hallargarðinn til að „spjalla" við púddurnar og týna egg ...ogguponsulítil og sæt egg sem eru soðin  eða notuð í bakkelsi með kaffinu þann daginn Tounge Haninn galar nú sem aldrei fyrr alveg lon og don ...enda er nú búið að setja hitaperu inn til hans og  allra púddanna hans svo væsi ekki um þau í hríðinni á dimmum vetrardögum og frostnóttum Smile   Jú...skal bara viðurkenna það að ég hef  leyft mér að skipta um skoðun frá því þetta kom fyrst upp... WHAT!  ....galandi hani og verpandi hænur.... hvað er málið???  Þannig hugsaði ég fyrst...langaði miklu meira í aðra sæta kisu eins og var hjá okkur einu sinni...En þetta er bara mjög skemmtilegt... nema fyrir grey íbúana sem búa alveg upp við Hallargarðinn og eru ekki svo "heppnir" að vera alveg heyrnarlausir W00t því blessaður kóngurinn í hænsnagarðinum galar hátt og vel.

 

http://www.akureyrivikublad.is/akvbl/frettir/2012/10/30/haensnahollin-hlaut-nyskopunarverdlaun/

 

Hlíð hjúkrunarheimili er eiginlega hálfgerð „Örkin hans Nóa" því þar hefur verið  kisan litla hún Perla sem reyndar stækkaði fljótt en þvílíkur gleðigjafi hún var fyrir marga...maður sá LÍFSNEISTA glampa  í annars brostnum augum InLove alveg ótrúlegt ða fylgjast með því gerast..og hún fannst undir sæng hér og þar..aðallega þar  , nema gleðin var ekki jafn mikil þegar hún kom inn með allavega fugla ..veit ekki með mýs...einhvern tímann  komst hún  í páfagaukana á efri hæðinni ...en nú eru þar  aðrir fuglar  , svo angalitlir og gefa frá sér hljóð sem minna mig á ýlubangsa úr gúmmíi sem yngri systur mínar áttu sem ungabörn ...en annar þeirra reyndar hvarf reyndar án hálpar frá ketti yfir móðuna miklu fyrir helgina ... á enn öðrum stað er kanína og  hundar eru velkomnir í heimsókn  um alla ganga og hafa gert það...m.a.s. sérstakir heimsóknarhundar sem koma stundum  Halo

Örugglega eru allskonar fleiri dýr í húsinu..jújú..var nú næstum búin að gleyma gullfiskunum sem svamla  í risabúri í aðalforstofu eða holi hússins, en  fyrir nokkrum árum var og reyndar er enn (bara galtóm af lífi) gullfiskatjörn úti með gosbrunn og flotteríi...en þeir voru ekta ..rauðir og glæsilegir og  komu fljúgandi að sunnan Whistling...örugglega þess vegna sem Mábbi mávur og vinir hans  komust á slóðina hvar dýrindis hádegismatur væri svamlandi svo það leið ekki langur tími uns þeir hurfu sem magafóður  og ekkert síðan til þeirra sést ..né frést ...nema það séu ÞEIR sem nú laða til sín ferðalanga í heitu „krókódílatjörnina" við Húsavík... sá nokkra þar í sumar...gullfiska sko..ekki krókódíla  Cool En nú skiptast dúfur á að trítla á stéttinni framan við gosbrunninn eða sitja á húsþakinu og fylgjast með mannaferðum ..þá aðallega púttvellinum í garðinum og  taka út hvernig menn bera sig að með púttarann ...

Semsagt... Aldrei lognmollan á mínum vinnustað ef einhverjum skyldi detta það í hug...


einkamal.is...er EKKI málið ;)

BWAhahahahaa...Lenti í þessu fyrir 2 árum ! hahahahaha...OMG! var NÆSTUM búin að gleyma því...en vá,sjúddirallýrei..sjúddirallyræ.. hvað mig langaði að hlaupa í burtu þegar ég sá manninn...gerði það nú næstum því samt , því ég labbaði svo hratt til að klára göngutúrinnaf sem allra fyrst og var næstum búin að ganga frá aumingja manngreyinu sem þóttist vera voðalega mikill göngugarpur í spjöllum sem ég hafði átt við hann áður en við hittumst  í þetta fyrsta og EINA skipti....og það passaði hvorki aldur, útlit , né nokkuð annað hehe.. en svona eftriá ..fyrst hann var ekki mannæta og ég lifði þetta af og hef hlegið af nokkrum sinnum síðan þá var þetta Blind date allavega efni í örsögu og nokkur hlátursköst...en don't believe everything you heyrir, sérð eða lest Cool sérstaklega ekki á EM sem ég hef ekki farið inná síðan 2011...Veit ekkert hvernig það er núna..kannski er fólk með myndir af sér og réttar upplýsingar núna, þó ég efist um það Wink

tek samt fram að það er líka alveg til fólk sem segir satt ...og önnur sem segir kannski ekki alveg satt..en er heldur ekki að koma með rangar staðreyndir Blush

http://bleikt.pressan.is/lesa/internetstefnumot-eru-storhaettuleg-myndband/ 

En þetta er funny video..gat ekki sett það innsvo verðið að gera copy/paste á þennan link bara hér fyrir ofan LoL

 


GAMAN/SAMAN

... ÉG vann mér inn miða fyrir tvo á þessa dásemdarveislu Grin og er í vandræðum með hverjum ég á að bjóða með mér Woundering  ...Til þess að  ég þurfi ekki að klóra skallablett í hausinn á mér eða gera úllen dúllen doff... Þá ætla ég að óska eftir  tónleikavin hér  til að fara með mér... sá/sú sem  getur  sannfært mig um að verði skemmtilegur a.m.k.þetta kvöld  Tounge sendi mér skilaboð hér fyrir neðan, eða á facebook ...ekkert flókið ..Hlakka nefninlega svo til að fara og lofa að ÉG verð SKEMMTILEG a.m.k. þetta kvöld Cool 

 

Rokkveisla aldarinnar

Klassískt gullaldarrokk sem allir sannir rokkunnendur verða að upplifa, aftur og aftur.

Margir af bestu rokksöngvurum þjóðarinnar leiða saman hesta sína ásamt magnaðri hljómsveit. Magni, Eyþór Ingi, Páll Rósinkranz, Pétur Guðmunds  og Biggi Haralds flytja rjómann af bestu rokklögum allra tíma.

Stærstu lög rokksögunnar verða flutt á tónleikunum.  Meðal annars lög Deep Purple, Whitesnake, KISS, AC/DC, KINKS, CCR, ásamt fjölda annarra. 

Hljómsveitina Tyrkja-Guddu skipa:
Einar Þór Jóhannsson  gítar
Sigurgeir Sigmundsson gítar
Birgir Nielsen trommur
Ingimundur Óskarsson bassi
Stefán Örn Gunnlaugsson hljómborð


Eitt af mínum uppáhalds síðan heyrði það fyrst

Þarf engin orð með þessu - Just Enjoy  Smile  Lagið sjálft byrjar eftri 1 1/2 mín... en  mér finnst svo gaman að sjá hvað þeir njóta þess enn að spila og byrjunin er góð  Whistling

URGENT

You're not shy, you get around
You wanna fly, don't want your feet on the ground
You stay up, you won't come down
You wanna live, you wanna move to the sound
Got fire, in your veins, burnin' hot, but you don't feel the pain
Your desire, is insane, you can't stop, until you do it again
But sometimes I wonder as I look in your eyes
That maybe you're thinking of some other guy
But I know, yes I know, how to treat you right
That's why you call me in the middle of the night

You say it's urgent, so urgent, so-oh-oh urgent...

Just you wait and see, how urgent, my love can be, it's urgent...

You play tricks, on my mind, you're everywhere

But you're so hard to find, you're not warm, or sentimental
You're so extreme, you can be so temperamental
But I'm not looking for a love that will last
I know what I need and I need it fast
Yeah, there's one thing in common that we both share
That's a need for for each other anytime, anywhere

It gets so urgent, so urgent, you know it's, urgent

I wanna tell you it's the same for me, ooh-oooh, so-oh-oh urgent...
Just you wait and see, how urgent, our love can be, it's urgent...

You say it's urgent, make it fast, make it urgent

Do it quick, do it urgent, gotta rush, make it urgent...Want it quick
Urgent, urgent, emergency...Urgent, urgent, emergency...
Urgent, urgent, urgent, urgent, emergency
Urgent, urgent, urgent, urgent, emergency, so urgent, emergency
Emer-(ooh-oooh) emer-(ooh-oooh) emer-(ooh-oooh) It's urgent
So urgent...

 


séð af Bleika skýinu

 Engla  kroppar ....Fátt ef nokkuð sem þá toppar..

nú ég fer á  skýið mitt Bleika...Vúpps, þar mér finnst svo gott að leika ....

Skýið uppi  bíður með fjaðrirnar sindrandi...Stjörnurnar líka þar blika tindrandi...

einn og einn hrasar svo mattast hans gljái... en hann rís upp aftur og vill að ég sjái...

þegar breytist úr steini í gull hans hjarta ...með hlýjunni þar sést í framtíð bjarta...

þar er pláss fyrir alla sem vilja henni skarta... það er framtíðin sem  nú skal  starta....


Draumaráðningu takk

Fékk martröð í nótt í fyrsta skipti síðan man ekki hvenær svo ég hrökklaðist á fætur áður en klukkan hringdi  og fékk mér muy buenos café og  skveraði svo af  spurningunum sem mig dreymdi í martröðinni að ég hefði gleymt að gera (þarf ekki ða skila þeim fyrr en á mánudagskvöldið ...en er BÚIN að því , var að senda þær frá mér Grin ...þá er ég allavega ekki áhyggjur af því...nóg að taka af öðru!

í þessum draumi var fullt af fólki sem ég bæði þekki og bara kannast við og vissi ekki að væri í skóla, en ÞAU voru sko öll búin með þetta og í draumnum ...þá hafði ég ekki hugmynd um hvaða dagur né dagsetning væri Shocking...komst að því þegar ég talaði við þetta fólk alltsaman .... oboy!

En aðalmartröðin var samt ekki sú  að ég væri búin að missa 10% af einkunn vetrarins með þessu spurningarklúðri heldur það að  mig dreymdi konu sem dó nú í sumar...var á besta aldri en var með hræðilegan sjúkdóm sem ég óska engum að fá... Algerlega yndisleg kona og fjölskylda hennar öll....en í draumnum var hún bundin hjólastól  , alveg lömuð og ég ætlaði að fara með hana e-ð man ekki núna hvert ferðinni var heitið... og sem BETUR fer breiddi ég yfir hana gott og stórt teppi þegar ég var búin að koma henni fyrir ...því ég þurfti að gera e-ð smá áður en við færum af stað...það endaði úr smáu í stórt...því allt í einu var ég komin í fjallgöngu og svo sund  þegar ég mundi eftir henni , aleinni...úti..í hjólastólnum ...og gat ekkert gert til að bjarga sér!   Þetta var sko martröð að upplifa svona afbrot ...úffff...ég stökk uppúr lauginni og á spaninu til hennar... en þá var nú sem betur fer búið að bjarga henni og hún var ekki reið við mig einsog hún hefði með réttu átt að vera sko Blush ... En mikið var ég fegin að vakna og var ótrúlega fegin þegar ég vissi að þetta var draumur og eiginlega enn fegnari að ég var alveg með á hreinu hvaða dagur var og m.a.s. dagsetning hahaha Smile....  í draumnum var kominn minnir mig 23.okt...allavega tuttugasti og e-ð...einsog tíminn sé ekki nógu fljótur að líða.. en eins gott að vera vel vakandi þegar þeir dagar breasta á...eða hvað....

Og nú vantar mig draumaráðningu plís Halo

What‘s going on in my head !


« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband