Bloggfærslur mánaðarins, júní 2011
30.6.2011 | 22:20
Síðan Skein Sól !
Það kom að því Jibbedirí ..Sunshine- sunshine reggae og Lífið er yndislegt , ég geri það sem ég vil .... en nú eru mörg andlit og kroppar hér norðan heiða óvön sólinni eftir alltof langa fjarveru hennar svo ansi margir eru nú býsna RED skinnaðir eftir daginn Eins gott að muna bera á fótboltamanninn í fyrramálið ..hann er vel bakaður í framan .. næsti leikur kl.9 í fyrramálið...Ekki alveg gengið að óskum en ekki allt búið enn 4 leikir eftir ...Annars er aðallega að hafa gaman að þessu, frábær stemmnig á svæðinu og í bænum ..bærinn fullur af fólki skreytt öllum félagslitunum og syngjandi sælir og glaðir strákar um allt :)
Þetta er bara rétt að byrja- Fjörið heldur áfram næstu daga og bætist þá enn í hópinn á morgun þar sem Stóru Pollarnir mæta á Þórssvæðið og mála bæinn í fleiri litum .. Say No More about that
Líklegt að maður eigi eftri að láta aðeins sjá sig þar líka ,
en KVÖLDSÓLIN fallega glampar yfir bænum og nú SJÁST fjallatoppar í allar áttir sem eru búnir að vera vel vafðir í þoku í margar vikur ... LOVE IT Sakna bara Dreka Ljónsins míns Farin að kaupa rauðskinnavörn
Bloggar | Breytt s.d. kl. 23:11 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
26.6.2011 | 15:18
Frumbyggjar að sjá hvíta menn í fyrsta sinn !
http://www.bleikt.is/lesa/otrulegirfundirfrumbyggjaoghvitramannaifyrstasinnmyndband
Var að horfa á þetta myndband og það hafði meiri áhrif á mig en flestar bíómyndir sem ég hef horft á ...váááá....Þetta er ótrúlegt að sjá og enn eru að finnast frumbyggjahópar sem hafa verið algerlega einangraðir , þetta er að vísu ekki alveg nýfundnir fumbyggjar en myndirnar haafa ekki verið sýndar fyrr en mjög nýlega.
En say No More..bara njóta þess að horfa á frá byrjun til enda...er tæpar 15 mín
Næ ekki að setja slóðina inn öðruvísi, virkar ekki í gegnum youtube
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
24.6.2011 | 18:10
Arnór og Hreiðar að gifta sig
Verð nú að þakka þeim Arnóri Atla og Hreiðari Leví Guðmunds fyrir að vera gifta sig um helgina hér fyrir norðan
Því þessvegna í og með var haldinn þessi skemmtilegi handboltaskóli í KA heimilinu hér á Akureyri núna þessa vikuna..Þar hefur juniorinn minn ásamt fullt af öðrum strákum og stelpum verið á 2ja tíma æfingum og fræðslufyrirlestrum af ýmsu tagi og hitt nokkra af leikmönnum Akureyrar liðsins ásamt Arnóri Atla 1.daginn og svo komu Guðjón Valur, Björgvin Páll, Ásgeir og Oddur Grétars í dag á lokadeginum
Eintóm gleði hjá krökkunum við þá heimsókn þar sem þeir gáfu sér góðan tíma að leiðbeina þeim og fékk minn sérstaka markmannsæfingu hjá nafna sínum sem tilkynnti að hann yrði ánægður að fá hann sem arftaka síðar , þá gæti hann loks komist í frí Svo var safnað eiginhandaráritunum á allt sem tiltækt var... eins og bolinn ( þannig að hann verður ekki þveginn oftar ), handboltaskóna ( sagði honum að hann mætti þá ekki vaxa upp úr þeim ) og síðast en ekki síst mynd sem hefur verið í miklu uppáhaldi á mínu heimili í 11 ár!, Þar sem allir gaurarnir mínir eru með Guðjóni Val Þessi mynd er búinn að vera í miklu uppáhaldi á heimilinu og fær sérstaka stöðu á góðum stað í öllum leikjum hjá Strákunum okkar og hefur hún líka beðið bíða eftir Guðjóni síðan til að fá áritun og bara aukabónus að fá hana frá fleirum . Minn prins alveg hreint í skýjunum með þetta...og þá er hægt að snúa sér aftur að fótboltanum , þar sem N1 mótið byrjar í næstu viku Meira um það síðar.
ÉG ætla hinsvegar í skemmtilegan vinkonuhitting í kvöld að njóta skemmtilegs félagsskapar og drekka rautt Ætla samt ekkert að mála bæinn rauðan
Hasta la vista !
Bloggar | Breytt 29.6.2011 kl. 23:52 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
22.6.2011 | 18:25
Verndarengill
Minn verndarengill ert þú Dolla amma
Þú dóst svo ung við að verða mamma
stjórnar mér ekki en reynir mig að leiða
Gerir eins og getur brautina mína greiða
Þó aldrei hafi séð þig oft ég þín sakna
úr draumunum langar mig stundum ekki að vakna
Oft hefur verið með mér á mínum næturvöktum
kannski ég hafi eitthvað erft af þínum töktum
Elsku amma ég veit þú ert hér
áfram þú verður og fylgir mér
Þó lengi millinafninu ég vildi hafna
get ég stolt sagt að ég sé þín nafna
Ljóð | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
22.6.2011 | 13:54
Hver vill hjálpa mér að leita?
Góðan og blessaðan daginn!
Hvar er hún þessi GULA þið vitið...hringlótt og heit og kemur öllum ( allavega mér ) í sólskynsskap :) Sama hvaða veðurkort ég skoða, þá er hún sýnd í öllu sýnu veldi í dag en get ekki orðið vör við hana samt þegar horfi út !
Vonandi mætir hún í staðinn í næstu viku þegar spáð er RIGNINGU og 3ja stiga hita á N1 mótinu sem hefst þá !!! ÉG er allavega tilbúin að lána afnot af þurrkaranum mínum þá daga sem það fer fram svo hægt sé að setja flottu gaurana í þurra búninga milli leikja ..brrr...þó enginn sé verri þótt vökni í gegn er ekki það besta að vera að keppa allan daginn og vera í kulda og bleytu , þó þeir séu heppnir og þurfa ekki að gista í tjöldum , skólarnir fullnýttir í gistingu .
En nú þegar ég er að komast í algert svartsýniskast yfir þessu veðri ....hvað er að gerast ?? Get svarið það að nú bara í þessum skrifuðu orðum er þvílíkt að byrta til og ég skelli bjartsýnisgleraugunum á mig þegar ég fer út eftir smástund...
Takk takk hver sá sem hana fann , hún er allavega að rembast mikið til að reyna sýna sig og virðist ætla takast það að mesu...Fundarlaun verða afhent Finnandanum þega hann gefur sig fram
En þá er ég rokin út ...því að eins og með margt annað , þá er ekkert tryggt að vari að eilífu svo maður á njóta meðan hægt er ...Það er allavega víst að það byrtir alltaf til aftur þó maður viti aldrei nákvæmlega hvenær
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
20.6.2011 | 11:19
Hvaða fjöll verða tekin og hvenær
Mikið er það nú dásamleg tilfinning að vera í sumarfríi ..náði m.a.s. að fá smá sumarfíling í skjólinu fyrir norðanáttinni í gær eftir að kom heim af ættarmóti en hjá Afdal Ættinni var þetta skemmtilegasta ættarmót haldið á Steinsstöðum sem er mjög flottur staður til að halda svona , fín aðstaða og NOTALEG gisting innanhúss í eldgömlu en kósý húsi , þar sem herbergin eru svo rúmgóð og fín..fundum ekki fyrir því að vera 4 í 3ja manna herbergi, hefðum auðveldlega getað verið 5 og jafnvel 6! En já, semsagt mikið gaman og mikið grín þar sem 4 kynslóðir skemmtu sér vel í 2*100 ára afmæli afa ög ömmu..(Þau voru án efa bæði á svæðinu sveimandi yfir okkur ) en það var semsagt haldið uppá 200 ára afmæli þeirra fyrr á laugardeginum með kaffihlaðborði þar sem allir komu með einhverja dásemd til að innbyrða og svo mjög góður matur frá staðarhaldara í félagsheimilinu um kvöldið.
En nú er komið að því að ég fari aðeins að skipuleggja hvað ég ætla mér að gera í fríinu annað en þvælast um helgar í hinum og þessum mótum að öllu tagi..ætla aðallega að nota hina dagana í gönguferðir um fjöllin..verð nú að bæta fyrir síðasta sumar en þá var bara gengið á 3 fjöll! Reyndar meira hásininni að kenna en áhugaleysi..vona að hún ( hásinin) verði til friðs núna..ætla byrja á einvherju góðu fjalli í þessari viku og svo allavega 2 í næstu viku..
Allavega eitt ákveðið.. 30.júlí fer ég á Kerlingu 1538 m. 7 tinda ganga.
Kerling er hæsta fjall í byggð á Íslandi - þetta fjall ætla ég að fara með leiðsögn , skilst að maður reyni helst ekki við það öðruvísi svona í fyrsta skipti allavega, en byrjað er við Finnastaði í Eyjafirði og komið niður í Glerárdal niður af Súlum.. verður gaman að fara bara niður Súlurnar, hef klöngrast upp þær áður hehe...
En verð að fara plana hvaða fjall ég tek fljótlega, kannski það verði bara að fara yfir Vaðlaheiðina og inn í Fnjóskárdal í búsatað til Brynju vinkonu- en only ef hún verður á svæðinu ..annars þarf ég að ganga strax til baka aftur
Búin að ákveða hvað verður í dag en þá ætla ég að ganga upp á klettana ofan við Kjarnaskóg og þaðan lengra upp í gamlan skála þar uppfrá ( skálinn heitir örugglega GAMLI..skemmtileg leið sem er farin frá Hömrum og meðfram læknum .. fór þangað 2svar í fyrra , fín ganga.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
17.6.2011 | 22:43
Lazy Day
Hæ hó jibbijei og jibbiijei, það er kominn 17.júní sem þýðir að ég er komin í sumarfrí trallalí
Alger letidagur, til hálf tvö í dag eftir síðustu næturvaktina mína í laaangan tíma..fer ekki að vinna aftur fyrr en 6.ágúst og þá bara fram að skóla sem byrjar 24.ágúst. Er strax farin að hlakka til að takast á við það verkefni.
En já , skellti í pizzusnúða og leyfði því að hefast í nokkra tíma meðan skrapp til að kaupa fóður í ísskápinn sem var farinn að kvarta allverulega undan kæruleysi eigandans með að sinna þörfum hans um áfyllingu
Fékk svo örverpið heim eftir vikudvölina hjá pabbanum - fullur af gleði og sögum af nýjum vinum héðan og þaðan af landinu og frábærum þjálfurum frá Arsenal skólanum ..fannst þeir "GEÐVEIKT " skemmtilegir - ætlar nú að halda sig við Man.United áfram samt hehe.....og hann er strax búin að biðja um að fá eins jólagjöf næst..semsagt gjafabréf í Arsenalskólann sem mér skilst að sé kominn til að vera hér hjá KA allavega næstu 3 árin sem er frábært því hingað koma krakkar af öllu landinu í viku æfingabúðir og þrátt fyrir Skí..veður tókst þetta mjög vel.
Svo er ekki minni spenningur fyrir næstu viku en þá verður handboltaskóli hér þar sem verða 2ja tíma æfingar í eina viku og munu nokkrar stjörnur úr landsliðinu vera þeim til stuðnings ásamt flottum þjálfurum KA í langan tíma Jóa Bjarna og Sævari Árna. Semsagt nóg um að vera hjá "litla" manninum mínum sem mun líklega verða orðinn hærri en ég fyrir haustið
En nú er best að klára græjast fyrir ættarmótið sem ég beilaði á í kvöld og ætla bara í fyrramálið þrátt fyrir að ég viti að ég mun missa af miklu stuði í kvella og nótt en bæti það upp annaðkvöld
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
16.6.2011 | 17:41
Breytti veðrinu :)
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
16.6.2011 | 14:02
Er ekki að verða komið nóg?
ÉG get svarið það, mér getur ekki fundist þetta sniðugt lengur og er ég þó með ansi hreint frekar góðan húmor svona dags daglega, en BOY Ó BOY ! Þetta er einum of mikið af ekki því góða...já ég er semsagt að tala um veðrið ... líklega ekki margt annað sem ég leyfi að hafa svona áhrif á mig og sveiflar manni allan skalann frá A-Ö í tilfinningastöðinni!
Segi bara eins og ein flott sagði hér um árið " ER ALDREI KOMIÐ NÓG " ! Nei ,bara spyr sko.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
15.6.2011 | 09:00
Tjaldbúskapur brrrrrrrrrrrrr.......
Þá er alveg að bresta á SUMARFRÍ og fjörið byrjar með fyrra ættarmótinu sem er að bresta á þar sem STUÐgengi um 100 manns koma saman og mikið veit ég að verður gaman en saaaamt er ég ekki tilbúin í tjaldbúskap í KULDA OG BLEYTU... Svo ég splæsti nú bara í innigistingu fyrir mig og mína ( miklu ódýrara en að kaupa sér fellihýsi..hvað þá hjólhýsi ) og það sem ég hlakka MIKLU meira til núna að fara bara orðin spennt .....Búin að sauma 20 APPELSÍNUGUL buff en appelsínugulur er einmitt liturinn á mínum afleggjara á þessu ættarmóti,af öllum litum , dæmdist þessi á okkur, aldrei verið minn litur samt en líklega er verið að höfða til litarins sem einu sinni var á höfði pabba svona fyrir silfurhærðina hehe....
En hlakka mikið til að sjá og hitta norsku systur mína og hennar afleggjara alla saman og hún ætlar að vera hér á landinu og Víkinni Fögru í 5 vikur - Ætlar sko ekki að missa af hvorugu ættarmótinu né Mærudögunum, skil það líka mjög vel
En nú er það beauty sleep eftir næturvaktina ..vonandi sef ég í allan dag og dett inn í flotta Draumaskóginn, þar sem leynast óvenjulegir Drekar og Ljónshjörtu .....Say No More! svo bara 2 nætur eftir og þá bara HÆ HÓ Jibiijei og Jibbijéi, þá er kominn 17 júní og ég í sumarfrí Trallalí
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)