Verndarengill

Minn verndarengill  ert þú Dolla amma

Þú dóst svo ung við að verða mamma

 stjórnar mér ekki en reynir mig að leiða

Gerir eins og getur brautina mína greiða Halo

 Þó aldrei hafi séð þig oft ég þín sakna

úr draumunum langar mig  stundum ekki  að vakna

Oft hefur verið með mér á mínum  næturvöktum

kannski ég hafi eitthvað erft af þínum töktum Halo

 Elsku amma ég veit þú ert hér

áfram þú verður og fylgir mér 

Þó lengi millinafninu ég vildi hafna

get ég stolt sagt að ég sé þín  nafna Halo

 

 

 

 

 

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ásdís Sigurðardóttir

Já, þú getur svo sannarlega verið stolt af nafni þínu og borið stolt nafnið Dolla, amma þín var hreint út sagt yndisleg og þó ég hafi verið svona ung þegar hún dó, man ég margar stundir með henni og mömmu í eldhúsinu, ég man meira að segja röddina hennar ennþá svo þú getur ímyndar þér hvort hún var ekki eftirminnileg.

Ásdís Sigurðardóttir, 23.6.2011 kl. 12:21

2 Smámynd: Sólveig H Sveinbjörnsdóttir

Æ en dásamlegt að heyra þetta :)

Sólveig H Sveinbjörnsdóttir, 23.6.2011 kl. 13:54

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband