24.8.2011 | 17:20
Sjálfkjörinn formaður .is
Hann byrjaði nú aldeilis með stæl hjá mér þessi 1. skóladagur Ætlaði nú aldeilis að hafa nógan tíma og dúllast þar til ætti að mæta kl.9:05 ...
Var sem betur fer ekki búin að klæða mig þegar fer inn í eldhús og græja mér morgunsheikinn...súkkulaðipróteinbúst með frostnum bláberjum..namminamm þangað til ég lyfti könnunni með öllu og 1/2 l af vatni saman við og omg! botninn ekki skrúfaður fastur á könnunni sem þýddi að það flæddi og spýttist í allar áttir þessi fíni morgunmatur minn svo ég mátti fara að þrífa eldhúsinnréttinguna , skúffur og bekki og skáphurðir og gólf!!! En líklega telst þetta ekki með í jólahreingerningunni sem bíður þar til eftir prófin líklegast! AF öllum dögum þurfti þetta að gerast þegar ég ætlaði að vera tímanlega ...náði nú samt á réttum tíma eftir að hafa loks fundið pennaveskið mitt sem einhverra hluta vegna hafði dottið ofan í nestispokann minn!
En hvað er ekki sagt...Fall er fararheill svo þetta lofar bara góðu fyrir veturinn...segi það allavega.
En semsagt komst í gegnum þennan fyrsta dag og hlakka bara til að takast a´við þetta verkefni sem er bara ein stór áskorun fyrir mig .
En já, ég hugsa að ég bjóði mig fram sem formann í Brussuvinafélagið.is alveg viss um að ég yrði kosin með öllum greiddum atkvæðum þó vissulega séu til skemmtilegar brussur til að vera með í félaginu ..m.a.s. búin að fá eina sem er til í að vera varaformaður hehe......
En best að fara aðeins að kíkja í skólabækurnar ...enginn miskunn á þeim bænum,
Hasta la vista
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
17.8.2011 | 01:29
Eitt af því sem kemur BARA fyrir MIG
Á eina frábæra vinkonu ( reyndar á ég nokkrar frábærar vinkonur, en bara ein sem ég á við hér ) En málið er að ég var að hjálpa henni smá í fyrrakvöld og hún vissi að ég var að fara á næturvakt í nótt ( er semsagt á vakt núna) og bauð yngsta mínum að gista hjá sér , sonur hennar mjög góður vinur míns svo það var nú bara mjög vel þegið..þar sem ég þarf að sofa vel fyrripartinn á morgun , því EFNAFRÆÐIN bíður mín kl.4 ..Dagur 3 í henni , tala um hana síðar
ÓKEI! Hún sendir mér skilaboð á facebook þar sem hún spyr hvort það henti BH ekki bara vel að koma í gistinguna og að skólastelpunni sé boðið í mat kl.19.05 ( var í skólanum til kl. 19 ) með guttana sína mjög vel boðið, ástarþakkir
Inga mín hehehe... Jú , ég hélt það nú og tilkynnti drengjunum þetta , bara gott mál...
Jæja ég kem út úr efnafræðinni enn ringlaðri en eftir 1sta daginn og fegin að þurfa ekki að fara beint í að elda þar sem við vorum að fara í matarboð , dríf mig heim og sæki drengina og segi þeim nú að drífa sig því það sé kurteisi að mæta á réttum tíma þegar manni er boðið svona nákvæmlega! ..sæng, koddi, tannbursti -tékk...ok koma svo...jújú, við mætum á svæðið en enginn bíll heima svo ég sendi nú þann yngri til að tékka á hvort einhver væri heima og jú, húsmóðirin var í NUDDI! ..Þetta fannst mér nú undarlegt þar sem hún átti von á okkur kl. 19.05 og kl. orðin rúmlega það þarna...svo ég fór og spurði börnin hennar nánar út í þetta...hvenær hún fór í nuddið?.. kl.18:00 . ókei það tekur nú lágmark klukkutíma með öllu að fara í einn nuddtíma og enginn matarilmur í loftinu svo ég spurði börnin hvort þau vissu að hún hefði verið búin að bjóða mér í mat með drengina - Nei , þau vissu ekkert um það en sögðu okkur að koma bara inn því hún hefði ætlað að koma við og kaupa pizzu á heimleiðinni...Fannst það nú ekki alveg líkt vinkonunni að bjóða okkur í pizzuveislu en vissi að strákarnir yrðu nú himinsælir með það og fannst þetta bara gott hjá henni ...
Dóttirin á heimilinu var búin að reyna hringja..en mamman í nuddinu og auðvitað ekki með símann á sér þar en svarar svo símanum um kl. 19:30 á leið á pizzustaðinn og ég heyri að hún spyr .." mamma varstu búin að gleyma að þú bauðst Dollu og strákunum í mat ? "
Mamman svarar ," neinei...þau koma annaðkvöld! " Grey stelpan segir þá " Nú en ég bauð þeim að koma inn..þau eru hér og halda að þú hafir bara gelymt þessu "Já einmitt...ég talaði svo við hana og hún sagði mér að vera bara áfram og hún keypti bara aukapizzu Kemur svo heim með pizzur og brauðstangir og við borðuðum auðvitað öll með bestu lyst... hlógum svo að þessu þegar ég fór svo heim og sagði að ég yrði sko að byrja á að lesa skilaboðin aftur til að vita hvor okkar væri að misskilja hina eða hvað hafi eiginlega staðið í spjalltextanum! OMG! Þá stóð það alveg svart á hvítu...Skólastelpunni boðið í mat kl.19:05 á MIÐVIKUDAG ásamt guttunum sínum...sem er notabene í kvöld þá ..
Þetta er bara eitt dæmi af mörgum um það sem kemur BARA fyrir MIG ...Veit að þegar vinkonur mínar (aðrar góðar) heyra af þessu fá þær kast og segja að þetta sé nú einmitt típískt ÉG ! En TAKK fyrir okkur Inga mín .....skal tvítékka næsta boð hehe...
Kannski komin góð sparnaðarleið þarna ..mæta bara til skiptis núna á næstunni með familyuna til vina og vandamanna á matartíma og segja svo bara...æææ, varstu búin að gleyma að þú bauðst okkur í mat ..........
Bloggar | Breytt s.d. kl. 08:44 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
13.8.2011 | 13:09
Skrítni KALLINN!
Hef komist að einu sem mér finnst alveg stórmerkilegt en það er að ekki næstum allir sem ég þekki ( eiginlega bara mjög fáir) hafa séð Karlinn í Tunglinu! Þar á meðal eru allir synirnir...hvernig hefur mér mistekist svona í uppeldinu að ég hef aldrei kennt þeim að sjá hann blessaðan Kallinn?
Við erum 4 systurnar og þar til í gærkvöldi vorum við bara 2 sem höfum séð hann síðan vorum litlar stelpur..fékk svo sms í gærkvöldi frá systur minni sem er 41 árs svohljóðandi : " ÉG SÉ KALLINN Í TUNGLINU "! Þannig að það er aldrei of seint að ná þessu hehe... Góð Helga..til hamingju með að kynnast Honum :)
En nú er elsti prinsinn minn að fara að heiman í dag ( án þess að hafa séð Kallinn í Tunglinu) ...leggur af stað í Höfuðborgina aleinn í heiminum til að fara í HR og verður a.m.k. til að byrja með í einu kjallaraherbergi í blokk í Rvk.( Hann er reyndar ýmsu vanur eftir 1/2 árs bakpokaferðalag síðasta vetur um Asíu og öll ævintýrin sem hann lenti í þar ) Honum eru sko allir vegir færir :) Hefur allavega húsaskjól þar og gæti fengið inni í Hafnarfirðinum en þá er það orðið ansi langt fyrir hann uppá tíma í að komast í og úr skóla og þannig... Gangi þér vel elsku STÓRINN minn :*
en já var að tala við vinkonu mína áðan og segja henni frá sms-inu frá systurinni og fór að tala e-ð meira um Kallinn í tunglinu og þá heyrist í vinkonunni..." Hey, Dolla mín..hvaða töflur ertu búin að vera taka í morgun ?" Hahaha...þá kom í ljós að hún hélt að þetta væri bara þjóðsaga um þennan Kall! Ég hélt nú aldeilis ekki og ég hef þó nokkrum sinnum spjallað við þennan herramann þegar við höfum horfst í augu ( eigum í hálfgerðu platónsku sambandi sko ég og hann ) ..eins var ég að tala við mjög góðan vin minn í gærkvöldi og hann ekki heldur komist í kynni við blessaðan kallinn!
Þannig að það er orðið ansi ljóst að Nú verð ég bara að hafa kennslustund í því næst þegar er fullt tungl að kenna fólki að SJÁ... Málið er að það þarf að horfa með ákveðnu sjónarhorni og þá bara ER HANN þarna í öllu sínu veldi og með frekar spaugilegan svip.... sem sést mjög greinilega á myndinni sem er með þessu bloggi
ps. Verð að bæta við hér..maður er semsagt alltaf að læra..nú fer ég að skilja að honum leiðist ekkert að vera svona einn..því hann er ALLS ekki einn! Var að stækka myndina og skoða hana og þá er annar minni kall þarna hjá honum sem hefur gaman að þessu öllu saman enda er hann brosandi og með sólgleraugu Gaman að þessu hehe...:)
Svo langt síðan þennan kall ég fann..
skrítið að ekki allir sjá hann..
Það er allavega eitt sem ég kann..
að horfa upp á þann skrítna mann ...
Bloggar | Breytt s.d. kl. 23:11 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)
8.8.2011 | 20:20
Að gera fleira og miklu meira
- Eftir næturvaktir ég kann ekki lengur að sofa
- þá er nú gott að sjálfri mér er búin að lofa
- að losa mig við þær allar nema eina
- feginleikanum get ekki reynt að leyna
- Aldrei áður hef fundið eins vel
- að næturvaktakvótinn er liðinn ég tel
- enda hef ég nú vakað í 10 ár
- og að hætta núna mér finnst ég klár
- er svo tilbúin í annað að gera og fleira
- enda ætla ég það og svo miklu meira
- Næturdrottningin því fer á bak við tjöldin
- og skólastelpan kemur fram og tekur völdin
Ljóð | Breytt s.d. kl. 20:35 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
4.8.2011 | 17:25
klapp á rassinn eða spark í rassgatið !!!
Mikið er ég fegin að mér dettur ekki mjög oft í hug að baka Því þá fara einhverjir átvaglspúkar í mér í gang án þess að spyrja mig hvort ég ætli að hleypa þeim af stað eða ekki..væri svosem gott og blessað að hleypa þeim þá bara alla leið út og loka fyrir að þeir komist inn í mig aftur en þeir eru lúmskari en það og kunna halda sér á "réttum stað"
En líklega hefði mér ekki dottið í hug að fara baka þessa fínu súkkulaðiköku í dag nema af því að ég þurfti að baka Heimsins bestu Skúffuköku og senda hana með fótboltarútu á Selfoss í dag! já..Litlinn minn að fara keppa á fótboltamóti þar og fór af stað suður í gær og mér fannst þá einum of snemmt að græja helgarhressingu á þriðjudegi ..svo ég sendi það með þeim gaurum sem fara/ fóru með rútunni í dag ...þeim finnst svo gott að fá sér góða skúffuköku og pissusnúða og kleinur í kvöldhressingu þessum guttum svo allir lögðu e-ð slíkt í púkkið ..sýndist rútan vera vel lestuð af allskyns kræsingum innanum allar dýnurnar og sængurnar
En ég verð fjarri góðu gamni ( allavega fjarri fótboltagamninu ) um helgina þar sem sumarfríið mitt er á enda og fer að fara að taka næstsíðustu næturvaktatörnina mína í laaaangan tíma..Er samt að spá í að kíkja á Dalvík í fiskisúpu annaðkvöld og taka út þá menningu og svo er Hrafnagils handverkssýningin alla helgina og ég meir en vís að kíkka á hana allavega á laugardaginn eftir vinnu ...
svo bara fer skólinn að byrja ! Og þá er ekkert nema setja í sig teygjur fyrir tíkaspenana og setja upp námsmannalúkkið og læra 12 tíma á dag ..( eins og góður "þjálfari" sagði við mig hehe) ...Eins gott að hann standi sig vel á hliðarlínunni og hvetji mig með klappi á rassinn( aðeins penna orðað en að fá spark í rassgatið!)...svona allavega fyrstu mánuðina svo ég geti skrifað um hvað gengur vel
Er nefninlega búin að missa út úr mér að VIÐ séum bara 50 sem höldum áfram ( af 135) þannig að ég verð að standa við það
ÉG VIL-ÉG SKAL -ÉG GET !
En ég greinilega er fljót að hlaupa úr einu í annað og þarf heldur betur að hlaupa af mér þann hluta kökunnar sem ofan í mig fór í gegnum þessa PÚKA sem ég talaði um og vona að elsti prinsinn minn komi fljótlega heim úr vinnunni til að gæða sér á henni áður en mammsan klárar allt ...ER reyndar búin með skammtinn og meira en það í dag og SKAL EKKI leyfa fleiri bitum að detta ofan í mig - frekar út að trimma
Jei..Prinsinn mættur heim og voða glaður að sjá kökuna ..ísköld mjólk og nammi súkkulaðikaka - Toppurinn hjá sumum Maður verður nú aðeins að dekra sína menn meðan tækifæri er ..hann fer alveg að hverfa að heiman og í Borgina til að fara í HR meðan mammsan verður skólastelpa hér heima
Bloggar | Breytt s.d. kl. 17:32 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
28.7.2011 | 08:55
Hvert flaug AMOR ?
Mætti halda að ég hefði ekkert verið að gera í 10 daga en það er einmitt öðru nær Veðrið loks komið með sumarhita og yljar manni að utan sem innan og maður ekki mikið hangandi heima við
Mærudagarnir voru alveg hreint eins og þeir áttu að verða ..FRÁBÆRT veður og mikið mannlíf og á föstudeginum og sunnudeginum fékk ég mér frábæra göngu og trimmtúra upp að vatni og hringinn þar og sund á eftir en það hef ég ekki gert síðan ég var stelpa á Húsavík að fara í sundlaugina þar og lá við að ég þyrfi leiðsögumann í gegnum sturtuklefann hehehe..dáltið mikið búið að taka þá í gegn og breyta ( sem veitti ekki af) ótrúlega notalegt að "dorma" í heitu pottunum og hlusta á með öðru eyranu hvað fólk er að spjalla ...þar eru sko fjölbreyttar umræður í gangi úr öllum áttum.
"Litla " örverpið mitt búinn að vera hjá pabba sínum undanfarið og kemur heim nú í dag eða mrg. og verður nú gaman að fá ferðasöguna hjá honum þar sem hann er búinn að vera og er í fjórhjólaferð sem er ekki það sem honum leiðist ...en fumburðurinn kominn heim og verður þar til hann fer suður í HR um miðjan ágúst og þessa vikuna hef ég vaknað kl.7 og elda hafragraut fyrir hann áður en hann fer í vinnu og fæ mér auðvitiað líka ( namminamminamm) finnst hann svo góður og syninum líka og svo er ég bara ekkert syfjuð á eftir og er bara komin á fætur ..hvað er málið með það! í sumarfríii og vakna svona early ( hugsa mér alltaf gott og ætla aftur uppí að kúra en ekki enn gert það ) Sé nú samt aldeilis ekki eftir þessu fyrir stóra strákinn hennar mömmu sín Finnst bara gott að geta stjanað pínu við hann þessa dagana ...ekki svo margir aðrir sem ég get verið að stjana við
þó ég vildi !
Fór í trimm í Kjarnaskóg í gærkvöldi og hljóp 2 hringi sem er ekki í frásögur færandi nema það var óvenju mikið af lífi í skóginum ...mætti nokkrum sætum kanínum sem eru búnar að gera skóginn að sínum heimkynnum og eru í öllum litbrigðum..margar svo fallegar , hljóp framúr konu með hund og þar rétt hjá hljóp ég framhjá stelpum sem voru að róla sér í risadekkjarólu með annan "hund" pínupínu stýri sem hélt að hann væri Lion King því hann fór svoleiðis að gelta og urra ( á hinn hundinn auðvitað) hélt fyrst hann væri að kalla á mig litla Ljónið
en þeir héldu svo örugglega báðir að þeir væru orðnir að ljónum því eigendur þeirra voru ekkert alveg að geta fengið þá til að slaka á aftur hehe... en Þetta voru nú ekki réttu urrin til að geta kallað sig ljón sko ! SVo tala ég ekki um fuglana sem sungu fallega fyrir mig ( nema þeir hafi verið að syngja fyrir ástföngnu hjónin sem leyddust í rómantískum göngutúr í skóginum ) Þó það eigi kannski ekki eftir að liggja fyrir mér þá finnst mér svo fallegt og frábært að sjá fólk sem er búið að vera lengi saman og gift í mörg ár að sjá að þetta er til.... maður sér stjörnublikið í augunum þeirra og ósýnilega hjartað sem umvefur þau allan hringinn
ÉG reyndi að tala til Amors og biðja hann að fljúga með
Bogann sinn og ástarörvarnar
í leiðangur fyrir mig en veit ekki enn hvort hann fann rétta staðinn...það verður að koma í ljós.. a.m.k. varð ekkert LJÓN á vegi mínum í skóginum bara litlir hundar og kanínur í þykjustuljónaleik en hvað er ekki sagt ? ÖLL DÝRIN Í SKÓGINUM EIGA AÐ VERA VINIR !
En þá er Versló að koma einu sinni enn ( fattaði það í gærkvöldi eftir að var komin heim í skógarferðinni að það var að koma myrkur og kósý kertakvöldin að fara byrja)) það er nokkuð sem ég elska , þó ég vilji hafa bjart á morgnana sem allra lengst , þá elska ég rökkurkvöld á haustin jafnmikið og björtu sumarnæturnar á sumrin því allt hefur sinn sjarma
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
18.7.2011 | 08:40
grrrrr...............
arrrg! Þetta á að vera bannað svona snemma morguns ...ég ákvað að blogga þar sem langter um liðið síðan ég gerði það síðast og er á fótum svona snemma í fríinu þar sem búið er að skella á tækniæfingum fyrir litla fótboltakallinn minn og hans lið kl. 8 á morgnana
þessa viku og svo aftur venjulegar æfingar um hádegi...en já, ég er ekki betur vöknuð en það að ég gleymdi að vista uppkastið og þar með strokaðist allt út og ég var búin að skrifa þessa fínu ritgerð frá Húsavíkurdögunum mínum..Kanski þetta hafi ekki verið fyrir viðkvæma og þessvegna einhver stjórnað því að allt þurrkaðist út
en nú nenni ég ekki að skrifa það allt aftur , nema hvað það er gott að koma á Víkina fögru og þar eru góðar göngu og trimmleiðir sem ég hef ekki farið áður eins og að hlaupa kringum Botnsvatn sem var svo gaman og falleg leið .. og gaman að hitta "gamla" Húsvíkinga til að knúsa og spjalla
Annars var lesturinn aðallega um okkur systur sem höfum stundum verið kallaðar "skvetturnar " hans Bróa.. líklega vegna þaess að þar sem við komum 4 saman er ævinlega mikið gaman og hvort sem við vorum á kaffihúsum út í bæ eða heima hjá múttu eða hver annarri , þá er hlegið og fíflast út í eitt og brandararnir hver öðrum fyndnari og merkilegri en yfirleitt skilur þa´enginn nema við þar sem þeir eru yfirleitt búnir til jafnóðum hehehe
... Bara snilld hjá okkur The Syst.
Svo var líka þetta skemmtilega ættarmót þar sem við vorum 70 manns sem erum komin af langömmu og langafa ..en þeir sem voru á ættarmótinu voru börn þeirra ( bara einn á lífi af 3 en hann er ættarhöfðinginn!) og þeirra afkomendur ..tókst rosalega vel og gaman að hitta alla sem eru svo löngu brottfluttir í allar áttir og maður sér örsjaldan og suma aldrei , nema á ættarmótum ..............
Jæja, ætlaði að gera e-ð við daginn annað en vera í tölvunni fyrst er komin á fætur svona snemma...var rétt farin að njóta þess að geta sofið út hehee..
En fljótt fer ég aftur til elsku Húsavíkur og þá eru það Mærudagarnir sem kalla og verður gaman gaman, bara verst að verðum þá einni systur fátækari þar sem hún verður rétt farin heim til sín til Noregs .Sakna hennar strax ..
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
12.7.2011 | 20:27
Niðurgangurinn óneitanlega þægilegri ;)
Þá var hann loksins heimsóttur elsku Kaldbakur sem er búinn að bíða lengi eftir mér ...Veðrið gat ekki verið mikið betra , því þá hefði það næstum verið verra...Er nógu sólbrennd í framan eftir snjóbyrtuna
en smástund á nokkrum stöðum fór sólin og það hvessti og þá kom hrollur í mann en vááá..þessi ferð var þess virði - við gengum 12,7 km. fórum upp í 1167 m.y.s. byrjuðum m.a.s. næstum við sjóinn og vorum nokkuð sprækar
Héldum ( eiginlega sem betur fer) að þetta væri ekki alveg jafn bratt og langt en reyndar var 1. hlutinn langerfiðastur ..löng og mjög brött brekka beint upp ...og eins og maður hefur orðið var við í fleiri fjallaferðum er fleiri en einn staður sem maður er næstum viss um að nú sé maður loks að komast á toppinn Bwahaha...þvílíkar sjálfsblekkingar þar á ferð hehe..
Verð svo að segja frá einu frekar fyndnu sem við sáum á leiðinni niður en það var miði sem lá á jörðinni og á honum stóð : Hlíðarfjall Akureyri
Svo skemmtum við okkur ekkert smá vel þegar við hlupum niður brekkurnar sem voru þaktar í snjó og skríktum eins og smá krakkar en það var bara svoooo gaman að hlaupa þar niður
Við vorum 3klst.15mín upp með nokkrum öndunar og drykkjarstoppum + 1 nestispása en niðurgangurinn tók 1 klst.40mín ...stoppuðum góða stund á toppnum þar sem útsýnið var FRÁBÆRT og veðrið gott þannig að við vorum 5 klst og 15 mín frá bíl í bíl
Fréttum svo í Sjoppunni á Grenivík af mönnum sem fóru upp í fyrrakvöld og voru nákvæmlega jafnlengi og við upp en nokkrum mín fljótari niður svo þá urðum við bara ansi ánægðar með okkur aftur..vorum það náttl. fyrir
ÞAð voru semsagt frekar rauðleitar, dasaðar og smá þreyttar vinkonur sem brunuðu til Akureyrar eftir flottan dag Vonandi hafa aðrir notið dagsins vel líka
Luv...........
Bloggar | Breytt s.d. kl. 20:49 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
11.7.2011 | 00:19
Sló MITT met um 1/2 tíma
Það var bara algert æði þessi ganga og ég var bara á hlírabol þar til ég var næstum komin up on the TOP! Slatti snjór með mismunandi miklu öskulagi ...sem var skemmtileg blanda við móana , mýrarnar ,mosann, kindastígana , grjótið og allt hitt . En einhverra hluta vegna rifjast alltaf fyrir mér ljóðið " Urð og grjót " þegar maður er kominn á efri part leiðarinnar . Og ekki má gleyma því að Mr. Bigfoot er til ...Enginn efi , sá spor hans og tók mynd til sönnunar sem hægt er að sja´hér í viðhengi
Var samt 1/2 tíma fljótari nú en í haust þegar ég fór síðast og er mjög sátt með það og enginn þurfti að kalla í 112
2klst. 45 mín
Bloggar | Breytt s.d. kl. 08:57 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
10.7.2011 | 19:45
úr Salsadans í Súludans
Skrapp til Siglufjarðar í gær og þetta er eins og lítill bær einhverstaðar í útlöndum í svona dásamlegu veðri og fjöldi fólks á ferðinni og stemmningin skemmtileg
Tala nú ekki um hvað þetta er orðið örskotsfæri að skreppa í gegnum Héðinsfjarðar göngin..Ólsafsfjarðargöngin samt alltaf frekar lítið skemmtileg..dimm-blaut-þröng allvega í aðra áttina og ég sem verð svo fjarlægðavillt í svona myrki þegar er að keyra , er alltaf að spá hvar er næsta M til að komast í þegar mæti bíl..Mikil umferð bæði í dag og gær.
En já aftur að Sigló..fór að heimsækja vini mína sem eru þar í orlofsíbúð..yndisleg hjón sem hægt væri að skrifa margar skemmtilegar og frábærar sögur um hehe...á von á útgáfu frá bóndanum eftir einhver ár en hann er sem betur fer búinn að halda dagbók í 30ár svo maður á von á góðu þegar hún kemur út ...en þau þekkja önnur yndisleg hjón á Sigló og var boðið þangað í mat í gærkvöldi og ég gesturinn þvílíkt boðin velkomin með og vááá...það var þá eins og ég hefði þekkt þetta fólk alla ævi og ekkert tilsparað í frábærri veislu , bæði mat og drykk og tala ekki um skemmtilegheit
..fórum svo á uppskeruhátið Þjóðlagadanshátíðarinnar (sem er búin að standa yfir í einhverja daga ..)um kvöldið sem stóð í nokkra tíma og bara gaman og endaði með hörku Salsa bandi að sunnan sem stóð fyrir Salsaballi á eftir og það var aldeilis tekin suðræn sveifla þar...
er svo komin heim og fjallasýnin dásamleg á heiðskýrum himninum svo ég heyri Súlurnar kalla á mig og ætla því að skella mér sem sneggvast í Súludans ...Búin að biðja soninn að hringja í neiðarlínuna ef ég verð meira en 4 tíma ..Kvitta hér aftur ef ég lifi ferðina af sem er ekki víst því þetta er fyrsta fjallgangan síðan í haust ! Ekki beint verið skyggni í slíkar ferðir fyrr en nú ..en þá legg ég í Súludansinn þetta sumarið
Hasta la vista
Bloggar | Breytt 11.7.2011 kl. 00:05 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)