7.7.2011 | 16:16
spenningur
Jæja, þá er pottþétt ekki aftur snúið að ég verði skólastelpa í vetur þar sem ég var að enda við að borga skólagjöldin og ekki laust við að smá fiðringur og pínu spenna sé komin í heimsókn.
...úfff...allt í einu er þetta svo raunverulegt og stutt í að allt byrji ...þarf að fara kaupa mér fartölvu og kanna hvaða bækur ég get reddað mér notuðum og kaupa hinar á amason ( það er m.a.s. myndband inni á háskólavefnum fyrir fólk sem hefur ekki þurft að brasa í svona áður sem kennir manni að kaupa frá t.d. amason ) Það hefur verið gert spes fyrir mig örugglega hehe....
en ég er reyndar hvorki sú eina né elsta sem er að fara í háskólann svo ég get verið alveg róleg með það, bara pínu skrítið en skemmtilegt að byrja um leið og elsti sonurinn ....Þarf bara fljótlega að fara setja mig í gírinn í sambandi við ýmislegt sem ég þarf að gera áður en fjörið hefst ..ath. hvað bankinn verður góður við mig og ýmislegt í þeim dúr skemmtilegt...er búin að segja upp næturvöktunum svo þær verða ekki hindrun í veginum...Spurning um 1 Ljón í veginum en það kemur í ljós
hvernig það gengur
það verður þá bara skemmtilegt og spennandi...
Say No More..........
Bloggar | Breytt s.d. kl. 16:25 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
5.7.2011 | 16:16
SólarGuðinn þolir ekki að sjá mig bera
ÉG get svarið það ..
maður er greinilega aldrei ALVEG ánægður ..nú er hiti og næs veður en engin sól búin að vera nema mjööög takmarkað síðan á laugardag ..hún hefur samt látið sjá sig nokkrum sinnum, og mín rokið út á svalir og í sólbaðsuniformið
Hvað gerist þá ? Jújú, um leið og ég er mætt fer hún aftur...glennir sig aftur og kæfir allt úr hita og mín út aftur og nú man ég eftir að bera á mig redskinnavörnina...hvað gerist ? Jújú, nú er hún farin áður en ég kemst út
...hvað er málið - eina sem mér dettur í hug er að sólarguðinum verði svona um að sjá mig hálfbera, hann þurfi bara að kreysta aftur augun og þar með loka fyrir sólskynið - skil það nú bara ekki
!
En Polly á þetta eins og margt annað ..fæ þá ekki sortuæxlin á meðan ...
En til að njóta nú samt góða veðursins ætla ég að drífa mig í skógargöngu - meira en time komið á það -
VIVA LA VIDA
Bloggar | Breytt s.d. kl. 16:18 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
3.7.2011 | 20:08
ஜ ஜ hver krókur og lykkja þess virði ஜ ஜ
Þá er að ljúka skemmtilegri helgi sem er búin að vera full af spennu og dramatík - fótboltinn sér manni algerlega fyrir slíku ef hún kemur ekki á öðrum vígstöðvum...hefði ekki trúað fyrir nokkrum árum ef einhver hefði sagt mér að ég myndi standa hin æstasta á hliðarlínunni yfir FÓTBOLTA- hvað þá að horfa á HEILAN leik í sjónvarpinu og m.a.s. hafa gaman af
Þá manneskju hefði ég úrskurðað sem ekki alveg í lagi en þetta er samt að gerast með mig og það bara oftar en einu sinni ..svo spurningin er kannski hvort það sé ÉG sem er ekki ALVEG í lagi ?
okok..ég veit , ég er ekkert ALVEG í lagi en svona næstum því og það dugar
En nóg um boltann í bili- það tók nú ekki langan tíma í dag fyrir DUGLEGT fólk að hreinsa svæðið og ganga frá eftir þessa daga og svo grillveisla á eftir ...
Eini gallinn við þessa helgi er að ég hef ekki hreyft mig neitt ( er þá að meina almennilegar göngur eða hlaupatrimm) síðan á fimmtudag og dottið í það í sykurlegri merkingu..búin að úða í mig óhollustu í dag og í gær ansi ótæpilega svo það mætti segja mér að ég verði "timbruð" á morgun og langar örugglega í "afréttara" semsagt eitthvað sæææætt og goooott , en það má ekki , bara allllls ekki...þannig að ég ætla stilla vekjarann early in the morning og fara í dásemdar trimm og borða gómsæta ávexti og grænmeti allan morgundaginn ÁN þess að þar laumist súkkulaði, kex eða annað gúmmelaði í MÆRUlíki inn fyrir mínar varir ! skammskamm... maður er ekki lengi að eyðileggja fyrir sér margra vikna árangur með nokkurra daga svindli ...
En hvað er sagt ...aldrei of seint að snúa við og fara til baka, manni seinkar bara aðeins en stoppar ekki...
ÉG held áfram minn veg sem er oft ansi hlykkjóttur og skrykkjóttur en kemst að lokum á leiðarenda og þá verður hver krókur og lykkja þess virði ... Say No More
Bloggar | Breytt s.d. kl. 20:19 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
30.6.2011 | 22:20
Síðan Skein Sól !
Það kom að því Jibbedirí ..Sunshine- sunshine reggae og Lífið er yndislegt , ég geri það sem ég vil
.... en nú eru mörg andlit og kroppar hér norðan heiða óvön sólinni eftir alltof langa fjarveru hennar svo ansi margir eru nú býsna RED skinnaðir eftir daginn
Eins gott að muna bera á fótboltamanninn í fyrramálið ..hann er vel bakaður í framan .. næsti leikur kl.9 í fyrramálið...Ekki alveg gengið að óskum en ekki allt búið enn 4 leikir eftir
...Annars er aðallega að hafa gaman að þessu, frábær stemmnig á svæðinu og í bænum ..bærinn fullur af fólki skreytt öllum félagslitunum og syngjandi sælir og glaðir strákar um allt :)
Þetta er bara rétt að byrja- Fjörið heldur áfram næstu daga og bætist þá enn í hópinn á morgun þar sem Stóru Pollarnir mæta á Þórssvæðið og mála bæinn í fleiri litum .. Say No More about that
Líklegt að maður eigi eftri að láta aðeins sjá sig þar líka ,
en KVÖLDSÓLIN fallega glampar yfir bænum og nú SJÁST fjallatoppar í allar áttir sem eru búnir að vera vel vafðir í þoku í margar vikur ... LOVE IT Sakna bara Dreka Ljónsins míns
Farin að kaupa rauðskinnavörn
Bloggar | Breytt s.d. kl. 23:11 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
26.6.2011 | 15:18
Frumbyggjar að sjá hvíta menn í fyrsta sinn !
http://www.bleikt.is/lesa/otrulegirfundirfrumbyggjaoghvitramannaifyrstasinnmyndband
Var að horfa á þetta myndband og það hafði meiri áhrif á mig en flestar bíómyndir sem ég hef horft á ...váááá....Þetta er ótrúlegt að sjá og enn eru að finnast frumbyggjahópar sem hafa verið algerlega einangraðir , þetta er að vísu ekki alveg nýfundnir fumbyggjar en myndirnar haafa ekki verið sýndar fyrr en mjög nýlega.
En say No More..bara njóta þess að horfa á frá byrjun til enda...er tæpar 15 mín
Næ ekki að setja slóðina inn öðruvísi, virkar ekki í gegnum youtube
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
24.6.2011 | 18:10
Arnór og Hreiðar að gifta sig
Verð nú að þakka þeim Arnóri Atla og Hreiðari Leví Guðmunds fyrir að vera gifta sig um helgina hér fyrir norðan
Því þessvegna í og með var haldinn þessi skemmtilegi handboltaskóli í KA heimilinu hér á Akureyri núna þessa vikuna..Þar hefur juniorinn minn ásamt fullt af öðrum strákum og stelpum verið á 2ja tíma æfingum og fræðslufyrirlestrum af ýmsu tagi og hitt nokkra af leikmönnum Akureyrar liðsins ásamt Arnóri Atla 1.daginn og svo komu Guðjón Valur, Björgvin Páll, Ásgeir og Oddur Grétars í dag á lokadeginum
Eintóm gleði hjá krökkunum við þá heimsókn þar sem þeir gáfu sér góðan tíma að leiðbeina þeim og fékk minn sérstaka markmannsæfingu hjá nafna sínum sem tilkynnti að hann yrði ánægður að fá hann sem arftaka síðar , þá gæti hann loks komist í frí Svo var safnað eiginhandaráritunum á allt sem tiltækt var... eins og bolinn ( þannig að hann verður ekki þveginn oftar
), handboltaskóna ( sagði honum að hann mætti þá ekki vaxa upp úr þeim ) og síðast en ekki síst mynd sem hefur verið í miklu uppáhaldi á mínu heimili í 11 ár!, Þar sem allir gaurarnir mínir eru með Guðjóni Val
Þessi mynd er búinn að vera í miklu uppáhaldi á heimilinu og fær sérstaka stöðu á góðum stað í öllum leikjum hjá Strákunum okkar og hefur hún líka beðið bíða eftir Guðjóni síðan til að fá áritun og bara aukabónus að fá hana frá fleirum . Minn prins alveg hreint í skýjunum með þetta...og þá er hægt að snúa sér aftur að fótboltanum , þar sem N1 mótið byrjar í næstu viku
Meira um það síðar.
ÉG ætla hinsvegar í skemmtilegan vinkonuhitting í kvöld að njóta skemmtilegs félagsskapar og drekka rautt Ætla samt ekkert að mála bæinn rauðan
Hasta la vista !
Bloggar | Breytt 29.6.2011 kl. 23:52 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
22.6.2011 | 18:25
Verndarengill
Minn verndarengill ert þú Dolla amma
Þú dóst svo ung við að verða mamma
stjórnar mér ekki en reynir mig að leiða
Gerir eins og getur brautina mína greiða
Þó aldrei hafi séð þig oft ég þín sakna
úr draumunum langar mig stundum ekki að vakna
Oft hefur verið með mér á mínum næturvöktum
kannski ég hafi eitthvað erft af þínum töktum
Elsku amma ég veit þú ert hér
áfram þú verður og fylgir mér
Þó lengi millinafninu ég vildi hafna
get ég stolt sagt að ég sé þín nafna
Ljóð | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
22.6.2011 | 13:54
Hver vill hjálpa mér að leita?
Góðan og blessaðan daginn!
Hvar er hún þessi GULA þið vitið...hringlótt og heit og kemur öllum ( allavega mér ) í sólskynsskap :) Sama hvaða veðurkort ég skoða, þá er hún sýnd í öllu sýnu veldi í dag en get ekki orðið vör við hana samt þegar horfi út !
Vonandi mætir hún í staðinn í næstu viku þegar spáð er RIGNINGU og 3ja stiga hita á N1 mótinu sem hefst þá !!! ÉG er allavega tilbúin að lána afnot af þurrkaranum mínum þá daga sem það fer fram svo hægt sé að setja flottu gaurana í þurra búninga milli leikja ..brrr...þó enginn sé verri þótt vökni í gegn er ekki það besta að vera að keppa allan daginn og vera í kulda og bleytu , þó þeir séu heppnir og þurfa ekki að gista í tjöldum , skólarnir fullnýttir í gistingu .
En nú þegar ég er að komast í algert svartsýniskast yfir þessu veðri ....hvað er að gerast ?? Get svarið það að nú bara í þessum skrifuðu orðum er þvílíkt að byrta til og ég skelli bjartsýnisgleraugunum á mig þegar ég fer út eftir smástund...
Takk takk hver sá sem hana fann , hún er allavega að rembast mikið til að reyna sýna sig og virðist ætla takast það að mesu...Fundarlaun verða afhent Finnandanum þega hann gefur sig fram
En þá er ég rokin út ...því að eins og með margt annað , þá er ekkert tryggt að vari að eilífu svo maður á njóta meðan hægt er ...Það er allavega víst að það byrtir alltaf til aftur þó maður viti aldrei nákvæmlega hvenær
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
20.6.2011 | 11:19
Hvaða fjöll verða tekin og hvenær
Mikið er það nú dásamleg tilfinning að vera í sumarfríi ..náði m.a.s. að fá smá sumarfíling í skjólinu fyrir norðanáttinni í gær eftir að kom heim af ættarmóti en hjá Afdal Ættinni var þetta skemmtilegasta ættarmót haldið á Steinsstöðum sem er mjög flottur staður til að halda svona , fín aðstaða og NOTALEG gisting innanhúss í eldgömlu en kósý húsi , þar sem herbergin eru svo rúmgóð og fín..fundum ekki fyrir því að vera 4 í 3ja manna herbergi, hefðum auðveldlega getað verið 5 og jafnvel 6! En já, semsagt mikið gaman og mikið grín þar sem 4 kynslóðir skemmtu sér vel í 2*100 ára afmæli afa ög ömmu..(Þau voru án efa bæði á svæðinu sveimandi yfir okkur
) en það var semsagt haldið uppá 200 ára afmæli þeirra fyrr á laugardeginum með kaffihlaðborði þar sem allir komu með einhverja dásemd til að innbyrða og svo mjög góður matur frá staðarhaldara í félagsheimilinu um kvöldið.
En nú er komið að því að ég fari aðeins að skipuleggja hvað ég ætla mér að gera í fríinu annað en þvælast um helgar í hinum og þessum mótum að öllu tagi..ætla aðallega að nota hina dagana í gönguferðir um fjöllin..verð nú að bæta fyrir síðasta sumar en þá var bara gengið á 3 fjöll! Reyndar meira hásininni að kenna en áhugaleysi..vona að hún ( hásinin) verði til friðs núna..ætla byrja á einvherju góðu fjalli í þessari viku og svo allavega 2 í næstu viku..
Allavega eitt ákveðið.. 30.júlí fer ég á Kerlingu 1538 m. 7 tinda ganga.
Kerling er hæsta fjall í byggð á Íslandi - þetta fjall ætla ég að fara með leiðsögn , skilst að maður reyni helst ekki við það öðruvísi svona í fyrsta skipti allavega, en byrjað er við Finnastaði í Eyjafirði og komið niður í Glerárdal niður af Súlum.. verður gaman að fara bara niður Súlurnar, hef klöngrast upp þær áður hehe...
En verð að fara plana hvaða fjall ég tek fljótlega, kannski það verði bara að fara yfir Vaðlaheiðina og inn í Fnjóskárdal í búsatað til Brynju vinkonu- en only ef hún verður á svæðinu ..annars þarf ég að ganga strax til baka aftur
Búin að ákveða hvað verður í dag en þá ætla ég að ganga upp á klettana ofan við Kjarnaskóg og þaðan lengra upp í gamlan skála þar uppfrá ( skálinn heitir örugglega GAMLI..skemmtileg leið sem er farin frá Hömrum og meðfram læknum .. fór þangað 2svar í fyrra , fín ganga.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
17.6.2011 | 22:43
Lazy Day
Hæ hó jibbijei og jibbiijei, það er kominn 17.júní sem þýðir að ég er komin í sumarfrí trallalí
Alger letidagur, til hálf tvö í dag eftir síðustu næturvaktina mína í laaangan tíma..fer ekki að vinna aftur fyrr en 6.ágúst og þá bara fram að skóla sem byrjar 24.ágúst. Er strax farin að hlakka til að takast á við það verkefni.
En já , skellti í pizzusnúða og leyfði því að hefast í nokkra tíma meðan skrapp til að kaupa fóður í ísskápinn sem var farinn að kvarta allverulega undan kæruleysi eigandans með að sinna þörfum hans um áfyllingu
Fékk svo örverpið heim eftir vikudvölina hjá pabbanum - fullur af gleði og sögum af nýjum vinum héðan og þaðan af landinu og frábærum þjálfurum frá Arsenal skólanum ..fannst þeir "GEÐVEIKT " skemmtilegir - ætlar nú að halda sig við Man.United áfram samt hehe.....og hann er strax búin að biðja um að fá eins jólagjöf næst..semsagt gjafabréf í Arsenalskólann sem mér skilst að sé kominn til að vera hér hjá KA allavega næstu 3 árin sem er frábært því hingað koma krakkar af öllu landinu í viku æfingabúðir og þrátt fyrir Skí..veður tókst þetta mjög vel.
Svo er ekki minni spenningur fyrir næstu viku en þá verður handboltaskóli hér þar sem verða 2ja tíma æfingar í eina viku og munu nokkrar stjörnur úr landsliðinu vera þeim til stuðnings ásamt flottum þjálfurum KA í langan tíma Jóa Bjarna og Sævari Árna. Semsagt nóg um að vera hjá "litla" manninum mínum sem mun líklega verða orðinn hærri en ég fyrir haustið
En nú er best að klára græjast fyrir ættarmótið sem ég beilaði á í kvöld og ætla bara í fyrramálið þrátt fyrir að ég viti að ég mun missa af miklu stuði í kvella og nótt en bæti það upp annaðkvöld
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)