"Draumaprins"

Þessi bloggfærsla segir sig sjálf...en í tíma í dag var talað um góða leið að skrifa sig FRÁ hlutum sem eru erfiðir... ég ætla prófa fara eftir góðum ráðum svo ég "þýddi" textann við lagið og set hann fyrir neðan...þetta er ekki bein þýðing en hann á  við mig smá private og persónulega.... en enginn þarf að lesa þetta né hlusta sem ekki vill ...ég er að blogga fyrir MIG sjálfa svo það sé móttekið Wink

Við áttum tíma,  sem að sigldum við saman

minn draumur  var að,  við værum á sömu leið

Skjólið,  þar sem við okkar stundir áttum

 grunaði aldrei að gjaldið yrði svo mikil kvöl

þú skyldir mig eftir, með rýting í hjarta

ég vissi ei heldur að þú varst með allt önnur plön

 ég trúði að við, værum ætluð hvort öðru

trúði því líka að hjartað væri öruggt hjá þér

"draumaprins"

Þú  vildir framhjá mér

þrátt fyrir allt það sem mér sýndir

hélt við yrðum samferða

 „draumaprins"

þvílíkur kjáni var

því ég trúði öllu því sem sagðir

nú hugsa ég

af hverju "draumaprins"

þá kom  sá tími

þar sem við héldum í burtu

og viðkvæmum sálum

sem þá hent var á bál

Það var á því skeiði

sem mér fannst tilveran hrynja

Stundum í draumum mér finnst

að þú sért hér hjá mér

„Draumaprins"

þú vildir burt frá mér

og þrátt fyrir það allt sem sagðir mér

þú mig yfirgafst

þú varst minn „draumaprins"

þvílíkur kjáni ég var

því að ég trúði öllu sem þú sagðir

og nú ég hugsa why?

„Draumaprins"

svo skín aftur ljós

sem að lýsir upp veginn

Ástin var blind

úr fjarlægðinni

í gegnum mitt hjarta

þá veit ég nú betur

eins töff og það er að standast

ég stend best með  mér

„draumaprins"

þú vildir burt frá mér

ég sem að trúði öllu sem mér sagðir

var ekki að marka þig?

Ohhhh..."Draumaprins"

þvílíkur kjáni ég var

að trúa öllu sem þú sagðir mér

svo nú ég bara spyr...

„draumaprins"


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ásdís Sigurðardóttir

Já, er von þú spyrjir? það er vont að vera svikin, vona bara að hjarta þitt grói á ný. Hafðu það gott elsku Dolla mín og farðu vel með þig, alltaf.

Ásdís Sigurðardóttir, 11.10.2012 kl. 11:10

2 Smámynd: Sólveig H Sveinbjörnsdóttir

Búin að setja mitt í glerkassa núna, úr tvöföldu og skotheldu .. svona..AÐEINS í NEYÐ- BRJÓTIÐ GLERIÐ    Og ég ætla vera viss um að treysta þeim vel sem þegar/ef fær í hendur verkfærið sem dugar til að opna

Sólveig H Sveinbjörnsdóttir, 11.10.2012 kl. 17:36

3 Smámynd: Sólveig H Sveinbjörnsdóttir

og TAKK Ásdís mín... þú ert yndisleg

Sólveig H Sveinbjörnsdóttir, 11.10.2012 kl. 17:37

4 Smámynd: Ásdís Sigurðardóttir

þú líka, ekki gleyma því

Ásdís Sigurðardóttir, 12.10.2012 kl. 11:48

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband