Bloggfærslur mánaðarins, desember 2013

Lítil jólastelpa á Húsavík

 

Nú var ég að hlusta á Jólalög með Björgvin Halldórs og þegar myndbandið fór að rúlla og ég hlustaði á textann með, þá varð ég aftur Dolla litla í Holtagerðinu sem man hvernig MAMMA gerði embarassed   

           Hér koma nokkrar minningar sem rifjuðust upp fyrir mér við að hlusta á þetta lag: Sjá svunturnar í videoinu...mamma saumaði næstum alveg eins þannig jólasvuntur á okkur systur, og saumaði líka oft jólafötin og fallega náttkjóla og einu sinni fengu dúkkurnar eins náttföt og við(mömmurnar) ...man þegar vorum að máta og títuprjónarnir aðeins að stingast í mann smá og mamma raðaði þeim á milli varanna á sér....svo flottir með allskonar litin kúlur á endanum smile ...afram streyma fram minningar...mamma er í eldhúsinu með svuntuna og hnoðar í deig og fletur út... Hakkavélin tekin upp og pabbinn fær að vera með og snúa sveifinni og mamman tekur á móti brúnum rákuðum ræmum sem hún sker svo í hæfilega bita. Úr þessu verða svaka góðar kökur með hvítu smjörkremi sem við systur fengum að smyrja á milli. Aðrar gerðir sem töfruðust framúr hakkavélinni eftir snúninga sveifarinnar hjá pabba og mamma lagði fallega lagaðar rákóttar vel lyktandi ræmur sem hún mótaði í hringi... Mmmmm, namminamm...uppáhaldsjólasmákökurnar mínar  VANILLUHRINGIRNIR sem mér hefur ALDREI tekist að gera jafn góða og fallega og hún ...enda enginn pabbi að snúa sveifinni á hakkavélinni sem ég á ekki einu sinni til smile   ..Er líka löööngu hætt að reyna við þá embarassed

         Áfram snýst sveifin og nú eru það loftkökurnar sem birtast úr græjunni og mér fannst alltaf jafn skrítið hvernig gátu orðið svona holóttar að innan.... Þetta er ein af fáum sortunum hennar múttu sem ég hef aldrei prufað að gera...fæ gæsahúð og hroll þegar finn í huganum sykurleðjuna sem þær eru hehe... , svo voru það hálfmánarnir, spesíurnar, sykurkökurnar, man ekki hvað þær heita, en með skrautsykri ofaná...mömmukossarnir, jú, þá fengum við systur aftur að taka þátt og smyrja á milli ( sleiktum örugglega aðra hvora skeið og laumuðum upp í okkur sjálfar...mmm, namminamm, get alveg enn í dag borðað kremið eintómt hihi....), þá má ekki gleyma Blúndunum... Þær voru sko og eru enn bestar... magnað að sjá hvernig þær runnu út og urðu örþunnar og fallegar á litinn...sérstaklega fallegar þegar var búið að húða aðra hverja með súkkulaði og búnir til kossar með rjóma á milli...best þegar pabbi setti rjómann, þá var svo mikill rjómi hehe...síðan skellt í poka og í frystinn... Bestar hálffrostnar og ekkert mál að stelast í eina og eina beint upp úr kistunni...gómsæt tilhugsun tongue-out

En hinar kökurnar allar saman fóru í þessa fínu jólakökubox sem voru „innsigluð" með límbandi sem var erfitt að spretta upp án þess að sæist, nema maður tæki það alla leið og setti svo alveg nýtt í staðinn hehe...

Svona gat maður setið og staðið í kringum mömmuna og fylgst með henni við kökubaksturinn....innocent

         Þegar varð aðeins eldri man ég eftir að mamma opnaði aurabauka okkar systra sem við vorum búnar að safna í sérstaklega til að kaupa jólagjafir handa ma og pa og hver annarri.... Pabbi fékk ný axlabönd - nýjan kaffibrúsa - nýja tösku með heilum rennilás undir kaffibrúsann og nestið laughing   Aumingja kallinn...þetta keyptum við til skiptis handa honum ár eftir ár... og hann alltaf jafn glaður og tala nú ekki um „HISSA" á þessum fínu gjöfumembarassed   Englaspil sem klingdi í þegar englarnir snérust við hitann af litlu fallegu kertunum man ég eftir að við keyptum einu sinni handa mömmu smile... eitt sinn man ég að hafa heyrt hana tala um að sig vantaði þeytara...og  ég fór og keypti þessa „fínu" handsnúnu þeytara með sveif á hliðinni og veit ekki hvort var notað nokkurn tímann, hehe...og annað sinn langaði mig svo svakalega í flottan nestisbrúsa með fallegri mynd að mér fannst snilldarhugmynd að gefa MÖMMU einn slíkan , svo það yrði tryggt að maður fengi að drekka úr einum slíkum hehe... Eins og með pabba...þá fór hún vel með undrunina og varð rosaglöð og „hissa" þegar hún opnaði þessar gjafir ehhe... cool Sorry mamma ...

        Nokkrum dögum fyrir jól vorum við Helga systir látnar taka allt fína postulínið og gömlu bollastellin hennar mömmu, öskubakkana sem voru sumir hin mesta prýði og alla glerstjaka sem fundust. Þetta máttum við nú vaska upp og fórum í sérstakar svuntur til þess og svo var þvegið ...yfirleitt ég sem fékk það í gegn að vera þvottavélin og Helga þá fékk það hlutverk að þurrka og múttan setti aftur hvern hlut vandlega inn í skápana sem voru ekki einu sinni í gleri og  ekkert af þessu fíneríi sást ...fyrr en það var tekið út fyrir næstu jól og skellt í „jólabaðið „ og upp í skáp aftur ...  á meðan við vöskuðum upp voru  pabbi og mamma að bera tekkolíu á húsgögnin svo að  handrið á sófum , stólum og borð urðu háglansandi og ilmuðu þvílíkt vel... smile Pabbi sem alltaf hefur verið svo sniðugur í höndunum  og góður föndrari  bjó til kirkju úr frauðplasti sem hann málaði svo fallega með rauðu þaki og gerði glugga og setti ljós inn í ...mamma breiddi síðan úr bómull undir hana og bjó til snjókirkjugarð sem var svo skreyttur með Mjallhvít og Dvergunum Sjö... Þetta var svo fallegt og skemmtilegt og hátíðlegt að aldrei hvarflaði að manni að leika með þetta fínerí , heldur bara dáðst að. innocent

        En þá er allt í einu komin Þorláksmessudagur og hann var sko tekinn snemma... Maður vaknaði við að komið var inn til að taka af rúmum og allt þvegið og sett utanum nýtt og strokið alveg spes fyrir jólin. Þarna sá pabbi alfarið um ryksugið í öllu húsinu, enda voru TEPPI allstaðar nema í herbergjum og inn á baði og eldhúsi..... Hann fór líka á háaloftið og sótti kassana 

 

 kiss

en hér er annað lag sem kemur manni í back to the future gírinnog auðvelt að láta hugann reika svona afturábak :

   https://soundcloud.com/ing-lfurj-hannsson/j-l-upps-lum

Nú er þetta lengsta blogg sem ég hef skrifað og má alveg lesast í mörgum hlutum ...en aðallega var ég að skrifa niður þessar hugleiðingar fyrir mig sjálfa þar sem þær birtust mér í huganum ... ekki hugsað svona um gamla tíma í mörg ár ... Gleðileg jól til allra sem hver eru með sínu sniði... mitt snið er að það er engin regla á neinu né einu .. en það er líka regla hehe...  það er svo efni í annað blogg síðar ...  cool


Greina greiningar sem greinast í greind í reynd...

Spurning hvort er búin að lesa of mikið eða ekki nóg ... Don't worry fékk bara nett kast hér áðan....

Eftir að vera búin að lesa allt mögulegt og ómögulegt um geðrof, geðklofa, borderline, bipolar I og II, allskyns raskanir,bresti,  þunglyndi, vöðvagigt, síþreytu og ég veit ekki hvað og hvað ...og alltaf verið sannfærðari um hvað ég hljóti að vera með góðar taugar, því miðað við hvað ég uppfylli marga skilmála fyrir greiningar í þessu í sambandi við álag og tendens til að blossi upp veikindi.... þá ætti ég að vera margbúin að greina mig með þetta meira og minna alltsaman... ..þokkalega nóg að díla við athyglisbrestinn...er núna jafnvel við það að fríka út, en þrátt fyrir allt er alltaf e-ð sem kippir mér aftur á jörðina ...ég þakka fyrir það og bið um að það haldi í 1 1/2 ár í viðbót...  

Verð að nota öll stig bjargráða sem er búin að læra og tek ofan hattinn (þegar ég er búin að fá mér einn flottan) fyrir snillingunum  sem ég þekki og komust óskaddaðar í gegnum þetta ...styttist í að ég þurfi að fá mér annan  svo ég geti tekið ofan af fyrir mér sjálfri og hinum snillingunum sem eru með mér í þessu og  veit að nokkrum líður ekki alveg ósvipað mér... anda iiiinnnn.....anda úúúút  ...hlusta á Rólegt Lag, Glas af Ísköldum Kristal og Slaka á:Joyful

ok, tilbúin að halda áfram Smile ...skrifaði þetta bara svona svo þið hin sem hafið ekkert að lesa getið farið að googla allt um þetta sem ég nefndi og reynt að finna greiningu sem passar við MIG....... (Það mun þurfa mjög sértækt teymislið af öllum tegundum til bjargar ef greining finnst )Whistling

 


Í rauðan kjól en ekki sokka

Þessi "jafnréttisbarátta" er komin út í svo miklar öfgar að ég hef alveg skammast mín stundum fyrir að vera kvk.... ekki það að fullt af því sem hefur verið gert á rétt á sér og verður alltaf ...og því miður ekkert öðruvísi með okkur mannfólkið (bæði kyn) heldur en kindurnar okkar að misjafn er sauðurinn í mörgu fé og svörtu sauðirnir verða alltaf til ... en þegar hlutirnir eru orðnir þannig með svo margt að sumar konur ætlast bara til að þær séu í fyrsta sæti í hverju sem er og gangi fyrir í mörgu þrátt fyrir að það sé ekkert sem styðji það annað en að  þær séu kvk ...þá er ekki lengur verið að tala um jafnrétti heldur yfirgang. Einnig finnst mér SORGELGT svo ekki sé meira sagt þegar staðan er orðin þannig ða fólk þorir ekki orðið að brosa til náungans og barna hans af hættu á að geta verið litinn óhýru auga og næstum kærður fyrir ... Frown  Hvert er þetta þjóðfélag komið ...eða farið? Veit bara það að ekki gæti ég nú hugsað mér lífið án skemmtilegra kk,... þó þeir vissulega hafi  stundum reynt á þolrifin sumir hverjir hehe... Cool (á 3 syni... hef nú stundum sagt að ég hafi eignast þá til að læra þolinmæði ;) ... En aldrei mun ég verða rauðsokka þó oft sé gaman í vinkvennahóp, jafnvel í rauðum buxum eða kjól! Tounge  og ég mun sko halda áfram að brosa framan í hvern þann sem mér sýnist...því ég veit hvað bros á dag kemur mörgu í gott lag Grin  

í rauðum kjól

http://www.visir.is/mesta-modgunin/article/2013712049987?fb_action_ids=10151859524587620&fb_action_types=og.likes&fb_ref=under&fb_source=other_multiline&action_object_map={%2210151859524587620%22%3A543187005766310}&action_type_map={%2210151859524587620%22%3A%22og.likes%22}&action_ref_map={%2210151859524587620%22%3A%22under%22}

 

Góða helgi Grin 


Heimskir letingjar

Las smá komment áðan sem stuðaði mig smá þar sem kona var að fjalla um heimska letingja sem eiga ekki fyrir skuldunum sínum...og hún eigi að fara borga fyrir það með sínum fjármunum...Ég veit ekkert hvort hún á einhverjar eignir or not, kemur kannski ekki málinu við.. Cool

Ég hef einu sinni verið í þeim sporum, þegar ég átti ekkert og skuldaði ekkert og aldrei fundist ég eins rík!  ... nú á ég heldur ekkert en skulda frekar slatta, og borga samt mína reikninga og læt þá ganga fyrir  en ekki kemur þessi "snilld" mér til bóta samt...kannski samt einmitt þessvegna veit ekki, en...

  Ég segi það og stend við það..sama hvort maður eigi e-ð eða ekkert, en Skuldlaus maður er Ríkur maður Talandi um heimsku og leti...jamm...no komment best að segja, en get ekki hamið mig með að segja hvað voða margir  sjá bara í einum lit.... ég er sem betur fer litríkur persónuleiki og get séð frá mörgum hliðum...Er bara eins og google earth sem hægt er að snúa allan hringinn til að sjá sem best og FLEST W00t.

Held líka að væri hægt að segja flest um mig nema að ég sé heimsk eða löt ...þó ég hafi þurft að selja ofan af mér fyrir 0 kr og þurft að leysa út séreignarsparnaðinn minn til að geta borgað of hátt leiguverð í langan tíma ...og tekið námslán til að komast í skóla og eiga betri möguleika á að geta framfleytt mér ..og strita með náminu vegna þess hve "GÓÐ" námslánin eru sem notabene eru ekki STYRKUR heldur lán sem ég mun borga með vöxtum ...ja, best að segja no more ...

Nú kveiki ég á fyrsta kertinu og fer að lesa ...Njótum aðventunnar, það geri ég í próflestri og próftökum...InLove

 030_1222757.jpg

Við kveikjum einu kerti á,
Hans koma nálgast fer,
sem fyrstu jól í jötu lá
og jesúbarnið er

  Halo


Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband