Bloggfærslur mánaðarins, ágúst 2011

Bannað að knúsa - Say no more!

Áfram heldur fjörið!

Finnst ég ekki alveg eins út á túni og  í síðustu viku en vá hvað þetta er mikið að læra og lesa og reyna að skilja ...úffff-púffff Whistling En  ég er búin að hitta svo mikið af fólki upp í skóla ..bæði starfsfólk og "eldri" nemendur..jú mikið rétt, það eru nokkrir sem eru víst eldri en ég sko, enda er  ég  nú bara rúmlega táningur og þau hafa sko peppað mig upp og kvatt mig áfram og segja mér að eftir áramót muni ég ekki trúa því að ég hafi verið  með þessar áhyggjur og vandræðagang hehe...  já eigum við að ræða e-ð um vandræðagang.................

Hún frk.Brussos er ekkert að yfirgefa mig  og nú er hún farin að elta mig í skólann..fannst alveg nóg að hafa hana með mér hér heima sko !...

En nú er ég að spara peninga og olíu svo ég er búin að ákveða að ganga í skólann sem er ekkert nema bráðhressandi og gerði það bæði í gær og í dag ..án vandræða Tounge enda búin að skella í mig dýrindis hafragrau tmeð yngsta prinsinum á bænum..( þori ekki alveg að treysta á morgunsheikinn ennþá sko )

...svo fer ég í tíma ásamt 200 manns a.m.k. og  ég geyspaði og  gapaði svo voðalega af súrefnisskorti þar sem risasalurinn var fullur af fólki..ekki það að tíminn hafi verið svona leiðinlegur..var reyndar bara skemmtilegri en ég hélt svona fyrrifram ( Vinnulag í háskólanámi)  en já í 1stu pásu 10.mín bara VARÐ ég að fara og sækja mér kaffi  Shocking sem ég  gerði

Komst svo loks að eftir að vera búin að bíða í 10 mín í röð!( Er nú reyndar svo bráð þolinmóð að það var ekkert mál ) Allir að sofna v/ súrefnisskorts greinilega

..en hvað þá..loks þegar búið er að gata fína kaffikortið mitt er allt kaffi búið og ekki tilbúið nýtt ..en afgreiðslan fann samt eina könnu með smálögg svo ég fékk allavega kaffi í glasið...set á það lok og geng hin glaðasta af stað í tímann...

...mæti ég þá ekki einni frænku minni sem ég hef ekkert hitt í skólanum, enda var hún sinn 1sta dag þennan veturinn svo við náttúrulega urðum að knúsast með þeim afleiðingum að ég var með tæpt hald á pappamálinu og það var frekar heitt þó kaffið væri ekki alveg nýtt, svo ég missi það úr höndunum...eða réttara sagt ..það var einhver eða e-ð sem sló það af mér Devilog það flaug í gólfið og á Ingu frænku hehehe...EINS gott að það var ekki nýtt og brennheitt! ÞAnnig að allur  biðtíminn og pásan eftir kaffinu fór bara í að hlaupa til baka í tímann ..KAFFILAUS..Ekki einn sopi..svo það var áframhald á geyspinu fram að næstu frímó en þá fékk ég líka nýtt kaffi og  KNÚSAÐI SKO ENGANN!     Say No More Blush


Sjálfkjörinn formaður .is

Hann byrjaði nú aldeilis með stæl hjá mér þessi 1. skóladagur Angry Ætlaði nú aldeilis að hafa nógan tíma og dúllast þar til ætti að mæta kl.9:05 ...

Var sem betur fer ekki búin að klæða mig þegar fer inn í eldhús og  græja mér  morgunsheikinn...súkkulaðipróteinbúst með frostnum bláberjum..namminamm þangað til ég lyfti könnunni með öllu og 1/2 l af vatni saman við og omg! botninn ekki skrúfaður fastur á könnunni   sem þýddi að það flæddi  og spýttist í allar áttir þessi fíni morgunmatur minn svo ég mátti fara að þrífa eldhúsinnréttinguna , skúffur og bekki og skáphurðir og gólf!!!  En líklega telst þetta ekki með í jólahreingerningunni sem bíður þar til eftir prófin líklegast! AF öllum dögum þurfti þetta að gerast þegar ég ætlaði að vera tímanlega ...náði nú samt á réttum tíma eftir að hafa loks fundið pennaveskið mitt sem einhverra hluta vegna hafði dottið ofan í nestispokann minn!

En hvað er ekki sagt...Fall er fararheill svo þetta lofar bara góðu fyrir veturinn...segi það allavega.Cool

  En semsagt komst í gegnum þennan fyrsta dag  og hlakka bara til að takast a´við þetta verkefni  sem er bara ein stór áskorun fyrir mig .

En já, ég hugsa að ég bjóði mig fram sem formann í Brussuvinafélagið.is   alveg viss um að ég  yrði kosin með öllum greiddum atkvæðum þó vissulega séu til skemmtilegar brussur til að vera með í félaginu ..m.a.s. búin að fá eina sem er til í að vera varaformaður  hehe......

 

En best að fara aðeins að kíkja í skólabækurnar ...enginn miskunn á þeim bænum,Wink

Hasta la vista


Eitt af því sem kemur BARA fyrir MIG

Á eina frábæra vinkonu ( reyndar á ég nokkrar frábærar vinkonur, en bara ein sem ég á við hér Halo ) En málið er að ég var að hjálpa henni smá í fyrrakvöld og hún vissi að ég var að fara á næturvakt  í nótt ( er semsagt á vakt núna) og bauð yngsta mínum að gista hjá sér , sonur hennar mjög góður vinur míns svo það var nú bara mjög vel þegið..þar sem ég þarf að sofa vel  fyrripartinn á morgun , því EFNAFRÆÐIN bíður mín kl.4 ..Dagur 3 í henni , tala um hana síðar Shocking 

ÓKEI! Hún sendir mér skilaboð á facebook þar sem hún spyr hvort það henti BH ekki bara vel að koma  í gistinguna og að skólastelpunni sé boðið í mat kl.19.05 ( var í skólanum til kl. 19 ) með guttana sína Wink mjög vel boðið, ástarþakkir  Heart Inga mín hehehe...  Jú , ég hélt það nú og tilkynnti drengjunum þetta , bara gott mál...

Jæja ég kem út úr efnafræðinni enn ringlaðri en eftir 1sta daginn og fegin að þurfa ekki að  fara beint í að elda þar sem  við vorum að fara í matarboð , dríf mig heim og sæki drengina og segi þeim nú að drífa sig því það sé kurteisi að mæta á réttum tíma þegar manni er boðið svona nákvæmlega!  ..sæng, koddi, tannbursti -tékk...ok koma svo...jújú, við  mætum á svæðið en enginn bíll heima svo ég sendi nú þann yngri til að tékka á hvort einhver væri heima og jú, húsmóðirin var í NUDDI! Cool  ..Þetta fannst mér nú undarlegt þar sem hún átti von á okkur kl. 19.05 og kl. orðin rúmlega það þarna...svo ég fór og spurði börnin hennar nánar út í þetta...hvenær hún fór í nuddið?.. kl.18:00 . ókei  það tekur nú lágmark klukkutíma með öllu að fara í einn nuddtíma og enginn matarilmur í loftinu svo ég spurði börnin hvort þau vissu að hún hefði verið búin að bjóða mér í mat með drengina  - Nei , þau vissu  ekkert um það en sögðu okkur að koma bara inn því hún  hefði ætlað að koma við og kaupa pizzu á heimleiðinni...Fannst það nú ekki alveg líkt vinkonunni að bjóða okkur í pizzuveislu en  vissi að strákarnir yrðu nú himinsælir með það og fannst þetta bara gott hjá henni ...

Dóttirin á heimilinu var búin að reyna hringja..en mamman í nuddinu og  auðvitað ekki með símann á sér þar en svarar svo símanum um kl. 19:30 á leið á pizzustaðinn og ég heyri að hún spyr .." mamma varstu búin að gleyma að þú bauðst Dollu og strákunum í  mat ? "

Mamman svarar ," neinei...þau koma  annaðkvöld! "  Grey stelpan segir þá " Nú en ég bauð þeim að koma inn..þau eru hér og halda að þú hafir bara gelymt þessu "Já einmitt...ég talaði svo við hana og hún sagði mér að vera bara áfram og  hún keypti bara aukapizzu  Tounge  Kemur svo heim með pizzur og brauðstangir  og  við borðuðum auðvitað öll með bestu lyst...  hlógum svo að þessu þegar ég fór svo heim og sagði að ég yrði sko að byrja á að lesa skilaboðin aftur  til að vita hvor okkar væri að misskilja hina eða hvað hafi eiginlega staðið í spjalltextanum! OMG! Þá stóð það alveg svart á hvítu...Skólastelpunni boðið í mat kl.19:05 á MIÐVIKUDAG ásamt guttunum sínum...sem er notabene í kvöld þá ..

 

Þetta er bara eitt dæmi af mörgum um það sem kemur BARA fyrir MIG ...Veit að þegar vinkonur mínar (aðrar góðar) heyra af þessu fá þær kast og segja  að þetta sé nú einmitt típískt ÉG !  En TAKK fyrir okkur Inga mín Kissing .....skal tvítékka næsta boð hehe...

Kannski komin góð sparnaðarleið þarna ..mæta bara til skiptis núna á næstunni með familyuna til vina og vandamanna á matartíma og segja svo bara...æææ, varstu búin að gleyma að þú bauðst okkur í mat ..........W00t


Skrítni KALLINN!

kallinn_i_tunglinu.jpgHef komist að einu sem mér finnst alveg stórmerkilegt en það er að ekki næstum allir sem ég þekki ( eiginlega bara mjög fáir)  hafa séð Karlinn í Tunglinu! Þar á meðal eru allir synirnir...hvernig hefur mér mistekist svona í uppeldinu að ég hef aldrei kennt þeim að sjá hann blessaðan Kallinn?

Við erum 4 systurnar og þar til í gærkvöldi vorum við bara 2 sem höfum séð hann síðan vorum litlar stelpur..fékk svo sms í gærkvöldi frá systur minni sem er 41 árs svohljóðandi : " ÉG SÉ KALLINN Í TUNGLINU "! Þannig að það er aldrei of seint að ná þessu hehe... Góð Helga..til hamingju með að kynnast Honum :)

En nú er elsti prinsinn minn að fara að heiman í dag ( án þess að hafa séð Kallinn í Tunglinu) ...leggur af stað í Höfuðborgina aleinn í heiminum til að fara í HR og verður a.m.k. til að byrja með í einu kjallaraherbergi í blokk í Rvk.( Hann er reyndar ýmsu vanur eftir 1/2 árs bakpokaferðalag síðasta vetur um Asíu og öll ævintýrin sem hann lenti í þar ) Honum eru sko allir vegir færir  :)  Hefur allavega húsaskjól þar og gæti fengið inni í Hafnarfirðinum en þá er það orðið ansi langt fyrir hann uppá tíma í að komast í og úr skóla og þannig... Gangi þér vel elsku  STÓRINN minn :*

en já var að tala við vinkonu mína áðan og segja henni frá sms-inu frá systurinni og fór að tala e-ð meira um Kallinn í tunglinu og þá heyrist í vinkonunni..." Hey, Dolla mín..hvaða töflur ertu búin að vera taka í morgun ?"  Hahaha...þá kom í ljós að hún hélt að þetta væri bara þjóðsaga um þennan Kall! Ég hélt nú aldeilis ekki og ég hef þó nokkrum sinnum spjallað við þennan herramann þegar við höfum horfst í augu ( eigum í hálfgerðu platónsku sambandi sko ég og hann ) ..eins var ég að tala við mjög góðan vin minn í gærkvöldi og hann ekki heldur komist í kynni við blessaðan kallinn!

Þannig að það er orðið ansi ljóst að Nú verð ég bara að hafa kennslustund í því næst þegar er fullt tungl að kenna fólki að SJÁ... Málið er að það þarf að horfa með ákveðnu sjónarhorni og þá bara ER HANN þarna í öllu sínu veldi og með frekar spaugilegan svip.... sem sést mjög greinilega á myndinni sem er með þessu bloggi

ps. Verð að bæta við hér..maður er semsagt alltaf að læra..nú fer ég að skilja að honum leiðist ekkert að vera svona einn..því hann er ALLS ekki einn! Var að stækka myndina og skoða hana og þá er annar minni kall þarna hjá honum sem hefur gaman að þessu öllu saman enda er hann brosandi og með sólgleraugu Cool  Gaman að þessu hehe...:)

 

Svo langt síðan þennan kall ég fann.. 

skrítið að ekki allir sjá hann..

Það er allavega eitt sem ég kann..

að horfa upp á þann skrítna mann ...

 

 

 


Að gera fleira og miklu meira

 

  • Eftir næturvaktir ég kann ekki lengur að sofa Sleeping
  • þá er nú gott að sjálfri mér er búin að lofa 
  • að losa mig við þær allar nema eina Joyful
  • feginleikanum  get ekki reynt að leyna
  • Aldrei áður hef fundið eins vel       InLove
  • að næturvaktakvótinn er liðinn ég tel
  • enda hef ég  nú vakað í 10 ár  
  • og að hætta núna  mér finnst ég klár Wink
  • er svo  tilbúin í annað  að gera og fleira
  • enda ætla ég það og  svo miklu meira  Whistling
  • Næturdrottningin því fer á bak við tjöldin
  • og skólastelpan kemur fram og tekur völdin Wizard

 

 

 

 

 

 

 


klapp á rassinn eða spark í rassgatið !!!

Mikið er ég fegin að mér dettur ekki mjög oft í hug að baka Sick Því þá fara einhverjir átvaglspúkar í mér í gang  án þess að spyrja mig hvort ég ætli að hleypa þeim  af stað eða ekki..væri svosem gott og blessað að hleypa þeim þá bara alla leið út  og  loka fyrir að þeir komist inn í mig aftur en þeir  eru lúmskari en það og kunna halda sér á "réttum stað" Shocking  

En líklega hefði mér ekki dottið í hug að fara baka þessa fínu súkkulaðiköku í dag nema af því að ég  þurfti að baka  Heimsins bestu Skúffuköku og senda hana með fótboltarútu á Selfoss í dag! já..Litlinn minn að fara keppa á fótboltamóti þar og  fór af stað suður í gær og mér fannst  þá einum of snemmt að græja helgarhressingu  á þriðjudegi ..svo ég sendi það með þeim gaurum sem fara/ fóru með rútunni í dag ...þeim finnst svo gott að fá sér góða skúffuköku og pissusnúða og kleinur í kvöldhressingu  þessum guttum svo allir lögðu e-ð slíkt í púkkið  ..sýndist rútan vera vel lestuð af allskyns kræsingum  innanum allar dýnurnar og sængurnar  Wink 

 En ég verð fjarri góðu gamni ( allavega fjarri fótboltagamninu ) um helgina þar sem sumarfríið mitt er á enda og  fer að fara að taka næstsíðustu næturvaktatörnina mína í laaaangan tíma..Er samt að spá í að kíkja á Dalvík í fiskisúpu annaðkvöld  og  taka út þá menningu  og svo er  Hrafnagils handverkssýningin alla helgina og  ég  meir en vís að kíkka á hana  allavega á laugardaginn eftir vinnu ...

svo bara  fer skólinn  að byrja ! Og þá er ekkert nema setja  í sig teygjur fyrir tíkaspenana og setja upp námsmannalúkkið og læra  12 tíma á dag ..( eins og  góður "þjálfari" Kissing sagði við mig hehe) ...Eins gott að hann standi sig vel á hliðarlínunni og hvetji mig með klappi á rassinn( aðeins penna orðað en að fá spark í rassgatið!)...svona allavega fyrstu mánuðina svo ég geti skrifað um hvað gengur vel  Cool  Er nefninlega búin að missa út úr mér  að VIÐ séum bara 50 sem höldum áfram ( af 135)  þannig að ég verð að standa við það  Whistling 

 ÉG VIL-ÉG SKAL -ÉG GET !

 

En ég greinilega er fljót að hlaupa úr einu í annað og þarf  heldur betur að hlaupa af mér þann hluta kökunnar sem ofan í mig fór í gegnum þessa PÚKA sem ég talaði um  og  vona að elsti prinsinn minn komi fljótlega heim úr vinnunni  til að gæða sér á henni áður en mammsan klárar allt ...ER reyndar búin með skammtinn  og meira en það í dag og  SKAL EKKI leyfa fleiri bitum að detta ofan í mig - frekar  út að trimma Smile Kissing

Jei..Prinsinn  mættur heim og voða glaður að sjá kökuna ..ísköld mjólk og  nammi súkkulaðikaka - Toppurinn hjá sumum Tounge Maður verður nú aðeins að dekra sína menn meðan  tækifæri er ..hann fer alveg að hverfa  að heiman og  í Borgina til að fara í HR meðan mammsan verður skólastelpa hér heima InLove


Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband