Bloggfærslur mánaðarins, september 2014

Magnaður dagur

 Dagarnir verða ekki magnaðari en þessi InLove en komst að því að þetta er erfiðara en ég hélt að vera svona á hliðarlínunni og bíða eftir fréttum Smile  ...Dauðhrekk við í hvert sinn sem síminn hringir eða ef kemur rautt merki um nýja færslu á facebook... En auðvitað reynir mest á snillingana á vígvellinum sem stóðu sig frábærlega og fengu frábærustu verðlaun sem hvert foreldri getur beðið um ...lítil og fullkomin dökkhærð lubbulína mætt á svæðið ...ég get ekki beðið um meir Heart

10369108_10152778114984073_2328786432418757328_n.jpg

 

 Ég veit vel hvað vakti mig....Einu löglegu vakningarnar um miðja nótt er að fá svona gleðilegar fréttir og  kl.04 í nótt, þegar Rúnar minn hringdi í ringlaða mömmu sína og sagði henni að litla fjölskyldan væri á leið á fæðingardeildina Grin ... Elsku litla ömmumúsin mín er Meyja og gæti ekki verið stundvísari en að mæta á settum degi 6. September ...

Þessi  litla dúllan okkar lét mömmu sína finna hressilega fyrir sér næstum alla meðgönguna, og ekki síður fæðingunni sem er búin að vera í gangi síðan um miðnætti...svo móðirin fékk ekki afslátt af fæðingunni (DUGLEGUST elsku Andrea ) ...og ömmurnar u.þ.b. að fara á límingunum....varð að hringja á fæðingarganginn og fá fullvissu um að allt væri í orden 3 tímum eftir að ég hélt að litla manneskjan væri að mæta...Pabbinn heldur betur að standa sig í að vera stuðningur... en nú er hún fædd... FULLKOMIN  dásemdarengill ömmu sinnar  Kissing ...

 

Nú þarf ég BARA að bíða í viku með að sjá hana og halda á henni og snerta litla nebbann og eyrun og alla litlu fingurnar hennar og tær .....Eins gott að verður brjálað að gera hjá mér í biðinni...  Skyldumæting alla virka daga næstu 5 vikurnar í klíníska náminu ...en fer sko suður strax næstu helgi ..allamalla litla dásemdin mín ... Ég er stolt amma og montin Heart 

 


Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband