Bloggfærslur mánaðarins, júlí 2012

Loksins Frjáls eins og fuglinn...


Þessi söngkona er búin að ná tökum á mér  og þetta lag er bara algerlega magnað... og fyrst  mér tekst að hlusta á það og njóta  án þess að fara hágrenja eins og ég hefði gert ekki svo mjög fyrir löngu...þá veit ég að ég er ready to move on Heart og það er DÁSAMLEGA þægileg tilfinning ...ekki lengur fangi í eigin hjarta eða heilabúi heldur líður eins og ég sé FRJÁLS  InLove Say No More ....

en njótið þessarar frábæru rokksöngkonu..skil ekki af hverju hef aldrei heyrt í henni áður Cool  ...

Leyfið mér að kynnaDORO gerið svo vel LoL

 

 So much freedom and so much choice

I'm always feeling this void

All those feelings got often burned

Was always bleeding and hurt

But you - you won my love

You won my love

I knew when I looked at you

You won my love, you won my heart

It's true,I know you felt it too

You made me feel like a dream come true

Made me heal all those wounds

Made me feel like I'm lost and found

You make me feel strong and proud

But you - you won my love

You won my love

I knew when I looked at you

You got my love, you won my heart

I knew,and you felt it too

That's why - you won my love You won my heart

I knew,I just looked at you

You got my love,you won my heart

I knew, and that you felt it too


Á sama tíma að ári :)

Þá er henni lokið ...þessari fyrstu árlegu gönguferð  hjá okkur bráðhressu skvísunum í gönguklúbbnum Ein og 8tta. Mjög flottur hópur sem smullum vel saman svo það var ekkert erfitt að ákveða að hafa svona "Á sama tíma að ári..en alltaf á nýjum stað"  ... 2 helgum fyrir Versló...eða viku fyrir Mærudagana  svo Dollsý  komist nú alltaf með Tounge...ég sagði nefninlega að ég fórnaði  Mærudögunum ekki fyrir neitt annað LoL

2012-07-22_16_13_24-16.jpg

 

 Það var stórmerkilegt að ganga þarna niður í Merkigilið og hugsa sér hvernig hún Monika ásamt öðrum sem þarna þurftu að klöngrast  í mismunandi veðrum og vindum og  árstíðum...ekki alltaf 18° hiti og logn eins og var hjá okkur Cool þvílíkt veður sem við fengum fyrri daginn ..alveg dásemdin ein takk fyrir takk Smile  

Svo var ekið inn að Ábæjarkirju eða svo gott sem þar sem Krúsinn hennar snillINGU minnar kom okkur áfram yfir þokkalega torfæran veg Kissing og þaðan eru 9 km. í skálann sem við gistum og eftir aðhafa gengið þangað  í þvílíka fallega landslaginu sem var af öllum gerðum og fjöllin fallegri en margt annað í litagleðinni ... var fátt betra að hugsa sér en að geta komist úr gönguskónum ...losna við bakpokana og geta hent sér niður .... Happy ....Allar þurftu nú að pissa fyrir nóttina en ENGIN okkar gerði sér fleiri en eina ferð á kamarinn .... úfff ...þá er nú betra að spræna út á túni  og fá vindþurrkun bara ..að vísu erfitt í logninu sem var Tounge...en SHIT fýlan sem fylgir svona kömrum ...NEI takk  Pinch

 En það var þessi fíni krani úti á túni sem var sameiginlegur fyrir gesti og hesta svo við fengum nóg af vatni til að sjóða okkur vatn á gashellunni í stóra pottinum

2012-07-22_22_19_42-1.jpg

 

...uhmmm...heitt kakó  var gott að fá sér eftir ða vera komin úr göngugallanum og buið að búa um okkur ..mjög fínar tvíbreyðar kojur  8 stk. svo við gátum allra verið einar í tvíbreyðu nema mæðgurnar deildu einni kojunni ...... og ég svaf mjööög vel ...rumskaði ekki frá ég sofnaði og þar til vaknaði  Sleeping en sú á "efri hæðinni" ofan við mig ..sagði að EIN hefði nú talað uppúr svefni ...og hver skyldi það nú hafa átt að vera ?? Jújú...Dollsý sjálf , hver önnur ..aldrei vitað til ða é gtali uppúr svefni og ég tilkynnti það víst um miðja nótt ..steinsofandi... að við værum fyrirmyndarhúsmæður !!! W00t Bwahahahahahaa... é gog hver það er sem átti að vera með me´r  veit ég ekki...en já auðvitað DREYMIR mig um ða verða það ...ehhe...ekki enn tekist það nefninlega..en hver getur verið fullkominn í öllu ?   Ekki enn fundið neinn þeim kostum búinn Shocking.....

Jæja...algerlega samkvæmt tímaáætlun fórum við að leita að Fagraskógi lengst inn í fagra Austurdal.... sem var í um 5 km. fjarlægð en við gegnum 6 km án þess að finna hann ...þar til við áttuðum okkur á að stundum borgaði sig að fara "efri leiðina" ahhahaha...smá einkahúmor fyrir klúbbinn  Devil En ..bæði vegna neðri leiðarinnar og aðallega skyggnisins í þokunni sem kom á fleygiferð aftan að okkur og náði okkur loks...þá sást nú minna en ætlað var ..en fengum magnaðan 12 km. göngutúr sem upphitun fyrir ferðina til baka

2012-07-23_11_01_44-1.jpg

 

... fórum fyrst heim og gengum frá og fengum okkur Gott í kroppinn  ... allar saddar og sælar þegar örkuðum af stað og þá var sko komið VEÐUR ...hífandi rok og rigning ...og við flottastar af öllum og þekktum ekki hver aðra fyrir klæðnaði hehe...sást að vísu glitta í augun á okkur en að öðru leyti þekktum við hver aðra á mismunandi skærum litum á yfirbreiðslunum yfir bakpokana ...allir neonlitirnir og engin eins ...snilld ..enda vorum við snillingar  alla leið ...og ferðin gekk eins og í sögu...vorum hálftíma fljótari en sömu leið kvöldinu áður..enda vorum við búnar að sjá alla dýrðina þarna í flottu skyggni þá og ekkert að sjá á strunsinu okkar í norðangarra , rigningu og  þoku  ...

Strax farin að sakna hópsins og hlakka  til að mæta á sama tíma að ári !  InLove


Enginn er verri þótt vökni í gegn :)

Var að lesa um tjöldin sem fuku og brotnuðu...Asskollans læti eru þetta!   ég er nú fegin að ferðinni minni var seinkað um sólarhring...og er ekki alveg á þessum brjáluðu slóðum ...ooog verð EKKI í tjaldi Cool  .. En  er að fara leggja í hann í magnaða 2ja daga göngu með átta brjáluðum kjéllum...nei gells auðvitað ..eða verðum átta með mér ... kannski sú eina  sem er  hálf brjal Tounge  lengst inn í Fagradal ! ... Svefnpokinn og  allskyns aukafatnaður komið í bakpokann..búin að pakka bæði upp o gniður og til hliðar og allt um kring...og endaði á að minnka um helming það sem ég tek meðferðis...alveg að verða snillingur að vera ekki með OF mikinn aukabúnað Smile...en þarf nú að vera þurrt með til skiptanna ef maðru skildi blotna mjööög mikið ...verður víst slatti rigning  á leiðinni..en sem sannur skáti ...einu sinni skáti _ ávallt skáti ekki satt.... þá veit ég að enginn er verri þótt vökni í gegn ........ Adíos mi amigos ... heyrumst síðar InLove


Laugardagsvinirnir

 

Það er svo gaman að vakna á laugardagsmorgnum og hlusta á þessa sprelligosa InLove...og ég er ein af þeim sem bíð alltaf mest eftir mömmu hans Simma..henni Gerði sem er mitt uppáhald ...hún er  perla þessi kona og svo gaman að hlusta á hana Grin  Það kemur fyrir að mér finnist við smá andlega skyldar...því hún greinilega á það til að misskylja "smá" stundum það sem sagt er..eða heyra "aðeins" vitlaust hahaha...eins og í morgun ...veðrið barst í tal og hún var að tala um hvað væri nú gott fyrir gróðurinn að rigningin væri  komin ..þó það væri nú líka búið að vera gott að vera með allri sólinni...þeir spurðu hana þá hvort hún væri orðin "hell tan" og hún heyrði  bara e-ð með hann Dan LoL alger snilli...

ég verð alltaf svo glöð að heyra um aðra en mig  sem misheyra svona Smile  og  eins mismæla sig ...eins og þegar Simmi spurði hana ... " Heyrðu mamma , hvað var það sem þú sagðir á spáni um árið þegar þú ætlaðir að fá þér Tequila " ?   ... Hún var fljót að muna það , því hún hefur örugglega notað orðið síðan ..en hún bað barþjóninn um ..."DRAKÚLA" LoL ...alger snillingur hahahahaa...og þá fór ég aðeins í back to the future gírinn sem ég á til að  detta í ...eina sem ég nenni að detta í sko...jú og reyndar elska ég að detta upp í rúm þegar ég er þreytt ..en allavega er ég hætt að nenna  "detta í það" Cool...en ég var semsagt að skemmta mér..greinilega var önnur nenna í gangi þá...því ég var örugglega að detta í það og langaði í lakkríslíkjörinn góða ..sem mér fannst allavega góður þá..ekki smakkað hann í mörg ár...nema hvað að ég bað barþjóninn um einn SWEET & SHORT  og fékk nákvæmlega það sem ég ætlaði....sem var notabene..HOT & SWEET   hehe...hvað skiptir máli þó helmingurinn af nafninu komi á undan eða eftir  og hinn helmingurinn alveg út úr kortinu ...þegar það skilst hvort eð er hvað maður er að biðja um..... hefði örugglega getað beðið líka um hot shot og fengið það sama  Tounge ...en barþjóninn hitti ég nú aftur á öðrum stað og öðrum tíma og hann fór að segja mér hvað honum þótti þetta fyndið  hvað ég bað um og hann sagðist hafa alvarlega hugsað um að hneppa bara niður um sig brækurnar þegar ég bað hann um "einn sweet & short" hehe.......  

og af því ég er að tala um Simma og Jóa og þetta með sweet & short er bara viðeigandi að koma með þetta snilldarlag sem ég hafði aldrei spáð í textann fyrr en í vor þegar ég var á góðum stað og þetta lag kom í spilarann ...þá fékk ég fyrirmæli um að hlusta á textann hahaha.... og það var nú engin rækja sem ég var með þá Whistling 

say no more.....en lagið er gott  W00t

og nú er það hinn laugardagsvinurinn sem ætlar að hjálpa mér með tiltekt í íbúðinni "ALLT í DRASLI " Devil

en með nógu miklum stuðlögum og back to the future gír sem lögin leiða af sér...verður tiltektin bara fun Heart  Semsagt ..Siggi Hlö á Bylgjunni núna ...

over & out Sideways

ÞEtta lag er líka bara eitt af þeim bestu InLove

 

 

 

 

 

 


kannski maður geri líka smá samning við Þorgeirsbola

Nú er heldur betur farið að styttast í gönguferðina sem við ætlum í nokkrar kvennsur Smile...Ætla bara að vona að Ábæjarskottan láti okkur í friði ..allavega svona haldi aftur af sér í mestu prakkarastrikunum...lætur örugglega aðeins vita af sér samt  W00t verð bara góð ef hún gefur okkur svefnfrið Tounge

Ábæjarkirkja

"Ábær, á eystri bakka Austari-Jökulsár, hefur verið í eyði síðan 1941. Steinsteypt kirkja, sem var vígð 1922, stendur þar enn þá. Meðal þekktra drauga í þjóðsögum er Ábæjar-Skotta. Hún var mörgum erfiður ljár í þúfu. Hún drap fé, hræddi fólk og er jafnvel sögð hafa orðið því að bana. Hún var í slagtogi með Þorgeirsbola og settist stundum á húð hans og lét hann draga sig, þegar hún var þreytt."

Ég geri kannski bara eins og hún og geri smá samning við Bola  ef verð mjög þreytt  Crying ...

 

"Merkigil er eyðibýli í Austurdal í Skagafirði og var nyrsti bærinn í dalnum austanverðum. Jörðin þótti góð bújörð en hún er umkringd djúpum og hrikalegum gljúfrum og háum fjöllum og aðdrættir því afar erfiðir".

Þar bjó kjarnakellan Monika með barnahópinn sinn og var ekkert að gefast upp eftir að maður hennar dó ..enda var slíkt ekkert í boði ! Sagan um hana "Konan í dalnum og dæturnar sjö" segir kannski meira en ýmislegt annað um hana Smile

 Annars hlakka ég mikið til að fara þessar slóðir..fínasta upphitun áður en ég skelli mér í Lonely útileguna mína sem verður fljótlega ...ekki búin ða ákveða hvert  ég fer í hana ..enda verður það óvissuferð eins og margt annað sem ég fer og geri  Cool eina sem verður vitað fyrirfram að ég fer með gönguskó tjald og smá nesti ..jú ok ipodinn fyrst ég verð ein Wink... 

en meira blogg frá þessum ferðum eftir að ég kem aftur heim... fer nú ekki fyrr en á sunnudag.. vinna nokkrar vaktir og eitt fótboltamót áður  og koma örverpinu til pabba síns ...þá get ég farið hvert á land sem er ...flott nokkurra daga frí um helgina fram í miðja næstu viku Grin    en nú er ég farin í pallakaffi á einn góðan pall ekki langt í burtu ...svo reyna púsla trimminu inní planið fyrir kvöldvakt ...

Enjoy your day alle sammen  InLove munið að lífið er ljúft Heart

 


Þögnin getur verið hávær

 nafnið á þessu fallega lagi því fékk mig til að spá aðeins í  hljóðum þagnarinnar .....

ÞÖGN:

-er þægileg...eftir mikil læti og áreiti (þó það sé jákvætt áreiti) en að fá svo þögnina ...er ÞÆGILEGT Joyful

-er ofbeldi...vera með einhverjum sem þegir þó þurfi margt að segjast..bara til að láta manni líða illa...er OFBELDI Alien

- er hávær...að vera með höfuðið fullt af ósögðum setningum sem hefði betur verið tjáðar með orðum ...það hljóð... er HÁVÆRT  Shocking

-er bergmál ... tengist mjög líklega setningunni fyrir ofan...því þessi ósögðu orð  geta ómað aftur og aftur  í langan tíma ...það finnst mér að sé BERGMÁL Whistling

-er stundum dásamleg.. að geta verið með einhverjum í þögn og líða vel á meðan er svo góð tilfinning svo þannig þögn...er DÁSAMLEG Heart

-er tjáning.... þú segir svo margt með þögninni... maður getur gert sig ótrúlega skiljanlegan í þögn ..fer eftir svipbrigðum..likamstjáningu...snertingu....andrúmslofinu sem myndast ... svo margt hægt að segja ÁN ORÐA  ... en samt eru og verða ósögð orð...sérstaklega þar sem þau voru EKKI gerð skiljanleg og ekki allir, líklega fæstir ..sem kunna að túlka hugskeyti og lesa þannig hugsanir.... ( guð veit hvað ég hef oft reynt þessa hugskeytasendingar ..án þess að tenging hafi náðst..en stundum tókst það og það er snilld ) Grin

en samt sem áður þó ég geti sko TALAÐ og MALAÐ þá finnst mér ákveðin tegund af þögn gefa mér svo mikið ..það er þögnin sem talar við mig ...þögnin sem segir mér frá mörgu....þögnin sem róar mig.....þögnin sem ég þarfnast og vil...líklega er það þessvegna sem mér líður vel einni með sjálfri mér...þó oftar sé farin að sakna að hafa líka einhvern annan hér...... InLove

 

ps. kæra vinkona mín sem hringdir í mig í gær og hafðir áhyggjur af að ég væri að verða e-ð skrítin Tounge þá er ég  auðvitað stórskrítin ..og mun alltaf verða  hehe.. en Don't worry hon... þannig er ég nú bara ... er góð sko ... er bara í smá uppgjörsgír þessa dagana við sjálfa mig og fleiri ...er einmitt að nota ÞÖGNINA til að tala við mig og gera ýmislegt upp svo ég sé til í að halda áfram án þess að fortíðarperlur séu að trufla mig ... því ég vil halda áfram ..þar sem ekkert og enginn úr fortíðinni verði til að trufla mig..bæði gamalli og "nýrri" ef hægt er ða tala um nýja fortið hehe....  en takk samt fyrir að hugsa svonafallega til  mín  eins og ég veit ða þú gerir nú oft elsku vinkona Heart þú ert yndisleg .....eins og allar mínar góðu vinkonur eru ... er heppin að eiga ykkur og ég þarf ekkert uppgjör að gera við mig í sambandi við ykkur dúllurnar mínar allar saman Smile

En njótið nú þessa fallega lags sem Emiliana Torrini fer svo vel með Halo knús í öll hús !

 

 

-

 


Ég er bara spontant ..sumir kalla það drama

Svefnpurka dauðans vöknuð GóÐAN DAG Pinch Síðasti facedagurinn um óákveðinn tíma er runninn upp Smile en nú er að fara trimmast eftir planinu fína sem gengur svona nákvæmlega eftir áætlun...já..ég sagði NÁKVÆMLEGA ( get alveg gert hluti nákvæmlega sko ) Tounge en það þýðir að Skemmtiskokkið er innan rammans og tímaplans og er akkúrat í enda plansins ...Hlakka bara til  18.ágúst !

Ég mun líklega skella inn einu og einu bloggi þegar ég fæ þörfina...bloggin mín koma bara þegar mér  finnst ég þurfa segja frá einhverju...en líka þegar mér finnst ég þurfa losa mig við eitthvað ...þó það sé persónulegt sem bloggin mín nú yfirleitt eru Whistling... Þau eru bara það sem kemur upp í huga mér eða er í huga mínum...og oft er gott að skrifa sig frá sumu í lífinu...allavega hefur hjálpað mér oft Wink    Ég mun aldrei nafngreyna einstaklinga í frásögum mínum ...nema þar sem ég veit að það mun ekki skipta viðkomandi nokkru máli að vera partur af minni sögu ...en í öllum tilfellum munu þeir sem lesa þekkja sjálfan sig  ef þeir koma við sögu í blogginu Cool

Ég er bara svo "spontant" manneskja ( sumir kalla það drama ) ..en ég er og verð tilfinningavera fyrir allan pakkann og ekki alltaf auðvelt að vera ég...en gaman er það nú samt og spennandi InLove  ...semsagt ..ég segi frá sumu ef og þegar mér hentar ...en mun aldrei verða með skítköst hér út í einn né neinn á prenti...slíkt skrifa ég frekar á ómerkilegt bréfsnifsi og ríf í tætlur á eftir...( ekki oft gert þetta en  komið fyrir) ...oooog  vitiði að ....það VIRKAR  Smile

 Ég er bæði með netfang og síma  svo það er alveg hægt ða hafa samband við mig áfram Wink og auðvitað má endilega kvitta í gestabókina hér á blogginu eða skrifa smá komment hér allir saman ... ótrúlega margir suma daga sem skoða síðuna mína...en ég sé bara tölur og súlurit en engin nöfn svo ég veit ekkert hverjir það eru sem nenna að skoða   nema þeir fáu sem hafa kommentað þar og á facebook Grin

 

en  nú er það trimmið  og  svo vinna til 23 .... Eigiði súper sunnudag hvar sem þið eruð 

 


Æm rítörn verý sún

What a Weather ! GÓÐAN DAG Cool

LAngar sko ekki að fara sofa núna í þessu yndi... sé til hvað ég stend við það lengi samt  Shocking..... annars var vaktin róleg og góð en sem betur fer aðeins tvær eftir af 7 í þessari törn og þá ætla ég að fara BYRJA lifa lífinu  þetta sumarið .... ALDREI...meina ALDREI aftur svona margar næturvaktir í einu ..3 algert hámark ..vá hvað ég finn fyrir þessu... finnst ég búin að vera handónýt og búin á því síðan ég byrjaði á þessum næturvöktum..algerlega bensínlaus og "allslaus" ... Alien eins og draugur bara... en það kom auðvitað að því eftir rúm 10 ár á þessum vöktum að kvótinn væri algerlega uppurinn..mismiklu úthlutað afhonum...þekki nokkrar sem eru búnar að vera  í þessu lengur en ég  - súper konur ..skil ekki hvernig þær endast ..en eins gott að einhverjir  geri það samt ...  Smile  ÉG hélt bara að þetta væri ekkert mál af því ég var búin að vera í margra mánaða pásu frá þessum vöktum ..en  eins og ég sagði..kvótinn kláraðist og ég geng á gufunni úr bensíntankanaum ...semsagt ..svona SLOW MOTION gírinn ..búinn að vera minn gír síðustu vikur .. ( Gott að geta kennt einhverju um  Tounge )..... 

...Nú óska ég eftir  almennilegu "sparki"...í  minn stóra og FLOTTA  ... í það minnsta alvöru klappi svo ég fari að koma mér í rallý gírinn ..sem er nú miklu meira í mínum stíl W00t ... þá verð ég svona  Gó gó gó gó gó gó góóóó..... semsagt  með öðrum orðum...Dolla returns very soon  Grin ...eins gott að vara ykkur við ...þið sem þekkið mig og vitið hverju ég gæti farið að taka uppá hehe... það er bara gaman að því... miklu skemmtilegra en vera þetta dauðyfli sem mér finnst ég búin að vera undanfarnar vikur ..............

Best að fara gera tékklistann fyrir það sem é gætla mér að gera í sumar... ...annars geri ég mjög líklega bara e-ð allt annað ...sem er reyndar stórskemmtilegt líka..fullt af fjöllum og skógarpúkum farin að bíða......þar sem  það er meira í mínum stíl..að fara ekki alveg eftri réttri röð endilega...eða að röðin á það til að brenglast e-ð örlítið stundum  ef ég stend í henni Whistling  ... og þá er svo gott að vera ég .... var að horfa á Bridget Jones mynd og búin að sjá að ég er bara ekki svo seinheppin þrátt fyrir allt ..þó við eigum alltof margt sameiginlegt samt vinkonurnar hehehe....  Böt ení hú.... Live the life alive ...SPRELL-alæf  ....þá erum við góð InLove

 


Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband