Ert þú pabbi minn?

Þegar ég var stelpa var pabbi að vinna við þá iðn sem hann lærði sem er múrari. (Man þegar ég ætlaði að feta í fótspor föðurins og verða fyrsta múrarakonan á Íslandi)!Wink Sá gamli þurfti þó ekki að hafa mikið fyrir að snúa mér við með þá hugsun og óskaði þess ekki beint sem framtíðarstarf fyrir dótturina..Takk fyrir það pabbi minn.

Hann var oft og iðulega að vinna úti og á  veturna var hann ævinlega alskeggjaður eins og virðist tíska hjá ungum mönnum í dag hver sem skýringin er .... og á vorin var eitt af verkefnum fyrir sumarið að klæðast nýjum og léttari búning þegar hann afhjúpaðist vetrarhamnum. Þetta þýddi það að ef pabbi sem á skilið að fá orðu fyrir að hafa sloppið tiltölulega heill á frá því að búa með 5 kvenskörungum, þar af ÞREMUR Sporðdrekum W00t...Já SÆLL! ...já, áfram með söguna...þegar sá gamli var LENGI inni á baði, þýddi það að hann var að raka sig fyrir sumarið. Eins og þeir sem vita hvað menn breytast mikið þegar hafa verið alskeggjaðir í langan tíma verða allt í einu "allsberir" í framan þá getið þið skilið viðbrögð hjá annarri hvorri af "litlu" systrunum eða tveimur yngstu, man ekki hvor þeirra það var....en pabbi byrtist í holinu frammi og þær verða svona líka feimnar við þennan mann.....Blush Önnur þeirra var  samt aðeins áræðnari, ákvað að ávarpa þann ókunnuga og segir varlega:"Ert ÞÚ pabbi minn?" hehe.... Datt þetta í hug þegar ég sá þetta dásamlega myndband hér...InLove

Kannski álíka var þegar ég lét án nokkurs fyrirvara klippa mig knallstutt um árið !!! omg, viðbrögðin hjá karlpeningunum mínum stóðu ekki á sér....Cool Ég mæti í klippingu og segi að ég vilji alveg stutt! ... Hvað meinar þú sagði hárgreiðslukonan?....Jú segi ég :"ég ætla að fá alveg stutt hárið, drengjakoll...." Já...ha??? Ertu alveg viss? er ég spurð aftur. Jú, mín var aldeilis ákveðin sko og þurfti ekki að sannfæra klipparann frekar en hún fór í skógarhöggshaminn og byrjaði ...Whistling"Má ég nota hnífinn?" spurði hún svo ...já, alveg eins og þú vilt og hvernig sem þú vilt sagði ég... Jiiii...en gaman segir hún...það er svo sjaldan sem maður fær að gera e-ð svona....Devil

Jæja, stuttu seinna er ég orðin "sköllótt" eða því sem næst en svona líka agalega ánægð með spegilmyndina...borga með glöðu geði og sæki svo yngsta soninn í leikskólann þá var hann tæplega tveggja ára... Þegar hann sér þessa ókunnugu konu sem ætlaði að taka hann með sér bilaðist hann og ríghélt sér í leikskólakennarann og ætlaði sko EKKI heim með þessari konu Shocking en leikskólakennarinn fékk hann til að sættast á að jú...líklega væri það óhætt og mamman væri bara "aðeins " með nýtt útlit....ok, við erum rétt komin heim þegar sá næsti í röðinni kemur heim úr skólanum þá átta ára... Hann var ekki vanur að skafa utan af hlutunum (hvaðan sem hann hefur það nú Wink ) og segir um leið og hann sér mig..... "Ojjjj mamma...þú ert illa ömurleg!" Undecided Jahá... það er einmitt það...smám saman er dásamlega líðanin hvað ég var fín með nýja lúkkið farin að breytast...og ég ekki alveg jafn örugg með þetta.... en bíðum nú við....kemur þá sá elsti að verða tíu ára heim úr skólanum. Hann kemur inn....snarstoppar þegar hann sér mig og segir EKKI NEITT... ég verð nú vongóð að þarna sé nú einn sme kunni flott að meta og spyr hann því hvort ég sé ekki FÍN?   "NO KOMMENT"  Pinchsegir hann sem var heldur dannaðari en hinn hehe.... en með þessu kemmenti sagði hann nkl. það sem hann meinti og það var að ég var illa ömurleg eins og bróðirinn orðaði svo pent hehe.....

Þá er komið að því að húsbóndinn sem þá var kom heim úr vinnu og sér frúnna...hann þreifaði aftan á hnakkann á mér (var að vona að þar væri rosahnútur bara í leyni ) ...finnur ekkert og segir:"Það var ekki verið að biðja um leyfi" ! Angry

hahaha....omg, get sagt ykkur það að ég sá mynd af mér frá þessu tímabili og ég skil fullkomlega viðbrögðin hjá þeim ÖLLUM LoL ... say no more annað en að hár í framan...hár á höfði eða hár  everywere þá er sko misjafnt hvernig fólk þau ber Tounge


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

þú ert snilld Dolls... en vorum það ekki við sem spurðum pabba? ....annað... mér finnast karlmenn með skegg mikið meira kynó en þeir sem eru allsberir í framan.. það er einn og einn sem ekki fer að vera með skegg.

Og mér fannst fljótt á litið í þessu myndbandi sem þú er með í færslunni, fannst mér maðurinn vera Reynir Geirsson!

Helga (IP-tala skráð) 15.10.2014 kl. 11:45

2 Smámynd: Sólveig H Sveinbjörnsdóttir

Hahahaha... Helga mín, nei það voru "litlu" svínin sem spurðu að þessu...en við vorum áreiðanlega jafn feimnar við þennan mann sem birtist á vorin hehe.... og talandi um manninn í videoinu ...þá sá ég son Reynis hann Rúnar minn fyrir mér þar sem hann er einmitt núna með litla dóttur og er kafskeggjaður í framan hehe.... man aldrei eftir Reyni með skegg...en það getur samt vel verið :)

Sólveig H Sveinbjörnsdóttir, 15.10.2014 kl. 12:46

3 Smámynd: Sólveig H Sveinbjörnsdóttir

Jiiiiiii Helga....ég fór aftur að skoða þetta video og Vá! Þú segi rnokkuð...ljótt ef þekkir manninn betur en ég...þetta er bara mjög líkt honum þangað til í restina þegar hann snýr sér fram

Sólveig H Sveinbjörnsdóttir, 15.10.2014 kl. 12:48

4 identicon

jú það vorum við Guðný, þetta var fest á filmu, ég var tannlaus í efri góm þannig að við höfum verið 6 og 7 ára eða 7 og 8 ;)

inga (IP-tala skráð) 15.10.2014 kl. 17:07

5 Smámynd: Sólveig H Sveinbjörnsdóttir

Sólveig H Sveinbjörnsdóttir, 15.10.2014 kl. 17:36

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband