Bloggfærslur mánaðarins, maí 2011
31.5.2011 | 03:08
Nóttin
Svo hljóðlát...Svo stillt...samt betra að sýna aðgát...svo verði ekki villt...
Ekki samt allir á nóttunni sofa... Mávarnir sér á MA túninu leika...Langar að vita hvort þeir mér lofa... að breyta þeirra lit, vil hafa þá bleika...
ÉG horfi á trén þau stara á mig á móti...
ÉG hlusta, því þau til mín hvísla...
ÉG sé þau fyrir mér skreytt allskyns jóladóti...
Ég heyri líka að tístir ein lítil en falleg hrísla...
Svona er hún hér nóttin....kyrr - falleg - alveg hljóð!
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
29.5.2011 | 16:00
ÉG BARA SPYR
Er sumarið búið ...
Er komið haust ...
Skil ekki hvert það hefur flúið...
né hvert það skaust...........
ÉG vona að komi nú aftur fljótt...
Sólin og hitinn til baka...
Þá fer ég í fjallgöngu ansi skjótt...
eða í skóginum læt til mín taka ..........
Say No More !
Bloggar | Breytt s.d. kl. 20:59 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
28.5.2011 | 18:26
Sábado
Er innanum fótboltagaura sem bíða spenntir eftir LEIKNUM!!
Aldrei eða allavega sjaldan sem mig skortir gaura hér í kringum mig á þessu heimili en bara gaman að því flottir strákar allir saman, En Man united mennirnir ansi samt meira spenntir heldur en sá sem er púllari ... en spurning hvað ég held mig lengi innan um þetta allt saman eða hvort ég fái ekki meiri útrás með að fara út að hlaupa
Annars fór ég í vinnuna í mrg. Alltaf gaman og gott að hitta fólkið sitt efir langt frí og fór svo á FRÁBÆRA Vorsýningu hjá Point dans studio ..virkilega flott sýning hjá þeim ..margir hópar á öllum aldri.
Kvöldið alveg óráðið enn, en allavega verð ég með réttu ráði ...
Áfram Rauðu Djöflarnir ...... Say No More.is
Bloggar | Breytt s.d. kl. 18:36 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
27.5.2011 | 09:29
Nú það virkar ekki lengur...
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
27.5.2011 | 09:19
Que suerte !
Það var nú ekkert nema heppnin sem skall á þetta heimili í gærkvöldi en nú er minna en 2 vikur í Eagles !! újé En málið var að ég var aldrei búin að sækja eða láta senda mér miðana sem biðu bara eftir því að verða sóttir...svo elsti sonurinn sem á reyndar einn miðann sótti þá þegar hann var fyrir sunnan fyrir stuttu... Kemur svo ásamt kærustunni sinni í smá heimsókn til múttu sinnar og ætlaði að láta mig hafa miðana í leiðinni - en Obb obobb ! ENGIR miðar ...Hann tvítékkar og þrítékkar í alla vasa ..hringir heim þar sem miðarnir voru og nei ekki þar , eðlilega ekki þar sem hann var búinn að setja þá í vasann svo hann gengur til baka leiðina sem hann kom og finnur þá miðana sem voru bara að slæpast á grasinu regnblauta við Lundaskóla Þar bara biðu þeir eftir að VONANDI RéTTI eigandinn fyndi þá en auðvitað hefði hver sem er getað fundið þessa fínu happadrættismiða úti á túni HAHA !
Ef þetta er ekki heppni mánaðarins veit ég ekki hvað það er... Hefði mest vorkennt honum greyinu þar sem hann var alveg að fara í flækju yfir þessu en slapp flott og vel
Njótið þessara góðu tónlistar og eigið góðan dag
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
26.5.2011 | 10:11
Buenos dias
Ekki slæmt að vakna aftur við sólargeisla inn um gluggann og það sem er enn betra er að það var ekki einu sinni erfitt fyrir örverpið að drífast á fætur en það er kannskifrekar vegna spennings fyrir 6.bekks íþróttamótið á milli skóla hér á Ak..Honum finnst auðvitað mikilvægt að verja titilinn fyrir Brekkuskóla vonum það besta ..
Morguntékkið á facebook búið ...
Morgunkaffið .. 1.bolli að byrja gera sig , þarf einn til áður en kemst á næsta þrep
Morguntiltekt ... bíður eftir að koffínið komi mér af stað svo ég bulla hér í staðinn
Kom við í vinnunni eftir að skutla í skólann og tók aðeins stöðuna á fólkinu þar ..sýndi þeim fína tattoo-ið mitt og eins og ég vissi ..fannst þeim öllum það rosalega flott..sem það líka er - Love it er samt ekki alveg viss um að sé að bera rétt á það..finnst eins og kremið smiti litnum útfyrir svo er alltaf e-ð að skoða og fikta í þessu sem er notabene BANNAÐ ! EKKERT fikt takk Þannig að nú reynir á ÞOLINMÆÐINA mína sem er svo góð að ég hefði átt að heita Þolfríður ! Or Not!!
En nú fer bolli 2 að verða búinn að streyma um kerfið á mér svo ég fer að sinna heimilisverkunum svoég geti notið dagsins í dag ( mælingar dagur í ræktinni obbobobb..)svo síðasti frídagur á morgun áður en næsta vaktatörn hefst.
Hasta la vista
Bloggar | Breytt s.d. kl. 10:22 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
25.5.2011 | 12:57
dagur 1
Buenos días....
Þá er ég aftur komin í bloggstuð eftir nokkurra ára hlé..var m.a.s. búin að gleyma slóðinni svo ég bjó til nýja
Á svona dögum ég hef yfir engu að kvarta...
Snemma í morgun hún vakti mig sólin bjarta...
Engin ásæða til að sjá framtíðina svarta...
Lifi lífinu í lit, þá sólin skín inn í mitt hjarta ...
og þar sem koffínskammtur dagsins er langt kominn í minn kropp...ætla ég að virkja hann í annað og segi hér stopp....
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)