Rokhelt húsnæði

Hey! Halló! DJÓK???? ...

Nebb... þetta er staðreynd... það er ROK hérna inni hjá mér þó gluggar séu lokaðir...Shocking get svo svarið það... er að lesa og blöðin á stofuborðinu fóru af stað (borðið er á miðju gólfi , en ekki undir glugganum) ... og hárlagningin bara fer úr skorðum...ja, allavega ef ég hefði verið búin að greiða mér í dag...er með miss.Grumpy með prófljótuna og lít ekki í spegil í dag Sick  ... en án djóks semsakt, þá kemur bara smá stormstrókur eina hringferð um íbúðina í hverri kviðu, get svo svarið það ....

Endilega bara hækka húsaleiguna um önnur 12% á einu bretti eins og í haust ef hún heldur ekki vindi ...en vatnshelt hérna allavega ennþá...það er alltaf e-ð gott við alla hluti Tounge.... en í svona mest óþægilegu veðri sem ég veit, af einvejrum orsökum er mér og hefur alltaf verið svo illa við svona rok og þoli illa svona hvin sem smýgur í gegnum mig ... þá sakna ég þess að hafa fang  til að halla mér að og faðm til að halda utan um mig og „passa mig" Blush

  Annars er ég gúddý sko .....Smile

Svo einn góður til að brosa að hér:

Vinir eru eins og jólasería!
Sumir eru svolítið bilaðir aðrir eru bara alls ekkert að virka !
Sumir gefa manni stuð, einn og einn blikkar bara og svo eru þeir sem lýsa upp daginn þinn Grin

 

Ég er „svolítið"biluð,- en virka samt og vonandi lýsi stundum upp dagana hjá sumum Tounge

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband