23.2.2014 | 10:07
KONA
Oftast hef glaðst og þakkað guði að ég skuli vera kona...
Gæti þó hugsað mér hitt á ferðalögum og svona...
Menn eiga auðveldar með að standa undan vindi...
meðan kona berar bossann, það er ekkert yndi...
nema fyrir forvitna sem kíkja og vilja gá...
fá þá líka að heyra"hvað ertað reyna sjá"
svei mér þá....
En ég veit þó að skipta myndi ekki vilja...
vera karl ég myndi aldrei skilja...
ég gleðst að vera mamma og móðir minna sona...
mjá! og seinna amma það ég líka vona...
Konur..Til hamingju með daginn og NJÓTUM hans...sama hvað við erum að fara gera ..
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.