25.6.2013 | 00:51
Skógarpúkar á kvöldgöngu
BESTI í heimsókn og ætlaði ég með hann í Kjarnaskóg að rölta einn hring (20 mín)..en það varð smá óvissuferð eins og mér einni er lagið að "skipuleggja" og enduðum á að vera í 1 tíma og 15 mín í kvöldsólinni sem varð að logandi eldhnetti þegar leið á...Vááá - það var FLOTT ...
Ilmandi Kjarnaskógur-upp Kirkjusteinsbrekkuna uppá hamrana-þar yfir og upp(rosalegt að sjá hvernig snjóþunginn hefur beygt og brotið trén...fannst við stödd í einhverjum ævintýraskóg í teiknimyndabók þar sem ég beið eftir að logandi gyllti eldhnötturinn sem miðnætursólin er á þessum tíma næði að reisa þau við aftur eins og hendi væri veifað....en gerðist ekki ...
Gengum svo til norðurs ...aðeins lengra en ég hélt að við ætluðum...en sú leið var ófær vegna mýrarbleytu...þarf aðeins að þorna betur áður en maður getur farið að þræða leiðina niður meðfram læknum og gilinu...
Komum svo niður rétt sunnan við Hamra-fylgdum stígnum aftur í Skóginn og kláruðum hringinn
Ekki nema tvær kanínur sem urðu á vegi okkar og önnur þeirra hélt hún væri héri ...Sáum líka skugga frá tveimur skógarpúkum milli trjánna.....
En þvílík dýrð sem veðrið er og lognið og ilmurinn af trjánum og blómunum...Mmmmmmm ...Love is in the air...Love it
Sofna nú sæl og mun sofa vel ..enda early wake-up í fyrramál... Vinnudagar framundaneftir góða helgi
Adios y Buenos noches
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.