6.2.2013 | 21:27
Kynleiðrétting
Það eru ekki bara við mannfólkið sem tökum upp á því að fara í kynleiðréttingu Hún litla sæta Lottu Skottið mittbúin að vera hjá mér í tvær vikur núna og ég var að komast að því að hún er hann hahaha... á ekki til orð....einsog maður hafi ekki átt kött áður..en Lóa mín heitin, það leyndi sér nú ekkert hvað hún var mikil Ladygirl ....öhhhhh... svona þangað til hún breyttist í lítið ljón elsku kéllingin...
en það hefur semsagt komið í ljós að hún Lotta litla "STELPAN" mín er með pungsa og báðar "systur" hennar líka hahaha...Jiminn eini ...ætlar að ganga illa að eignast stelpu á mínum bæ ..svo aftur er ég umvafin strákum af öllum stærðum og gerðum.. en kelirófan sem hann og gleðigjafi ....
Hélt ég yrði ekki eldri þegar fékk símtalið í dag með þessari tilkynningu hahaha.... , en þá varð nú að nefna gaurinn uppá nýtt og mörg nöfn sem spruttu upp í hugann...Fyrst af öllu datt mér bara í hug "Spotti" útaf sprellanum sem er þarna einvherstaðar inní pungsanum,"Keli" af því hann er svo mikil kelirófa, "Pungur eða Þorri" vegna Þorrans sem er nú í gangi, "Strákur" af gefnu tilefni, .... svo datt mér í hug nafnið "Spói" af því hin kisan mín hét Lóa ....og það var samþykkt af nafnanefndinni...svo nú er hann Spói minn hæstánægður með nafnið,lífið og leiðréttinguna And so am I ...þarf þá ekki að hafa áhyggjur af að verði kettlingafullur hehe.....
Athugasemdir
Til lukku með Spóa, flott nafn, þú verður bara að sætta þig að við að vera umvafin karlmönnum skvísan þín
Ásdís Sigurðardóttir, 7.2.2013 kl. 11:37
Haha...Takk fyrir það Ásdís .... og já , það sko ekki ekkert erfitt að sætta sig við slíkt
Sólveig H Sveinbjörnsdóttir, 7.2.2013 kl. 12:57
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.