18.7.2011 | 08:40
grrrrr...............
arrrg! Þetta á að vera bannað svona snemma morguns ...ég ákvað að blogga þar sem langter um liðið síðan ég gerði það síðast og er á fótum svona snemma í fríinu þar sem búið er að skella á tækniæfingum fyrir litla fótboltakallinn minn og hans lið kl. 8 á morgnana þessa viku og svo aftur venjulegar æfingar um hádegi...en já, ég er ekki betur vöknuð en það að ég gleymdi að vista uppkastið og þar með strokaðist allt út og ég var búin að skrifa þessa fínu ritgerð frá Húsavíkurdögunum mínum..Kanski þetta hafi ekki verið fyrir viðkvæma og þessvegna einhver stjórnað því að allt þurrkaðist út en nú nenni ég ekki að skrifa það allt aftur , nema hvað það er gott að koma á Víkina fögru og þar eru góðar göngu og trimmleiðir sem ég hef ekki farið áður eins og að hlaupa kringum Botnsvatn sem var svo gaman og falleg leið .. og gaman að hitta "gamla" Húsvíkinga til að knúsa og spjalla
Annars var lesturinn aðallega um okkur systur sem höfum stundum verið kallaðar "skvetturnar " hans Bróa.. líklega vegna þaess að þar sem við komum 4 saman er ævinlega mikið gaman og hvort sem við vorum á kaffihúsum út í bæ eða heima hjá múttu eða hver annarri , þá er hlegið og fíflast út í eitt og brandararnir hver öðrum fyndnari og merkilegri en yfirleitt skilur þa´enginn nema við þar sem þeir eru yfirleitt búnir til jafnóðum hehehe... Bara snilld hjá okkur The Syst.
Svo var líka þetta skemmtilega ættarmót þar sem við vorum 70 manns sem erum komin af langömmu og langafa ..en þeir sem voru á ættarmótinu voru börn þeirra ( bara einn á lífi af 3 en hann er ættarhöfðinginn!) og þeirra afkomendur ..tókst rosalega vel og gaman að hitta alla sem eru svo löngu brottfluttir í allar áttir og maður sér örsjaldan og suma aldrei , nema á ættarmótum ..............
Jæja, ætlaði að gera e-ð við daginn annað en vera í tölvunni fyrst er komin á fætur svona snemma...var rétt farin að njóta þess að geta sofið út hehee..
En fljótt fer ég aftur til elsku Húsavíkur og þá eru það Mærudagarnir sem kalla og verður gaman gaman, bara verst að verðum þá einni systur fátækari þar sem hún verður rétt farin heim til sín til Noregs .Sakna hennar strax ..
Athugasemdir
Kemmtu þér vel á Mærudögum, ég verð með í huganum.
Ásdís Sigurðardóttir, 18.7.2011 kl. 11:55
Já takk, geri það ekki spurning...þetta var svona sma´upphitun fyrir Mæró núna síðastliðnir dagar ;) ...Þú kemur á svæðið í draumunum þínum :)
Sólveig H Sveinbjörnsdóttir, 18.7.2011 kl. 12:55
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.