Bloggfærslur mánaðarins, júní 2013
25.6.2013 | 00:51
Skógarpúkar á kvöldgöngu
BESTI í heimsókn og ætlaði ég með hann í Kjarnaskóg að rölta einn hring (20 mín)..en það varð smá óvissuferð eins og mér einni er lagið að "skipuleggja" og enduðum á að vera í 1 tíma og 15 mín í kvöldsólinni sem varð að logandi eldhnetti þegar leið á...Vááá - það var FLOTT ...
Ilmandi Kjarnaskógur-upp Kirkjusteinsbrekkuna uppá hamrana-þar yfir og upp(rosalegt að sjá hvernig snjóþunginn hefur beygt og brotið trén...fannst við stödd í einhverjum ævintýraskóg í teiknimyndabók þar sem ég beið eftir að logandi gyllti eldhnötturinn sem miðnætursólin er á þessum tíma næði að reisa þau við aftur eins og hendi væri veifað....en gerðist ekki ...
Gengum svo til norðurs ...aðeins lengra en ég hélt að við ætluðum...en sú leið var ófær vegna mýrarbleytu...þarf aðeins að þorna betur áður en maður getur farið að þræða leiðina niður meðfram læknum og gilinu...
Komum svo niður rétt sunnan við Hamra-fylgdum stígnum aftur í Skóginn og kláruðum hringinn
Ekki nema tvær kanínur sem urðu á vegi okkar og önnur þeirra hélt hún væri héri ...Sáum líka skugga frá tveimur skógarpúkum milli trjánna.....
En þvílík dýrð sem veðrið er og lognið og ilmurinn af trjánum og blómunum...Mmmmmmm ...Love is in the air...Love it
Sofna nú sæl og mun sofa vel ..enda early wake-up í fyrramál... Vinnudagar framundaneftir góða helgi
Adios y Buenos noches
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
19.6.2013 | 16:07
Ójá ! Oui, je vais !
Vvúúllle -Vúúú ???
Finnst að maður eigi að eyða sumrunum á Greece...Þar hvorki kroppur né heili frís... Finnst eins og þar ég muni eiga heima...þó víðar ég leiti um alla geima... Svo margar FALLEGAR strendur...tala nú ekki um heitar hendur... Margar eru þessar Bjútífúl draumaeyjar...þar allir eru brúnir peyjar og gylltar meyjar...Langar leiðir þar ég sæist glóa...eins og hér heima gera bæði Spói og Lóa...
Held að svona fallegan draum ...maður eigi að gefa gaum... Aldrei skal nokkur segja aldrei eða nei... því eftir tvö ár ég mun segja VEI... Í draumi minn smiður byggir á strönd ...setur á verkið sína góðu hönd... undir klettum mun reisa lítið en falleg hús ...og mun að launum fá endalaust knús .........
Hvar væri ég stödd án drauma minna ....meðan þarf vinnunni að sinna.... ósofin í miðju næturvaktaríi...ég bíð eftir mínu fríi... læt hugann reika...og nota tímann til að leika
ps. Er í sumarfríi frá facebook og kem sjálfri mér skemmtilega á óvart ...er ekki með fráhvarfseinkenni ...C U later...aligeiter
Bloggar | Breytt s.d. kl. 16:25 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
13.6.2013 | 18:24
Stórkostleg upprisa
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
12.6.2013 | 18:57
kemur á óvart þó hafi vitað í hvað stefndi
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
6.6.2013 | 19:03
Varðhelgi framundan :)
Sólin er að bræða frosnu snjókornin sem hulið hafa jörðina og lífga við kossana þegar heitar varir snertast.....En kaldir kossar án vara geta líka orðið brennheitir þegar lærist að kveikja neistann sem þarf....... þá getur verið gott að kæla þá með ís...sem er fljótur að bráðna..Eins gott að það eru nokkrar ísbúðir í bænum þegar slíkar hitabylgjur skella á.... styttist í besta koss sem er hvorki án vara né Varða
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)