Bloggfærslur mánaðarins, júní 2012
18.6.2012 | 09:08
Þetta tókst honum!
Þá er það komið sem ég hélt að myndi ekki gerast... sektarmiði í pósthólfinu ... sem ég varð nú að líta betur á..jújú... ekki um að villast og ég get ekki klínt á neinn annnan en Mússó ..elsku mússann minn ...OK ... og sjálfa mig auðvitað... Jáájá..veit þetta er jafngott á mig eins og aðra sem ég hef sagt það sama um þegar ég heyri að einhver sé tekinn fyrir of hraðann akstur...hef nú 2svar verið stoppuð fyrir of hraðan akstur ..sinna sinna ekki stöðvunarskyldu og að tala í símann á ferðinni.....en slapp með skrekkinn í öll skiptin eftir smá blikk eða e-ð ...veit ekki enn hvað var til þess að mér var alltaf sleppt eftir smá spjall..... NEMA EKKI NÚNA! ...enda var enginn sem ég gat reynt að blikka ..því hel..... myndavélin náði mér núna... á Hvalfjarðarleið ...tekin á 100 km/klst...en 3 km. dregnir frá og sektin lækkar og engir punktar verða dregnir frá ef ég borga fyrir 20. !!!
ARRRRrGGGGggg....eins gott að fara prjóna þá til að vinna uppí sektarkostnað! ...eeeen.. þetta er bara sett inn svona sem víti til varnaðar...því ég hef haldið því fram að það góða við Mússa minn sé að maður verði allavega ekki tekinn fyrir of hraðann akstur á honum..en ALLT er greinilega hægt svo take it easy alle sammen og akið VARLEGA og SLOW! samt ekki túsló
Annars óska ég ykkur gleðilegs og ánægjulegs mánudags...er að fara undir sængina mína góðu að sofa... og nú bara 2 nætur eftri enn ;)
þá vikufrí ..trallalí !
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
12.6.2012 | 13:21
Bara svona ef þið trúið.....
Góðan daginn nær og fjær...
Ég verð að því miður að tilkynna það að heimferðin er ekki blogghæf ...þ.e.a.s. hún gekk eins og í sögu ef þið bara trúið..og ekkert fréttnæmt þessvegna sem var bara kærkomin tilbreyting hehe.... en get ekki neitað því samt að meðan ég sat í rólegheitum...já..ég kann það alveg sko ...þegar þannig stendur á ..og í gærkvöldi bara blístóð þannig..því ég var svo calm......... er semsagt bara að búin að næra mig og komin á lokabiðstöðina og byrjuð að lesa..( loks kom að því að ég fengi tíma til að byrja á bókinni sem mér var lánuð fyrir ferðina )...þá er kallað upp nokkrum sinnum að einhverjir farþegar sem voru að fara til köben yrðu að drífa sig hið fyrsta á ákveðið hlið...því vélið átti að vera farin.... kannski þessvegna sem varð bið á að mín vél kæmist í loftið hehee.....en já , fólk sem ég sá koma þjótandi á harðaspretti dragandi flugfreyjutöskurnar á eftir sér svo að dekkin snertu nú ekki gólfið einu sinni ..þau áttu nú samúð mína fyrir allan peninginn ...grey fólkið...hvað voru þau að hugsa...ekkert að fylgjast með farðinni sinni ..hemmhemm,,.....jæja...ég keypti það sem var á MUST KAUPA listanumfrá sonunum í norsku fríhöfninni...og þurfti því ekki að kaupa neitt í þeirri íslensku nema hvítvínið mitt góða... kom út þaðan með 12 flöskur ..já sææællll!...En það er allt í lagi ...mátti taka 3 lítra af léttu og þeta voru bara 250 ml. flöskur ...Mmmmmm... hlakka til að svala mér á því á góðum degi / kvöldum....
En...svo trílla ég með hafurtaskið í átt út að finna einkabílstjórann minn sem ég á þegar ég er á ferðinni um Leifsstöð .....jájá...ég fylgi bara örunum á gólfinu auðvitað og kemur þá ekki út úr vaktklefanum hjá tollurunum ein tollaraskvísa vígaleg og segir mér að smyglarar þurfi að koma þessa leið...ég sem heyri nú ekki alltaf alveg endilega rétt það sem sagt var ..he´lt að é ghefði heryt e-ð vitlaust og segi HA?...hún endurtekur og ég geng e-ð skrítin í átt að henni og segi aftru...hvað segirðu ...é gheyri e-ð illa ...skil þig ekki ? ..Þá sagði hún aftur..jú , þú verður að koma hingað inn ...með smyglið ! ahhaha... og bakvið okkur var kolsvartur speglagluggi og ÞÁ...fattaði ég þegar var að fara elta hana....!! " ER STEBBI þarna ? spurði ég ...ahhaha...þá sprakk hún úr hlátri og fullt búrið af einkennisklæddum töffaratollurum sem voru að spriga úr hlátri og sá sem hló hæst var auðvitað Stefanó!! einkabílstjórinn sem var mættur til að taka á móti mér... hann vinnur í tollinum og sagði hinum að hann skyldi bara sjá um leitina á þessari þegar hannn var búinn að knúsa mig ...svona eru "VINIR" manns! hehe.....Jæja...eftir að hafa kíkt á hans family og nýja afagullið hans ...lagði é gaf stað og þurfti aðeins aðkoma við hjá mínum elsta ..kom heim með fullan Mússó af einhvejrum dekkjum!!! og svo brunaði ég heim.....í þvílíkt fallegu nóttinni...var "næstum ein í heiminum" ..nokkrir flutningabílar...
En þegar var komin í Skagafjörðinn ...þá voru fleiri GÆSIR og KINDUR með afkvæmi sín sjáanleg en hestar!!!..en bæði gæsirnar og kindurnar með lömbin...voru svoleiðis í vegköntunum og á veginum...að það var eins gott fyrir syfjaðan ökumann að vera með athyglina í lagi ...sem ég auðvitað var... en ekki hvað... svo bara home sweet home núna ...love it.....en Noregsferðin var Æðisleg í alla staði... fékk gott frí þar og Hressilega strengi sem eru að kála mér í dag hehe...... En Guðný systir sem ég á að þakka strengina sagði mér áðan að hún sem hefur oft farið í þessa tíma... að hún og sjúkraþjálfarinn hennar sem var með tímann ...þau eru sko bæði með strengi í rass og lærum ...svo ég þarf ekki að vera hissa á mínum
Enjoy your life ...everywhere you are...ég ætla njóta mín þar sem ég er hverju sinni
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
8.6.2012 | 11:59
flugvallarsérfræðingurinn
Góðan daginn.... Hef það yndislega gott á koníaks- / kaffipallinum hennar Guðnýjar syst í Skodje.....nýkomin frá Moa alveg við Alesund þangað sem við systur fórum til að kaupa hvítvín og Bacardi Cherry fyrir helgina ... fyrst FRÍHÖFNIN klikkaði svona svaðalega ...
Jæja, veit ekki hvort ég legg í , en ætla samt að segja frá flugvallarsögu nr. 2! Var snemma í því bara..kláraði að setja það síðasta í töskurnar og loka og röltum af stað á leigubílastöð rétt á Bokstavvejen ..kvaddi góða vininn minn þar, sem heldur áfram sinni leið og ég minni....
jæja..leigubílstjórinn kom mér á rétta lestarstöð og ég fer inn og kaupi miða í RÉTTU lestina takið eftir...voru 2 sjálfsalar og ég er sem betur fer farin að vera duglegri að lesa leiðbeiningar hehe... svo það stóð á þeim fyrri..gildir EKKI í fluglestina...þá var hinn...og út úr sjálfsalanum sprettur kort með segulrönd og ég geymi það sem betur fer vel... ég fer úr lestinni á RÉTTUM stað líka sko! hugsaði að nú getur ekkert klikkað....hvað gerist þá??... Jú, þurfti nú aldrei að sýna kortið í lestinni en það er ekki hægt að komast inn í flugstöðina af lestarpallinum, nema nota þetta kort..fullt af hliðum en sama hvað ég reyndi..aldrei opnuðust hliðin! ..ég reyndi allavega 3svar og í því síðasta gerðist ekkert..frekar en hinum, nema það kviknaði á rauðu blikkandi ljósi og sírenur fóru í gang !!! ÉG er að segja ykkur það að ég fæ GREINILEGA ekki næga athygli með að vera bara á ferðinni svo ég þarf að kalla á hana með svona löguðu...ef ekki kölluð upp í hátalarakerfi ..þá set ég sírenur í gang hehe...en það varð til þess að einkennisklæddur starfsmaður kom mér til bjargar og ég varð MJÖG FEGIN þegar ég sá að kortið virkaði ekkert betur hjá honum híhí...ég var þrátt fyrir allt ekki alger BRIDGET JONES...þannig að hann hleypti mér í gegn með lykli !
Jæja, inn kemst ég og trítla mð mínar töskur og finn STRAX hvert skal stefna...varð að vísu að hringja eitt símtal í systir sem keypti flugið til að vita með hvaða flugi ég ætti að fara...Jammjamm... það var ekki nóg að vera með flugnúmer..en fínt að vita að ég flaug með SAS og þá gat ég farið á rétt borð og innritað mig í sjálfsala..allir eiga að gera það sjálfir svo nú er ég búin að læra það líka..þvílíkt sem maður er orðinn veraldarvanur sko ...get tekið að mér fólk í kennslu í þessu sko :P..
jammajamm..þetta gekk bra ...nafna mín tók við töskunni..henni fannst voða sniðugt að ég væri nafna sín ...og svo var leitin mikla...en ég flaug nú auðvitað í gegnum hana...og fer upp og þar er FRÍHÖFNIN strax til hægri þegar kemur upp ....og ég hef nú verið þarna áður að koma frá Íslandi til Álasund svo ég vissi nú að ég var á réttum stað... og ég dúllast lengi ..var með svo góðan tíma sko ! og dúllast í fríhöfninni..búin að finna þetta fína vín bæði til að færa systur og mági mínum honum JIM... fann nefninlega viskíflösku sem heitir Jim eitthvað..svo fylli ég uppí körfuna með allskyns nammeríi handa krökkunum þeirra..(gleymdi nú að kaupa íslenska nammið í Leifstöð úr sögu 1 ) ...
ég fer svo að borga og er beðin um boarding pass sem ég skelli á borðið..búin að týna allt upp úr körfunni..... þá segir afgreiðslustelpan " Ertu að fara til Álasund ? " ....Já segi ég .... " EEEN það er innanlandsflug"...já ég VISSI það nú..er ekki alger sko ! ... ...þá segir hún..því miður , þá máttu ekki versla hér ! HA! ég sem var svona lukkuleg með að geta sprangað bara inn í fríhöfnina þarna og verslað... þannig að ég mátti fara til baka..og bara beint á móti..semsagt hefði ég beygt til vinstri hefði ég komið í innanlandsdeildina...en hvað gerist þá ????...
já sagan er sko ekki búin þarna....nú fer hún fyrst að byrja....mér fannst allt búið að ganga svo vel... NEI! þá eru komnir tveir öryggisverðir við hliðið inn...sem voru ekki þar þegar ég kom..og ég ætlaði bara að ganga þarna út..nei takk...það er ekki leyfilegt og þó ég segði þeim að ég hefði "aðeins " ruglast og lent í fríhöfinni...mátti ég ALLS ekki undir neinum kringumstæðum ganga þarna út ..þó að ég þyrfti bara örfá skref og þá væri ég komin á réttan stað...þeim fannst það samt voða leiðinlegt en sögðu að ég yrði að fara aftur gegnum fríhöfnina..bara ÁN þess að kaupa neitt...og fara "ALL THE WAY DOWN..(það var engin smá leið)...og svo beygja til vinstri og þar upp og svo til vinstri ... og svo aftur niður og fara aftur í gegnum tollskoðun og leitina og allt uppá nýtt , nema innritunina !...
Þarna var ég aðeins farin að stressast og líta á klukkuna en það voru samt enn rúmir tveir tímar í brottför svo ég var ekki alveg að missa mig nema ef nú væru örugglega komnar svo miklar biðraðir eins og búið er að vera víst þarna útaf verkfalli sem í gangi ... en það slapp..ég orðin hálf sveitt af "hlaupunum"...þakkaði mikið fyrir að vera búin að æfa STRUNSGÖNGU í Oslo undanfarna daga ...( vissi að það væri ástæða fyrir því að ég væri alltaf labbandi svona hratt hehe...til að ég gæti reddað mér í svona aðstæðum..þetta er enginn Akureyrarflugvöllur ..) krææææst..og hvað haldiði þá... við hliðið ..þar sem maður fer í leitina og einn vörður sem skiptir manni niður á hlið.... hann segir ...nei þú komin AFTUR!!! HANN þekkti mig maðurinn...svo annaðhvort er ég svona ógleymanleg og eftirtektarverð ..þó sé ekki að gera neinn skandal...eða þá að það er búið að senda svona interpól mynd af mér í öll tölvukerfi og vara fólk við að þessi sé vís til alls..varúð og takið eftir henni hehehe.....en hann bauð mig bara velkomna aftur og glotti þegar sagði honum stutt söguna..þetta er pottþétt að koma fyrir annaðslagið ( ...ekki bara ég sko ) hehe.... jæja ....
úff púff..... var dauðhrædd um að nú færi að ýla á mig í leitinni eins og var hjá nokkrum fyrir framan mig og þurfti að fara leita á fólki og strjúka það upp og niður...ég hugsaði mest um að ef þyrfti að gera það við mig...þá væri ég örugglega hálfsveitt öll eftir þessa strunsleit mína að réttum byrjunarstað aftur..því það var auðvitað ekki hægt fara venjulega leið til baka ....en slapp sem betur fer...
Nú komst ég upp ...! og VINSTRI SNÚ!...þar gat ég loks sest niður og fengið mér morgunmat sem ég breytti í lunch ..því klukkan var orðin það margt ..en enn átti ég einn og hálfan tíma í flug og gat SLAKAÐ á og naut þess að gera mannlífsrannsóknir eftir að hafa verið POTTÞÉTT á því kl. hvað flugið væri og við hvaða hlið ég ætti að vera ehhe...mætti halda að ég hefði aldrei ferðast áður sem er ekki rétt..en ég hef aldrei þurft að gera neitt áður..alltaf bara staðið til hliðar með börnin eða bara sjálfa mig og látið aðra græja og svo bara elt og fylgt hehe... .þannig að nú er ég orðin svo heimsvön og til í allt ..að ég ætla að taka að mér skipulagðar ferðir að hjálpa fólki að komast í gegnum flugvelli heimsins :) ...Skipulagðar..jaa...allavega óvissuferðir..því það eina sem er pottþétt hjá mér í mínu lífi..er að ekkert er pottþétt..óvissuferðir a´hverjum degi allt árið ..og það er það sem gerir allt svona dásamlegt ... lifi enn eins og ég hef lifað, eftir uppáhalds mottóinu mínu " ÞETTA REDDAST" og alltaf gerir það það....
Og hingað er ég komin og nýt lífsins í dásamlegu veðri ....ÉG ELSKA LÍFIÐ
Bloggar | Breytt s.d. kl. 12:33 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
6.6.2012 | 18:04
Dásemdardagar í Oslo
...Þá ætla ég að segja aðeins frá því hvernig ég hef haft það hér í Oslo ... Eftir mjög góða móttöku ... var farið í óvissuferð niður í bæ að finna dinnerstað ... röltum vopnum búin staðsetningarbúnaði í símanum hans Eika kom sér ágætlega nokkrum sinnum hehe... ekki það að ég var með þetta fína kort sem reddaði mér nokkrum sinnum...þar til það týndist í HM í gær :P ..en kom ekki að sök þar sem ég er orðin svoooo ratvís í allar áttir núna ...íbúðin er á BESTA stað ...stutt í allar áttir einhvernveginn og þó maður týnist smá ....þá dettur maður alltaf inn á einhvern kunnuglegan stað ...alveg MAGNAÐ hvað þetta er ekki stærra svæði einhvern veginn :)...Það var laugardagskvöld og allsstaðar fullt en duttum inn á rosafínan og góðan kínverskan stað við Akerstorg hjá Akersbryggju þar sem við fengum mjög góðan mat ...mmmmm.... magnað... komum aðeins við á Færeyskum pöbb á heimleið og trítluðum í gegnum hallargarðinn..en þangað er ég búin að renna framhjá og í gegnum nokkrum sinnum þessa daga ... þeir hljóta vera farnir að þekkja mig grey verðirnir sem standa sem myndastyttur allan daginn og kvöld....
DAgur tvö:
Vaknaði þegar Eiki fór í vinnuna og skellti mér í Frogneparken ... sem er í nokkurra mínútna fjarlægð frá íbúðinni ..alveg magnað... þar dúllaði ég mér heillengi og á ekki orð hvað þetta er flottur garður og stytturnar meistarasnilld .... gekk framhjá sushistað sem ég hugsaði með mér að gæti orðið fínn um kvöldið... skrifaði niður hjá mér heimilisfangið á honum svo hann fyndist um kvöldið...en fyrst var Dollsý boðið í mótorhjólarúnt heim til Önnu Lóu bekkjarsystur sem býr á frábærum stað aðeins út úr Oslo... það var aldeilis gaman að hitta hana og spjalla ..sérstaklega þar sem hún komst ekki á bekkjarhittinginn um daginn ...:) Og aftur að mótorhjólaferðinni...ekki stigið á slíka græju í rúm 20 ár...og vá..hvað var gaman ...en um kvöldið röltum við okkur að sushi staðnum í enn einni óvissuferðinni og fundum staðinn án vandræða..en ekki hvað ;)...... við hliðina á honum var Indverskur sem heitir Karrý og Tómatsósa !! ákváðum við að gægjast aðeins þangað inn og ÞÁ var sko ekki aftur snúið þó við þyrftum að bíða standandi og ekki alveg fremst í röðinni þar til losnaði borð ... bara lyktin og ilmurinn þarna inni gerði mann dáleiddan ..tala nú ekki um að sjá bara allt sem úði og grúfði af þarna inni...sérlega skemmtilegur staður og ég mun ALDREI sjá eftir því...uhmmmmm....get ekki lýst því hvað þetta var mikið lostæti... og ekki fyrir EYMINGJA..... þarna inni hefði ég ekki getað borðað með hverjum sem er sko ! ...Fæ sko enn vatn í munninn bara við að skrifa þetta... logandi sterkur og góður matur ..en samt fann maður bragð ... KAldur bjórinn líklega bjargað því að ég var ekki alveg farin að slefa þegar tungan dofnaði hehe....FRÁBÆR endir á frábærum degi....
DAgur 3:
Fór aftur í Froskagarðinn...en nú til að skokka en ekki til að skoða styttur... fólk er skokkandi , hlaupandi, hjólandi, gangandi.... um ALLT þarna ..allstaðar sér maður fólk sem er svo duglegt að hreyfa sig....fór svo heim í sturtu og skipti um föt og næst á dagskrá var Karl Jóhanns gatan ...enn fer ég í gegnum hallargarðinn og í þvílíkt góða veðrinu ...tók fullt af myndum þar og held áfram minni göngu... mjög skemmtileg mannflóra um allt þarna.... endaði svo niður við höfn hjá Óperuhúsinu og gekk upp á þak þar ...og svo hjem aftur... náði AÐEINS að villast þar sem ég gleymdi að taka eina beygju þegar fór og "sótti" Eika í vinnuna en það hafðist og við röltum okkur í þriðju óvissuferðina í matarleiðngur hehe.... enduðum þá lengst niður í bæ á spúkí Peppes pizzustað þar sem við fengum dúndrandi góða pizzu ...sem kom skemmtilega á óvart....
fór þreytt í háttinn þennan dag ..enda búin að vera á "röltinu " frá kl. hálf 10 um morguninn til hálf 10 um kvöldið ...sumum finnst ég ekki beint RÖLTA ..frekar svona..strunsa um göturnar ..en er alveg að verða búin að læra að slaka á og RÖLTA..
Dagur 4:
var róleg fram að hádegi og ákvað að taka stefnuna á Akersbryggju og fara ekki alveg beinustu leiðina sem ég þekkti í gegnum hallargarðinn.... fór gegnum fullt af götum og görðum og endaði auðvitað correct á Akersbryggen :) ...sat þar í góðan tíma og gerði mannlífsrannsóknir sem ég hef nú getað gert mikið af þessa daga... ótrúlega skemmtileg og litrík flóra af mannverum og hundum hér í Oslo :)...
Um kvöldið var ekki óvissuferð hvert yrði farið að borða ...en OMG! hvað það var dásamlega gott og skemmtilegir réttir á matseðlinum hjá Delicatessen ...sem er staður sem allir sem heimsækja Oslo VERÐA að heimsækja og fá sér að borða.... MMMMmmmmm...var búin að heyra hvað það er gott að borða þarna...en vissi ekki að það væri SVONA gott ;)...Flottur staður ...Flott þjónusta..(þó það sé brjálað að gera...er ótrúlega fljót þjónusta og lítil bið eftir matnum ! ) Topp einkun :)
Dagur 5:
LAst day in Oslo.... Eiki í fríi og bauð mér mótorhjólarúnt...fórum í Holmen Kollen í þessu dásamlega góða veðri ..og skelltum okkur upp á topp ! Vááá ..þvílíkt útsýni yfir Oslóarfjörð og borgina :) ... fórum svo smá óvissuferð ..og síðan heim í léttari fatnað þar sem veðrið var orðið enn betra og fórum í rölt ..ég loks komin í þann gírinn ;) ... stoppuðum á nokkrum stöðum til að skoða mannslífs..hunda....hjóla og bílaflóruna...hér er mjög mikið af flottum bílum..Audi greinilega langvinsælastur ..til í öllum útgáfum..en aðallega svartir á lit..Bens, BMW og fullt af öðrum ...og svo þurftum við aðeins að kæla okkur niður með svalandi drykk ... enduðum svo á Italyan pizzerí take away sem við snæddum í "Hænsnagarðinum " sem er beint á móti íbúðinni...lágum þar í steikjandi sól og gæddum okkur á henni...og nú er afslöppun og bloggerí... og tiltekt i töskurnar ..þar sem Oslodvölin er á enda ;( ....flýg til Alesund í fyrramálið... til Guðnýjar systur sem ég blogga frá síðar...en þessir dagar mínir hér eru búnir að vera Dásamlegir og ekki hægt að ýkja það...verið í dekri út í eitt ..
TAKK FYRIR MIG
Bloggar | Breytt s.d. kl. 19:07 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
5.6.2012 | 14:28
Dolla í ORLOFI
Hei!
Ætla bara að byrja aðeins á byrjuninni ... lagði nú af stað sólarhring seinna en ætlaði þar sem það tekur nú tíma að undirbúa brottför fyrir eina heila Dollu sko... ætlaði á fimmtudeginum..en alltof margt sem ég átti eftir að gera svo ég lagði af stað rúmlega 2 á föstudeginum 1. júní í þessu líka dásamlega veðri... tú möts hott for mí í bílnum..úffff... en ég ramba til Reykjavíkur city og í Garðabæinn að heimsækja frumburðinn ..ætlaði að bjóða honum út að borða ...hafði ekki hugmynd um hvað gatan heitir sem hann býr í ..en vissi að Hagkaup væri einhverstaðar stutt frá ....og eftir að hafa næstum brotið umferðarreglur... það var sko GRÆNT ljós... en ekki fyrir þá sem ætluðu að beygja..og það var ég einmitt að fara gera ..um leið og ég sá Hagkaup ..tók ég næstu beygju í einum grænum á mínum eðalvagon .. það slapp ..hringdi í strákinn og sagðist vera hjá Hagkaup og hann sagði bara já keyrðu aðeins lengra og beygðu svo ... !! Ég gerði það ..inn í næstu götu og hver stóð þar og veifaði annar en Rúnarinn minn ... Reyni bara nokkur að segja að ég sé ekki ratvís :)...
Jæaja..vaknaði kl. sex 2.júní til að mæta í flug...var búið að tilkynna um seinkun til 9:40 ! sem ég var bara sátt með ..annars hefði ég þurft að mæta um miðja nótt og ekkert sofið... jæja... ég kemst klakklaust í Leifsstöð eftir að hafa VILLST í HAFNARFIRÐI...( ekki í fyrsta skipti sem ég lendi í vandræðum í gamla bænum þar ...) og lenti í smá útúrdúr til að komast á réttu brautina svo ég kæmist til Keflavíkur..ok... keyrði í Hafdalinn góða þar sem Mússó minn verður í pössun meðan er á ferðalaginu .... svo er ég rétt komin í Leifsstöð ... komin í gegnum leitina þar sem má'ur máorðið þakka fyrir að fá ða vera á naríunum!! Ég sagði það líka ! ..þar sem ég var sTOPPUÐ vegna þess að ég var með kristal flösku og vatnsbrúsa fullan af herba te sem ég ætlaði að drekka meðan væri að bíða eftri að vélið færi... jæja...þetta var nú tekið af mér ...
Jæja..áfram held ég og er bara rétt komin í fríhöfnina þegar kallað er í hátalarakerfinu... að flugi til Oslo sé seinkað um 2 tíma.... ég hugsaði bara..OK.. ekkert mál, vegna þess að ég var ekki að fara í neitt annað tengiflug og gat verið alveg spök! ..sem ég líka var... MJÖG spök og dúllaði mér extra lengi í snyrtivörudeildinni... þegar ég var búin að versla fór ég og fékk mér sæti á kaffihúsi þarna og keypti mer´aðeins að borða ...ætlaði að vera alveg ready þegar flugið byrjaði...en hafði svo nógan tíma að ég fer bara að hlusta á ljúfa tónlist í ipodinum mínum.... var búin að sjá nokkra norsara á borði stutt frá mér ... og þegar ég byrja að hlusta ..þá sé ég hvar þeir rjúka upp og fara í átt að rananum!..ég hugsaði..þeir ætla aldeilis að vera tímanlega...svo fór ég bara á klósett og svona dúlla bara... dettur svo i hug að fara að líta á skjáinn með flugunum... þar er ekki orð um OSLO !!! nema seinnipartinn..viðurkenni nú að þá brá mér aðeins! HA! OSLO CALLING! hvar er það... svo ég fer og ætla inn í ranann til að athuga hvort sé ekki einhver þar sem veit um þetta flug.. og hvaða hlið það á að vera...
Ég er svo ekki fyrr komin inn í ranann...geng í rólegheitunum inn með flugfreyjutöskuna mína í eftirdragi og sé á fyrsta hliði tvær voða sætar flugfreyjur sem ég ákvað að spyrja nú út í þetta...en ég næ aldrei að opna munninn, því önnur þeirra spyr um leið og ég nálgast " ERT ÞÚ SÓLVEIG " ??? ... uuuuu...JÁ ! segi ég ...
Já það er verið að leita að þér segja þær ..komdu fljótt hingað..það er búið að kalla þig tvisvar upp og það á að fara að taka töskuna þína út úr vélinni !!!! Vélin átti að vera farin í loftið fyrir hálftíma ! SÆLLLLL! Nú vissi ég ekki hvert ég ætlaði... enn varla búin ða átta mig á þessu... já en hérna ...það var svo mikil seinkun á vélinni! ... ÉG VAR SEMSAGT SÚ EINA SEM GAT MISKILIÐ ÞAÐ ! ..þá var það bara verið að ítreka seinkunina sem var búið að láta vita 2 dögum áður !..en ekki var um neina extra seinkun að ræða takk fyrir .....en ég dáist nú að þessum elskum hvað þær voru kurteisar og almennilegar við mig og sýndu ekki neinn pirring þó þær hefðu vel getað gert það...
..En ..í alvöru , þá held ég að ég hafi skammast mín í annað skiptið á ævinni þegar ég gekk inn í vélina...ALLIR sjá hver er sökudólgurinn á seinkuninni.... úff..jæja... en flugið gekk VELDIG BRA! og ég náði að redda mér miða í RÉTTA lest ...fann RÉTTU brautina...og fór úr á RÉTTUM stað... og þar var tekið vel ámóti mér og Oslo ævintýrið hefst... ..meira frá því síðar :) ........
Ps. Veðrið hefur verið fram úr björtustu vonum... spáin var sko ekki skemmtileg , en þó það gangi á með dembum og það bara vel blautum...eins og akkúrat núna..en ég hef það gott á fínu netkaffihúsi en þá kemur sól og hiti á milli sem bjargar þessu... og rigningin er bara alls ekki svo slæm.. enda er ég vopnum búin þessari líka fínu regnhlíf og regnkápu..en kápuna hef ég nú ekki þurft að nota nema þegar fór í froskagarðinn flotta...
Bestu kveðjur til allra... ferðasagan heldur áfram síðar... Þessi fjallaði nú bara um að komast á staðinn !
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)