Bloggfærslur mánaðarins, febrúar 2012
13.2.2012 | 18:48
Mánudagurinn 13.
Það er greinilega enn mánudagurinn 13. !
Grrrr....Var á leið í ræktina áðan en ákvað að koma aðeins við og knúsa góða vinkonu fyrst ..sem ég nú gerði og átti með henn mjög gott spjall... erum ótrúlega líkar á svo margan hátt..allavega skiljum við hvor aðra mjööög vel... en já ..þegar ég fór frá henni til að fara í ræktina fattaði ég að mig vantaði skóna í ræktina og skaust heim..ekki alveg í leiðinni samt til að sækja þa´... og ákvað rétt sem sneggvast að taka út úr þvottavélinni og setja meira í hana...
jújú..ég opna vélina oooooog....GRRRR...... demit allt á floti allstaðar ........... var búin að gleyma að ég tók hana úr sambandi ásamt fleiri raftækjum útaf rafmagnsvandræðum sem eru búin að vera hér undanfarna daga .. og hún var þá ekkert búin að þvo auðvitað svo hún var BLINDFULL af vatni og flæddi um allt gólf, gegnum hurðina og fram í eldhús og þaðan áleiðis fram í forstofu frá annarri áttinni og inn í stofu frá hinni ........
Þannig að nú eru flest handklæði heimilisins rennandi blaut eftir þurkunina á gólfinu .... og ég hætt við að fara í ræktina og ætla bara að skella mér í bað!!!! BAÐ!!!! OOOO..ÓÓÓónei..........
ALLT á floti og nú kemur það frá hinum endanum, ekki þvottahúsinu .... ég á ekki orð...nú á ég ekki nógu mikið af handklæðum til að klára þurrka þetta, baðið komið langt uppfyrir og flóð fram á gang og inn í eldhús... Var virkilega orðið svona skítugt hjá mér gólfið ???? ..
Það er allavega orðið vel útvatnað og hreint hjá mér núna....
Over & out ..farin að leita að fleiri handklæðum eða sængurverum eða einhverju ...nú vantar mig RAINBOW ryksuguna sem fór í síðasta "BRUNA ! "
Eins gott að verði hvorki mánudagur , né 13 . á morgun !
Bloggar | Breytt s.d. kl. 19:02 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
6.2.2012 | 18:17
Nothing else matters
Þegar ég eftir e-u spennandi er að bíða
þá tíminn svo alltof lengi er að líða
Finnst eins og klukkan sé afturábak að skríða
En þetta er bara ég sjálfri mér að stríða
Vildi miklu frekar vera úti að .....
Því núna er komin svo ótruleg blíða...
bráðum fer að hlaupa um landið víða
Hvað á þetta bull í mér eiginlega að þíða .
BUT.... Nothing else matters - love this song...eins og flestöll lög með METALLICA
Bloggar | Breytt s.d. kl. 18:20 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)