23.9.2013 | 13:57
Can't take my eyes of you....
Gæti setið endalaust og bara horft.... uuuuu... kannski ekki endalaust, því ég get ekki horft lengi án þess að snerta líka
Já það er sko væmnisdagur í dag (ekki Daloon dagur ....) ....Welllo...welllo... Er sko búin að vera í alltof löngu væmnis hléi, en nú er væmnis STUÐ á minni og það bara þó nokkuð ... er enn að átta mig á hvað ég er heppin er loks farin að leyfa mér að trúa því ...enda engin ástæða til annars
Alveg veit ég með vissu um eitt
að Varði þig elska ég mikið og heitt
Þú mér sýnt hefur og sannað
hvað sannleikur er betri en allt annað
Áður hef elskað en aldrei jafn heitt
kannski haldið það en vissi ekki neitt
Þú mér kennt hefur að trúa og treysta
án taks eins og sé verið hjartað að kreista
Hún er allt öðruvísi þessi alvöru ást
ólík annarri sem traustinu brást
nú hamingja en ekki sársauki úr augunum sést
svakalega elska ég þig Varði minn mest....
og BEST
Estoy enamorado
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.