13.8.2013 | 01:11
Án þess að vita
Án þess að vita ég leitaði að ÞÉR...
leitaði lengi og byrjaði hér...
En hér var bara LYGIN sem hentaði ekki mér...
hvað heldur þeim sem allt heyrir og sér...
Svo komst þú minn elskulegi...
hittir mig á fallegum degi...
frá því glöð ég nú segi...
að Amor okkur saman leiddi á förnum vegi...
Augun þín brúnu strax dáleiddu mig...
ég í sannleika bara gat hugsað um þig...
mitt hjarta hjá þínu mér finnst ég eiga heima...
eins oft og hægt er til þín ég sveima...
í huganum oft með þér langt út í geima...
"Loksins ég fann þig líka þú sást mig
ljóminn úr brúnu augunum skein
haltu mér fast í hjarta þér veistu
að hjá mér er aðeins þú einn."
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.