15.5.2013 | 12:51
Rétta viðhorfið !
Rakst á smá viðtal við Jóa Fel og fannst lokaorðin hjá honum svo FLOTT Taka hverjum degi fagnandi, einn dag í einu og njóta hans .... það að geta vaknað hress og gengið út í lífið, þá er engin ástæða að kvíða því að eldast Það er svo mikið til í þessu nefninlega
Þetta minnti mig á heilbrigðiskenningar sem var að lesa í um daginn...
Eigið gildismat hefur áhrif á hvernig maður hagar sér .
heilbrigði er margþættur veruleiki sem hefur líkamlega hlið, sálfélagslega,Tilfinningalegar og trúarlegar , tilvistarlega, og þjóðfélagslega....
Parse o.fl. gerðu könnun sem sýndi blátt áfram að eigið gildismat hefur áhrif á hvernig maður hagar sér. Svosem engin ný vísindi..en skemmtileg pæling samt sem áður
"Yngra fólk eða yngri en 44 ára mat heilbrigði sem hæfileika til líkamlegra athafna og að geta gert það sem það vildi" hehe...kemur ekki á óvart ...
"Fólk 45 - 66 ára taldi heilbrigði vera það að ná markmiðum sínum, líkamlegum og andlegum" mjög góð markimið sko...
"Eldra fólk, eða yfir 66 ára taldi heilbrigði vera það að líða vel og geta séð um sig sjálft, unnið eða gengið um úti"
þarna er Jói Fel mættur með viðhorfið að eldast er ekkert mál, ef maður getur vaknað hress og gengið út í lífið
http://www.mbl.is/smartland/utlit/2013/05/15/eg_hugsa_ekki_meira_um_utlitid_en_adrir/
svo er gott að hafa í huga að þó hreyfing sé góð er ekki alveg sama hvernig hún er framkvæmd...hehe
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.