3.11.2012 | 11:43
Hlýt að verða 100 ára því ég er komin í súkkulaðibindindi og hitt....
....það er allavega í algeru lágmarki |
En þar sem ég er að gera rannsóknarritgerð um blóðgjafir samkynhneigðra .. hef ég rekist á og lesið ýmislegt forvitnilegt og fordómafullt...en einmitt rakst á þessar upplýsingar í tenglsum við heimildaleit..þó þetta nýtist mér ekki í henni(ritgerðinni) langaði mig endilega að deila þessari skemmtilegu grein með ykkur...( Hefði kannksi átt að láta rannsóknarspurninguna vera :"Hvort er hættulegra kynlíf eða súkkulaði?" ) Þetta er dæmi um SKEMMTILEGA FRÆÐSLU ! Svona á að gera hana |
"Öruggara kynlíf
Kynlífstengdir smitsjúkdómar eru þó ekki allir banvænir en þeir sem drepa ekki geta haft leiðinlegar afleiðingar eins og ófrjósemi. Þetta er nú samt ekki svo voðalegt og við skulum ekki grenja mikið því rétt eins og það má hlaupa af sér súkkulaðið má verjast kynlífstengdum smitsjúkdómum með nokkuð einföldum aðferðum.
Öruggara
Að vísu er til ein tegund kynlífs sem má telja algjörlega örugga, en það er gamla góða sjálfsfróunin. Svoleiðis kynlíf er algjörlega öruggt með tilliti til sjúkdóma og meira að segja líka þungunar (í það minnsta eru um tvö þúsund ár síðan að eingetinn einstaklingur fæddist hér á jörðu).
Þeir sem kjósa að stunda kynlíf með öðrum en sjálfum sér eiga semsagt allir á hættu að smitast af sjúkdómum. Gildir þá einu hvort um kynlíf einstaklinga af sitt hvoru kyninu er að ræða eða kynlíf samkynhneigðra. Það er ekki rétt að lesbíur séu stikkfrí því þær geta alveg eins smitað hvor aðra í sínu kynlífi." |
Skemmtileg hún Ragnheiður Eiríksdóttir... svona á að skrifa til að ná að halda athyglinni ...
........................ Svo er heillangur listi í öryggismálum líka ... sem fylgdi þessari skemmtilegu grein sem ég sá á heimasíðu Heilbrigðisstofnun Þingeyinga Alltaf sagt að við erum með húmor þarna sem komum úr Þingeyjarsýslunni hehe..............................................
hér er þetta í heild sinni :
http://www.heilhus.is/default.asp?sid_id=5415&tre_rod=&tid=7&vef_id=90&GRS_ID=974
Athugasemdir
Það endar með að þú verður hrein mey á ný :)
Ásdís Sigurðardóttir, 3.11.2012 kl. 13:11
hahaha... omg! Veistu um tímann sem það tekur ? hehe...
Sólveig H Sveinbjörnsdóttir, 3.11.2012 kl. 18:36
eitt til tvö ár er mér sagt :):)
Ásdís Sigurðardóttir, 3.11.2012 kl. 20:09
hmmmmm... svo mikill er ég nú ekki
Sólveig H Sveinbjörnsdóttir, 3.11.2012 kl. 21:29
guði sé lof, það væri líka óhollt fyrir sálina :)
Ásdís Sigurðardóttir, 4.11.2012 kl. 11:49
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.