30.10.2012 | 16:35
Ég þori alveg að viðurkenna að ég get nú skipt stundum um skoðun
Jájá...maður hefur farið með litlu krúttlegu eggjakörfuna með litlu sætu eggjabökkunum í Höllina ..og Hallargarðinn til að spjalla" við púddurnar og týna egg ...ogguponsulítil og sæt egg sem eru soðin eða notuð í bakkelsi með kaffinu þann daginn Haninn galar nú sem aldrei fyrr alveg lon og don ...enda er nú búið að setja hitaperu inn til hans og allra púddanna hans svo væsi ekki um þau í hríðinni á dimmum vetrardögum og frostnóttum Jú...skal bara viðurkenna það að ég hef leyft mér að skipta um skoðun frá því þetta kom fyrst upp... WHAT! ....galandi hani og verpandi hænur.... hvað er málið??? Þannig hugsaði ég fyrst...langaði miklu meira í aðra sæta kisu eins og var hjá okkur einu sinni...En þetta er bara mjög skemmtilegt... nema fyrir grey íbúana sem búa alveg upp við Hallargarðinn og eru ekki svo "heppnir" að vera alveg heyrnarlausir því blessaður kóngurinn í hænsnagarðinum galar hátt og vel.
http://www.akureyrivikublad.is/akvbl/frettir/2012/10/30/haensnahollin-hlaut-nyskopunarverdlaun/
Hlíð hjúkrunarheimili er eiginlega hálfgerð Örkin hans Nóa" því þar hefur verið kisan litla hún Perla sem reyndar stækkaði fljótt en þvílíkur gleðigjafi hún var fyrir marga...maður sá LÍFSNEISTA glampa í annars brostnum augum alveg ótrúlegt ða fylgjast með því gerast..og hún fannst undir sæng hér og þar..aðallega þar , nema gleðin var ekki jafn mikil þegar hún kom inn með allavega fugla ..veit ekki með mýs...einhvern tímann komst hún í páfagaukana á efri hæðinni ...en nú eru þar aðrir fuglar , svo angalitlir og gefa frá sér hljóð sem minna mig á ýlubangsa úr gúmmíi sem yngri systur mínar áttu sem ungabörn ...en annar þeirra reyndar hvarf reyndar án hálpar frá ketti yfir móðuna miklu fyrir helgina ... á enn öðrum stað er kanína og hundar eru velkomnir í heimsókn um alla ganga og hafa gert það...m.a.s. sérstakir heimsóknarhundar sem koma stundum
Örugglega eru allskonar fleiri dýr í húsinu..jújú..var nú næstum búin að gleyma gullfiskunum sem svamla í risabúri í aðalforstofu eða holi hússins, en fyrir nokkrum árum var og reyndar er enn (bara galtóm af lífi) gullfiskatjörn úti með gosbrunn og flotteríi...en þeir voru ekta ..rauðir og glæsilegir og komu fljúgandi að sunnan ...örugglega þess vegna sem Mábbi mávur og vinir hans komust á slóðina hvar dýrindis hádegismatur væri svamlandi svo það leið ekki langur tími uns þeir hurfu sem magafóður og ekkert síðan til þeirra sést ..né frést ...nema það séu ÞEIR sem nú laða til sín ferðalanga í heitu krókódílatjörnina" við Húsavík... sá nokkra þar í sumar...gullfiska sko..ekki krókódíla En nú skiptast dúfur á að trítla á stéttinni framan við gosbrunninn eða sitja á húsþakinu og fylgjast með mannaferðum ..þá aðallega púttvellinum í garðinum og taka út hvernig menn bera sig að með púttarann ...
Semsagt... Aldrei lognmollan á mínum vinnustað ef einhverjum skyldi detta það í hug...
Athugasemdir
Hefur sko ekki hvarflað að mér að það væri lognmolla í kringum þig, enda væri það óeðlilegt :) Mér finnst alltaf betra að hafa líf og fjör og ég væri skol til í hana og hænur í hverfið hjá mér, það er svo notalegt að heyra í lífinu, er svo heppin að búa rétt hjá leikskóla og heyri hrópin og gleðihljóðin í ungunum sem þar eru á daginn, hef reyndar heyrt af fólki sem kvartar yfir því, ég segi bara hvað er að? lítið gaman að hljóðlausu lífi. Hafðu það gott skottið mitt.
Ásdís Sigurðardóttir, 30.10.2012 kl. 21:44
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.