24.9.2012 | 00:36
ég kemst aldrei FRAM ÚR mér..en stundum geng ég FRAM AF mér samt
já... loks kom að því að ég hætti að hlusta á skynsemina og fór í staðinn að hlusta á samviskuna.. þessar tvær eru systur ...en eru ekkert endilega alltaf sammála... kannski bara svoltið líkar mér & my Holy sister Love you samt Helga mín ... en eftri ða ég fór á Súlur í byrjun mánaðarins fékk ég FLENSUSKÍT...ég sem verð EKKI lasin ssko... en þetta var svona alvöru... og lagði mig svo í rúmið í tæpa viku og ... svo er ég búin að vera hóstandi og geltandi aðallega útí eitt ... verulega orðin þreytt...en á fimmtudagskvöldið hélt ég að ég myndi kafna og yngsta syninum var ekki orðið sama...svo hann bað mig að lofa sér því að ég myndi fara til læknis daginn eftir..og það gerði ég sem betur fer... með lungnabólgu af einhverri sort og því fékk ég tröllaskammta af penicillíni sem ég hef aldrei áður heyrt nefnt....en það svínvirkar... gelti bara eins og lítill hvolpur núna... í staðinn fyrir að vera eins og grimmur Bolabítur...veit ekkert hvernig þeir eru samt ... hlýt að fara verða kisan sem ég er aftur mjög fljótlega... jæja...þetta varð nú aðeins of langur inngangur ...Ætlaði sko bara að skrifa að ég hafi svo skellt mér uppí Fálkafell til að ná mér í súrefni eftir að sitja við lærdóm allan daginn..og ég get svarið það... ég hélt ég yrði varla eldri ...gekk bara næstum fram af mér við þetta en nú kemru sér vel hvað ég er oft fljótfær...því þá er engin hætta á að ég muni nokkrum sinnum fara framúr sjálfri mér ...næ því aldrei fyrir fröken Fljótfærni .... en sem betur fór dreif ég mig nú í messu með fermingardrenignn tilvonandi... svo ég gat beðið guð um að blessa mig og vera svo vænan og góðan að láta mér ekki slá niður...því það sem ég fann fyrir því í brekkunni stóru og bröttu hvað ég var slöpp eftir þetta laserí ! En hvarflaði ekki að mér að hætta við á miðri leið ..kláraði sko það sem ég ætlaði mér...og það sem lög geta bjargað manni frá ýmsu.... ipodinn minn elskulegi já ég elska þig ipod...var með stillt á random kerfi svo e´g vissi aldrei hvað alag eð ahvernig kæmi næst... bara vingsast í öllum skalanum...þá kom þetta geggjaða stuðlagog ég gat ekki verið lengur þreytt og fór ða baða út öllum öngum og dansaði upp brekkuna meðan lagið var ..var sko alveg ein í heiminum...Vonandi hehe... annars er mér alveg sama... mér myndi finnast frábært að mæta dansandi og syngjandi manneskju sem heldur varla lagi... koma þannig á móti mér upp brekku
Upp komst ég...þökk fyrir "ring my bell" og fleiri lögum..og man núna eftir öðru lagi sem kom þegar ég var alveg að springa hehe...hafði ekki alveg orku í mikið danserí við það... og hugsaði með mér að miðað við textann þá yrði ég sko SOFNUÐ after MIDNIGHT ... og nú er kl. rúmlega það og ég alone á leið í bed..en lagið er gott Kom mér í algert stuð haha
Ætla bara ekkert aðnefna dramalögin sem komu svo allstaðar á milli líka , þar sem ég er DRAMADROTTNING of the world... er best að hafa það fyrir mig eina allt sem var á fleigiferð í hausnum á mér í mörgum þeirra... bæði fortíðar og framtíðardraugar að sveiflast þar sem komu mér til skiptis í hlátur og grát gírinn hehe... neinei..grenjaði ekkert , en fékk smá tár
En þetta var magnað ...takk frk. Samviska , að leyfa mér ekki að hangsa lengur án hreyfingar. Ég var líka svo gáfuð að láta ofninn elda meðan ég var í göngunni og baðinu svo blessaðir synirnir fengu nú mat í magann og svo var það messan sem ég nefndi áðan..verð bara að bæta einu þar við...núna nefninlega er að mæta með fermingarbarninu í messur og ætluðum í morgun , en sá þá að engin messa var á dagskrá, en æðruleysismessa í staðinn í kvöld... jú , fannst það alveg gráupplagt...aldrei mætt í þannig messu áður, en var svo notaleg stund og þægilegt það bara komu alveg nokkrum sinnum tár ...og svo falleg lög sem sungin voru og yndisleg hjón sem sungu svo fallega og spiluðu á gítar og fiðlu.... en við erum nú ekki búin að vera lengi þegar snillingurinn minn , drengurinn segir :" Mamma! Erum við einhverjir alkóhólistar?... við erum nefninlega komin á AA fund " !!! hehe... með fullri virðingu fyrir öllum ..þá var þetta bara eitthvað svo krúttlegt hehe... en ég gat nú útskýrt fyrir honum að þetta væri nú ekki bara fyrir AA fólk ... heldur líka aðstandendur og alla sem þekkja einhvern sem líður illa...fórum líka og kveiktum á bænakertum og þar gat ég sagt honum að t.d. núna...þá gæti hann notað kertið sitt og beðið fyrir kunningja sínum og allri hans fjölskyldu sem á svo mjög erfitt um þessar mundir og það fannst honum vænt um ...og mér líka og gerði það sama..bað fyrir þeim öllum sem hugur minn hefur verið mikið hjá síðustu vikuna og rúmlega það.... OG ... ÉG ÆTLA SKO AFTUR í svona æðruleysismessu....mér leið svo vel þarna ... Say No More Gúdd næt
Athugasemdir
ja DOlla, þú væntanlega tekur þessa lífsreynslu með þér inní framtíðina sem hjúkka..... þeir sem fá lungnabólgu bara drullist nú uppúr aumingjaskapnum og slappleikanum og fari í fjallgöngu því samviskan leyfir ekki að byrja bara á nettri jafnsléttugöngu eftir slík veikindi.....
Helga Sveinbjörnsdóttir (IP-tala skráð) 24.9.2012 kl. 09:34
:) hlusta á líkamann og mundu það stelpa.
Ásdís Sigurðardóttir, 24.9.2012 kl. 11:49
Hahahahaha.... Helga mín, beið eftri einvherju svipuðu frá þér
Jájá... ég man það ... gerði það ...samviskan er partur af honum...hún rak mig af stað..og ég hafði svona asskoti gott af þessu..og var bænheyrð í messunni.... Eldspræk í fyrsta skipti í nokkrar vikur
Sólveig H Sveinbjörnsdóttir, 24.9.2012 kl. 17:27
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.