3.11.2011 | 21:34
SK án lyfseðils sem virkar STRAX og VEL
Hvað gerir maður ekki til að bjarga því sem bjargað verður úr þessu ? ....
ÞAð var bara ekki orðið alveg eðlilegt hvað ég var oðin e-ð T....leg...er ekkert að grínast með það að ég komst jú alveg á fætur en var varla komin í skólann þegar augnlokin urðu þung...þau urðu þyngri...og þyngri.... Var farin að halda að einvher væri að æfa sig í dáleiðslu á mér....Koffín skammtarnir orðnir 2faldir í hvert sinn og oftar en áður en ekkert dugði.......
Og Þegar ég var oðrin þannig að ég varð að leggja mig og á miðjum degi og lét það eftir mér...fóru nú að kvikna á viðvörunarbjöllum...var að slá unglingnum við í þreytu og svefnþörf...ÞRÁTT FYRIR NÆGAN NÆTURSVEFN ...þá hvarflaði nú alveg að mér að far til læknis og biðja um slenprufugreiningu...það hlýtur að vera til þetta orð...allavega skilst það nú vel ......
Var svo í miðjum líffærafræðitíma fyrir stuttu þar sem var verið að fjalla um heilann og öll hans undur og stórmerki ....( skil núna hvað ég er stórmerkileg auðvitað) þar á meðal Stúku( sem ég tók eftir að hefur afskipti af t.d. TILFINNINGUM ( ég er tilfinningaríkasta vera jarðar stundum allavega DRAMA QUEEN...), MINNI ( ég er með gleymnari verum sem ég þekki..), og ÞEKKINGARÖFLUN ( ég er nú aldeilis í þekkingarleitinni miklu þessar vikurnar og mánuðina), ...þannig að... mér var hugsað til þess hvernig eða hvort væri nú ekki hægt að virkja akkúrat þessa stöð og svo kom spurning úr salnum til kennara þegar komið var að Uppstúkunni, En hún stjórnar eða hefur áhrif á"lífsklukkuna" þ.e. stjórnar svefni og vöku...þá fékk kennarinn spurningu hvort væri ekki hægt ða virkja hana betur ..þ.e. þann hluta sem heldur manni VAKANDI! ...kennarinn sagði að það væri að öllum líkindum hægt með lyjaáhfrifum og nefndi þekkt dæmi ..t.d. læknanema og fl. sem tóku amfetamín í stórum stílum í prófatíðum og þurftu þar af leiðandi ekkert að sofa...en hvað gerist svo?
Jú kennarinn benti okkur á það líka að það væri nú ekki þess virði þar sem það gæti aldrei endað öðruvísi en illa....og því trúi ég líka en akkúrat þarna í þeim töluðu orðum ákvað ég að fara í næsta apótek eftir skóla.......
Þar bað ég um það STERKASTA- KRÖFTUGASTA-FLJÓTVIRKASTA ......sem til væri við sleni ( ÁN lyfseðils) og jú ekki stóð á svarinu : EXTRA STRONG RAUTT EÐALGINSENG .......OG .....ÞAÐ VIRKAR!!!! Nú hef ég sko nógan kraft til að halda mér vakandi allan daginn ...sem er auðvitað eðlilegasti hlutur heims...eða hvað? Á Spáni er nú tekin siesta og það finnst mér vera eðlilegt ...svo nú er að vita hvort þetta virki bara fyrir Uppstúkuna eða hvort stöðvarnar í Stúkunni sem mig langar gjarnan að virki aðeins betur hjá mér græði á þessu líka ....
ÉG má samt þakka fyrir að sofna fyrir nóttina ............En allavega...Nú eru sko EÐALginseng dagar hjá mér og verða næstu vikurnar ...Say No More
Athugasemdir
Góð passaðu þig samt að vaka ekki of mikið, kvíldin er nauðsynleg.
Ásdís Sigurðardóttir, 4.11.2011 kl. 11:43
Já Ásdís...ég passa mig og var sofnuð á skikkanlegum í gærkvöldi
Sólveig H Sveinbjörnsdóttir, 4.11.2011 kl. 13:12
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.