7.7.2011 | 16:16
spenningur
Jæja, þá er pottþétt ekki aftur snúið að ég verði skólastelpa í vetur þar sem ég var að enda við að borga skólagjöldin og ekki laust við að smá fiðringur og pínu spenna sé komin í heimsókn.
...úfff...allt í einu er þetta svo raunverulegt og stutt í að allt byrji ...þarf að fara kaupa mér fartölvu og kanna hvaða bækur ég get reddað mér notuðum og kaupa hinar á amason ( það er m.a.s. myndband inni á háskólavefnum fyrir fólk sem hefur ekki þurft að brasa í svona áður sem kennir manni að kaupa frá t.d. amason ) Það hefur verið gert spes fyrir mig örugglega hehe....
en ég er reyndar hvorki sú eina né elsta sem er að fara í háskólann svo ég get verið alveg róleg með það, bara pínu skrítið en skemmtilegt að byrja um leið og elsti sonurinn ....Þarf bara fljótlega að fara setja mig í gírinn í sambandi við ýmislegt sem ég þarf að gera áður en fjörið hefst ..ath. hvað bankinn verður góður við mig og ýmislegt í þeim dúr skemmtilegt...er búin að segja upp næturvöktunum svo þær verða ekki hindrun í veginum...Spurning um 1 Ljón í veginum en það kemur í ljós hvernig það gengur það verður þá bara skemmtilegt og spennandi...
Say No More..........
Athugasemdir
Þetta verður æði, það er ég viss um. Gangi þér vel yndið mitt.
Ásdís Sigurðardóttir, 8.7.2011 kl. 11:21
Takk takk Ásdís :) Þetta verðru bara æði held ég líka .
Sólveig H Sveinbjörnsdóttir, 8.7.2011 kl. 11:52
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.