12.7.2011 | 20:27
Niðurgangurinn óneitanlega þægilegri ;)
Þá var hann loksins heimsóttur elsku Kaldbakur sem er búinn að bíða lengi eftir mér ...Veðrið gat ekki verið mikið betra , því þá hefði það næstum verið verra...Er nógu sólbrennd í framan eftir snjóbyrtuna
en smástund á nokkrum stöðum fór sólin og það hvessti og þá kom hrollur í mann en vááá..þessi ferð var þess virði - við gengum 12,7 km. fórum upp í 1167 m.y.s. byrjuðum m.a.s. næstum við sjóinn og vorum nokkuð sprækar
Héldum ( eiginlega sem betur fer) að þetta væri ekki alveg jafn bratt og langt en reyndar var 1. hlutinn langerfiðastur ..löng og mjög brött brekka beint upp ...og eins og maður hefur orðið var við í fleiri fjallaferðum er fleiri en einn staður sem maður er næstum viss um að nú sé maður loks að komast á toppinn Bwahaha...þvílíkar sjálfsblekkingar þar á ferð hehe..
Verð svo að segja frá einu frekar fyndnu sem við sáum á leiðinni niður en það var miði sem lá á jörðinni og á honum stóð : Hlíðarfjall Akureyri
Svo skemmtum við okkur ekkert smá vel þegar við hlupum niður brekkurnar sem voru þaktar í snjó og skríktum eins og smá krakkar en það var bara svoooo gaman að hlaupa þar niður
Við vorum 3klst.15mín upp með nokkrum öndunar og drykkjarstoppum + 1 nestispása en niðurgangurinn tók 1 klst.40mín ...stoppuðum góða stund á toppnum þar sem útsýnið var FRÁBÆRT og veðrið gott þannig að við vorum 5 klst og 15 mín frá bíl í bíl
Fréttum svo í Sjoppunni á Grenivík af mönnum sem fóru upp í fyrrakvöld og voru nákvæmlega jafnlengi og við upp en nokkrum mín fljótari niður svo þá urðum við bara ansi ánægðar með okkur aftur..vorum það náttl. fyrir
ÞAð voru semsagt frekar rauðleitar, dasaðar og smá þreyttar vinkonur sem brunuðu til Akureyrar eftir flottan dag Vonandi hafa aðrir notið dagsins vel líka
Luv...........
Bloggar | Breytt s.d. kl. 20:49 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)